Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.06.2005, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 23.06.2005, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Bæjaryfirvöld í Reykja-nes bæ áfor ma að setja upp hringtorg á gatnamótum Aðalgötu og Iðavalla, en gatnamótin eru alræmd vegna mikillar slysa hættu sem mynd ast þar vegna ófullnægjandi út- sýnis. Viðar Már Aðalsteinsson, forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanes- bæjar, sagði í samtali við Víkurfréttir að reynt yrði að finna fjármagn til að klára verkefnið í sumar. Stærsta vandamálið við gatna- mótin er há girðing sem um- lykur húsnæði Fiskvals, en hún skerðir verulega útsýni þeirra sem aka Iðavellina í átt að Aðalgötu. Þá hefur hraðakstur niður Aðalgötu frá Flugvallavegi lengi verið landlægt vandamál. Hringtorg á mótum Aðalgötu og Iðavalla Liðurinn Gönguleiðir á Reykjanesi var tekinn í gagnið í dag hér á vf.is. Er þetta samstarfsverkefni Víkurfrétta og Upplýsingamiðstöðvar Reykjaness um að koma á fram- færi skemmtilegum og spennandi gönguleiðum á Reykjanesi. Í viku hverri verður sett inn ný gönguleið alveg fram á haust en sú fyrsta í röðinni er frá Garðskaga að Sandgerði. Hægt er að smella á valhnappinn „Gönguleiðir“ á forsíðu vf.is til að fá nán- ari upplýsingar um gönguleiðir. Nýtt á vf.is - gönguleiðir Krakk arn ir í Vinnu-skóla Reykjanesbæjar fengu held ur bet ur að skemmta sér þegar menn frá Kef Jet í Keflavík fóru með krakkana niður að höfn og drógu þau um á stórum gúmmí- banana á fimmtudag. Sumir fóru einnig í ferð á Jet-Ski um höfnina og skemmtu allir sér konunglega. Sumir létu ekki hraðar ferðir á gúmmí banana duga því nokkrir stukku af höfninni og bátum ofan í ískaldan sjóinn. Frábært veður var í gær en þetta er fyrsti hópurinn frá bæjarvinnunni sem fer með Kef Jet á sjóinn. Ljósmyndari Víkurfrétta skellti sér niður á höfn og ljósmynd- aði krakkana í blíðskaparveðri úr mótorknúnum gúmmíbát. Myndir frá deginum má sjá á vf.is Allt í grænum sjó Byggðasafnsnefnd efndi til nafnasamkeppni á nýja veitinga-staðnum í Byggðasafni Garðskaga. Alls tóku 79 aðilar þátt og komu með yfir 200 tillögur. Fyrir valinu varð nafnið Flösin en það er gamalt örnefni. Flösin er lágt sker, sem liggur norður útfrá Garðskaga. Fyrr á tímum strönd- uðu mörg skip á þessu skeri. Alls bárust 13 tillögur með nafninu Flösin. Dregið var úr nöfnum þeirra og hlaut fjölskyldan að Sunnubraut 26 verðlaunin. Stefnt er að því að opna byggðasafnið 2. júlí næstkomandi, en fram- kvæmdir við húsið hafa staðið frá síðasta hausti. Flösin skal hann heita! Veitingastaður í Byggðarsafninu Það verður víst ekki handsápa á salerni veitingastaðarins á Garðskaga... ...bara Flösu-sjampó! MUNDI Mundi

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.