Víkurfréttir - 16.06.2005, Síða 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Sport
UMFÍ og Keflavík munu nk. mánudag standa fyrir fræðslufyrirlestri
um gildi íþrótta fyr ir börn
og unglinga. Dr. Hermundur
Sigmundsson mun flytja fyr-
irlestur um mikilvægi íþrótta
fyrir líkamlega, andlega og fé-
lagslega heilsu barna og ung-
linga.
Fyrirlesturinn verður haldinn
mánudaginn 20. júní kl. 20:00 -
22:00 í Félagsheimili Keflavikur,
Hringbraut 108. Fyrirlesturinn
er öllum opin en er sérstaklega
ætlaður foreldrum, þjálfurum,
kennurum og leikskólakenn-
urum.
Miðvikudaginn 22. júni kl 18:00
mun Hermundur bjóða þjálf-
urum á svæðinu til rabbfundar
í Félagsheimilinu. Þar geta þjálf-
arar komið með spurningar
varðandi þjálfun og leitað ráða
um ýmisleg atriði varðandi
þjálfun. Þar mun Hermundur
einnig kynna nýtt próf, „fitness
test“ sem notað er af þjálfurum/
íþróttakennurum í Noregi til
að meta framfarir um líkamlegt
ástand.
Hermundur Sigmundsson varð
doktor árið 1998 frá Norska
tækni- og vísindaháskólanum
(NTNU) í Þrándheimi. Her-
mundur er nú prófessor við
sama skóla. Hann hefur m.a.
rannsakað börn með hreyfi-
vandamál, lesblindu og stær-
dfræðierfiðleika og birt rann-
sóknir í virtum tímaritum eins
og Experimental Brain Rese-
arch, Behavioural Brain Res-
earch og Developmental Med-
icine and Child Neurology.
Opinn fræðslufyrirlestur
um gildi íþrótta fyrir börn
Stefán Örn Arnarson, fram-
herji sem var leystur undan
samningi sínum við Víking
í Reykjavík fyrir skemmstu,
hefur gengið til ilðs við Kefla-
vík á lánssamningi. Hann var
ekki lengi að stimpla sig inn í
leikinn með því að
Stefán býr og starfar í Reykja-
nesbæ og eru því hæg heim-
antökin að ganga til liðs við
Keflavík þar sem framherjar
eru af skornum skammti.
Leikmaðurinn lék einn leik
með Víkingi í 1. deildinni
og skoraði þar mark, en svaf
yfir sig og missti af leik þeirra
gegn KS og var látinn fara
skömmu síðar.
Stefán Örn með
Keflavík
Víðismenn fá sannar-lega verðugt verkefni í Visa-bik ar keppni
karla á mánudagskvöld er þeir
mæta Íslandsmeisturum FH á
Garðsvelli.
Víðismenn sem eru í 3. deild-
inni hafa leikið vel að undan-
förnu en víst er að þeir þurfa
að leika af miklum krafti ef þeir
eiga að eiga möguleika gegn
geysisterku liði FH.
Elfar Grétarsson, þjálfari Víð-
ismanna, segir mikla stemmn-
ingu í sínu liði fyrir leikinn.
„Þetta var mikill happadráttur
fyrir okkur og það verður tekið
hressilega á móti meisturunum í
Garðinum. Við erum fullir sjálfs-
trausts og höfum í raun engu
að tapa.”
Búist er við að stuðningsmenn
FH fjölmenni á leikinn og seg-
ist Elfar vona að Garðbúar og
Suðurnesjamenn mæti á leikinn
og styðji vel við bakið á heima-
mönnum.
„Ég hvet alla til að mæta til að
sjá skemmtilegan leik.”
Unndór Sigurðsson mun þjálfa kvennalið Grindavíkur í körfuknattleik á næsta ári, en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið á dögunum.
Unndór, sem er Grindvíkingur í húð og hár, þjálfaði lið ÍS með
góðum árangri í fyrra, en sagðist í samtali við Víkurfréttir vera
glaður með að fá tækifæri til að þjálfa sitt lið. „Það er gaman
að vera kominn heim og við erum bjartsýn með framhaldið.
Leikmannamálin eru svolítið óráðin núna en við búumst við því
að þau mál leysist á næstu vikum.” Eins og þegar hefur komið
fram í Víkurfréttum munu nöfnurnar Erla Reynisdóttir og Erla
Þorsteinsdóttir ekki leika með liðinu næsta vetur og munar um
minna, en þegar hefur verið tekin ákvörðun um að vera með
bandarískan leikmann allt frá byrjun vetrar.
Þá sagði Unndór að hinar ungu og efnilegu stúlkur sem hafa
verið í hópnum síðastliðin ár muni spila stærra hlutverk í liðinu
en á liðnum árum, en yngri flokkar félagsins hafa verið með þeim
sterkustu á landinu undanfarin ár.Íslandsmeistararnir
mæta í Garðinn
Unndór þjálfar Grindavíkurstúlkur
Óli Stefán Flóventsson, knattspyrnumaður frá Grindavík, mun leika
með liðinu það sem eftir er
sumars og út samningstíma
sinn að sögn Jónasar Þórhalls-
sonar formanns knattspyrnu-
deildarinnar. Í samtali við Vík-
urfréttir sagði Jónas að deilur
Óla Stefáns og Milans Stef-
áns Jankovic, þjálfara, hefðu
verið blásnar út í fjölmiðlum
og fullar sættir hefðu náðst á
fundi á þriðjudagskvöld.
„Það er mikill vinskapur með
þeim Óla og Janko og ég á von
á því að óli verði með okkur
gegn KR, en við þurfum á öllum
okkar mönnum að halda í bar-
áttunni sem er framundan.”
Óli Stefán áfram
með Grindavík
Keflavíkurstúlkur hafa fengið
góðan liðsstyrk fyrir átökin
í Landsbankadeildinni, en
serbnesku landsliðskonurnar
Katarina Jovic og Vesna Smilj-
kovic léku sinn fyrsta leik
gegn KR á þriðjudag.
Stúlkurnar eru í frestu röð í
sínu heimalandi og er Smilj-
kovic m.a. landsliðsfyrirliði
Serbíu og markahæsta konan
í sögu landsliðsins þrátt fyrir
að vera einungis 22 ára. Jovic,
sem er 26 ára, er einnig þraut-
reynd og bera Keflvíkingar
miklar væntingar til stúlkn-
anna.
Landsliðskonur
til Keflavíkur
Bakvörðurinn Jeb Ivey hefur skrifað undir 1 árs samning við körfuknatt-
leikslið UMFN.
Ivey sem hef ur skap að sér
nafn sem ein skæðasta skytta
Intersport-deildarinnar, hefur
gert garðinn frægan með KFÍ
og Fjölni, og leiddi hann Fjöln-
isliðið í bikarúrslitin þar sem
þeir töpuðu gegn Njarðvík.
Einar Árni Jóhannsson sagði í
samtali við Víkurfréttir að þeir
væru afar spenntir fyrir komu
Iveys, enda misstu þeir báða
leikstjórnendur sína frá síðustu
leiktíð. Tilkoma hans þýðir að
Njarðvíkingar hafa ákveðið að
treysta á stóru mennina sína,
Egil Jónasson og Friðrik Stefáns-
son. Einar segir Egil sérlega lík-
legan til að springa út á næsta
ári með auknum leiktíma.
Ivey til Njarðvíkur