Víkurfréttir - 23.06.2005, Qupperneq 11
VÍKURFRÉTTIR I 25. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 23. JÚNÍ 2005 I 11
17. júní á Suðurnesjum
Þessi ungi herramaður var ekki alveg viss um hvernig
ætti að bregðast við furðuverunum sem voru á vappi í
skrúðgarðinum á 17. júní hátíðarhöldunum.
Þjóðarstoltið spyr
ekki um aldur!
heim.” sagði Magnús.
Ingólfur Jónsson er formaður
stéttarfélagsins Fylkis sem er fé-
lag bílstjóra á Aðalbílum. Hann
segir meirihluta leigubílstjóra
annt um starfið sitt og reyni að
koma vel fram við kúnnanna.
„Maður lendir í þessu sjálfur
að fara niður í Reykjanesbæ en
það er bara hluti af starfinu.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
þetta kemur fyrir þ.e.a.s. að við-
skiptavinir fái einhver ónot í
bakið yfir því að vera að fara
niður í Reykjanesbæ en sem
betur fer fara þessum skiptum
fækkandi,” sagði Ingólfur.
Um það bil 40 bílar sinna leigu-
bílaakstri hér á svæðinu og segir
Ingólfur nokkra aðila áberandi
erfiða. „Þegar þeir lenda í þessu
þá kemur það illa út fyrir stétt-
ina í heild sinni.” Ingólfur sagði
í samtali við Víkurfréttir að það
væri almennt þannig að leigubíl-
stjórar keyri viðskiptavini sína
hvert sem er án þess að segja
nokkuð um það en síðan séu
til tilvik þar sem menn hafi
ekki verið sáttir og hafi látið
viðskiptavinina finna fyrir því.
„Það hefur komið fyrir að þeir
hafi látið viðskiptavini finna
fyrir því með ökulagi, svip-
brigðum eða beinum ónotum
en svo kemur fólkið niður á
hótel og þorir náttúrulega ekki
að segja orð við bílstjórann,”
sagði Ingólfur. „Meirihluti bíl-
stjóra sinnir þessari vinnu vel
og keyrir farþega á þá staði sem
þeir vilja svo að stéttin er nátt-
úrulega ósátt við þá aðila sem
gera það ekki. Við viljum ekki
að einhverjir aðilar eyðileggi
orðspor okkar hinna, það er á
hreinu,” sagði Ingólfur.
Allir virðast þó vera sammála
um það að þegar þetta kemur
fyrir þá eru menn teknir fyrir.
Einnig hefur verið rætt um að
setja á leigubílstjóra afgreiðslu-
bann ef það endurtekur sig.
Oddgeir Garðarsson, stöðv-
arstjóri Aðalbíla, sagði menn
tekna á teppið ef þetta kemur
upp þ.e.a.s. að leigubílstjórar
neituðu viðskiptavinum far
niður í Reykjanesbæ. „Megin-
reglan er sú að viðskiptavinur-
inn fær far þangað sem þeir
vilja,” sagði Oddgeir.
Steinþór Jónsson, hótelstjóri
hjá Hótel Keflavík, segir fyrir-
tæki sitt hafa greitt tugmilljóna
króna á síðustu tuttugu árum
til leigubíl stöðva á Suður-
nesjum, fyrir utan þá gesti sem
borga sjálfir t.d. aðra ferðina.
„Það hljóta allir að sjá að þetta
er mjög mikilvægur hluti af
tekjum leigubílstjóranna þ.e.a.s.
þessi leggur á milli Reykjanes-
bæjar og flugstöðvarinnar,”
sagði Steinþór. „Það sem þarf í
fyrsta lagi er hugarfarsbreyting
hjá þeim bílstjórum sem þetta
stunda því ef þeir ætla að sleppa
þessum tekjum þá lækkar heild-
arinnkoman hjá þeim öllum.
Þó svo að þú sért ekki að fá
Reykjavíkurtúr í dag þá jafnast
þetta út í heildina,” sagði Stein-
þór og bætti því við að það
væri enginn svo óheppinn að fá
aldrei Reykjavíkurtúr. „Samein-
ing leigubílastöðvanna er löngu
tímabær en hún myndi auð-
velda öll samskipti við leigubíl-
stjóra þar sem hægt væri að tala
við þá alla í einu en ekki alltaf í
tveimur hollum. Þetta er hlutur
sem við hljótum að sjá gerast í
náinni framtíð þ.e.a.s. að þessar
stöðvar sameinist og taki alvar-
lega á þessum uppákomum og
leysi þau jafnóðum.”
Sögur um leiðinleg atvik hafa
borist hótelinu og koma þær
ekki bara frá hót el gest um
heldur líka íbúum Reykjanes-
bæjar sem eru að koma með
flugi og vilja fá far heim til sín.
„Þetta má bara aldrei koma
upp. Leigubílastöðvarnar verða
að snúa bökum saman og sýna
og sanna að þau séu að hugsa
um heimamarkaðinn númer 1,
2 og 3,” sagði Steinþór.
Forsvarsmenn allra aðila segja
þó að þessum uppákomum
fækki með árunum en ekki er
þó víst hvernig leigubílaakstur
frá flugstöð Leifs Eiríkssonar
verði eftir lagabreytingarnar
sem taka gildi 1. október. Þá
munu leigubílar frá Reykja-
vík flykkjast á Suðurnesin og
heyja harða samkeppni við
leigubílastöðvarnar á svæðinu.
Þó nokkrir af lýst áhyggjum
sínum yfir þessum lögum þar
sem talið er að leigubílstjórar af
Stór-Reykjavíkursvæðinu muni
einungis keyra til farþega til
Reykjavíkur. Ef svo er þá mun
það hafa alvarlegar afleiðingar í
för með sér fyrir ferðaþjónustu
á Suðurnesjum.
Leigubílstjórar ósáttir við vinnubrögð aðila sem koma óorði á stéttina:
Ingólfur Jónsson er formaður stéttarfé-
lagsins Fylkis sem er félag bílstjóra á
Aðalbílum. Hann segir meirihluta leigu-
bílstjóra annt um starfið sitt og reyni að
koma vel fram við kúnnanna. „Maður
lendir í þessu sjálfur að fara niður í
Reykjanesbæ en það er bara hluti af
starfinu.“
Áki Gränz, listamaður með meiru, dró fánann að húni að
þessu sinni. Ekki eru til stærri þjóðfánar á Íslandi en sá sem
flaggað er í Reykjanesbæ. Til gamans má geta þess að Áki
verður 80 ára í sumar.
atli@vf.is