Víkurfréttir - 04.08.2005, Síða 11
VÍKURFRÉTTIR I 31. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 4. ÁGÚST 2005 I 11
R&B í RNB var stofnað í júní 2004. Félagið
hélt sína fyrstu tónleikaröð í kringum Ljósa-
nótt sama ár. Og voru fengnir margir frá-
bærir tónlistarmenn til verksins s.s. Megas,
Súkkat, Páll Rósinkranz, Rúnar Júlíusson,
Jagúar, Vinir Dóra o.fl. Þótti vel til takast og
því hefur verið blásið til sóknar á ný.
Í ár hefur félagið fengið inni í Stapanum,
þar sem að á síðasta ári var uppselt á nokkra
tónleika R&B, vegna plássleysis. Var því
ákveðið að leita til forráðamanna Stapans.
Var beiðni félagsins vel tekið og ákveðið
að allir tónleikar R&B verði haldnir í Stap-
anum 1. - 3. sept., næstkomandi.
Margir af fremstu og frábærustu tónlistar-
mönnum landsins verða með í ár, og má
þar nefna Hildi Völu og KK svo einhverjir
séu nefndir, sem og sigurvegarar PRIX For-
öyjar 2005. Færeyskt blús-tríó sem kosið var
besta hljómsveit, besti bassaleikari og besti
trommari. Skemmtileg sveit þar á ferðinni
sem allir unnendur blús og rokks ættu ekki
að missa af.
Mikill kostnaður fylgir svo viðamiklu tón-
leikahaldi sem þessu. Og vill félagið þakka
öllum þeim fyrirtækjum sem styrkja R&B
í ár sem og á síðasta ári fyrir þeirra mikil-
væga framlag. Og einnig vill R&B þakka
öllum þeim sem komu á tónleika félagsins í
fyrra, fyrir frábærar móttökur.
Dagskráin okkar verður nánar auglýst um
miðjan ágúst í Víkurfréttum og í öðrum
fjölmiðlum.
En þeir sem ekki geta beðið, geta sent okkur
fyrirspurn á kkband@isl.is og fengið for-
vitni sinni svalað. Bestu kveðjur til allra Suð-
urnesjabúa nær og fjær.
Margrét Eysteinsdóttir.
Formaður R&B í RNB.
Hug inn Þór Ara son mun halda sína þriðju einka-sýn ingu “Yf ir hafn ir” í
Suðsuðvestur í Keflavík laugardag-
inn 6.ágúst kl:16.00. Huginn mun
sýna ný verk sérstaklega unnin fyrir
Suðsuðvestur. Gjörningur verður
framinn á opnunardaginn.
Um sýninguna segir Huginn m.a; “
Sem unglingur var ég alltaf hrifinn af
abstrakt málverkum, það fannst mér
vera myndlist. Þoldi t.d ekki Andy
Warhol, skildi aldrei hvað hann var
að gera eða vildi ekki skilja það . Mér
fannst fáránlegt að geta gert sjálfan sig
algjörlega að myndlistarverki. Seinna
komst ég að því að það vildi ég alltaf
gera sjálfur. Það er oft þannig með
hluti sem maður þolir ekki , maður
þráir þá. “
Huginn er fæddur 1976 í Reykjavík og
hlaut úthlutun úr styrktarsjóði Guð-
mundu Andrésdóttur á síðasta ári.
Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér heima sem og erlendis. Enn-
fremur er hann einn þriggja meðlima
Signals in the heavens sem nýverið
hélt þrjár sýningar í New York og nú
seinast í Nýlistasafninu í maí. Þess
má geta að Huginn tekur einnig þátt
í samsýningunni Tívolí sem opnar
sömu helgi í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði.
Suðsuðvestur er staðsett á Hafnar-
götu 22 í Reykjanesbær. Þar er opið
á fimmtudögum og föstudögum frá
16 - 18 og um helgar frá 14 - 17. Sýn-
ingin stendur til 28. ágúst. Nánari
upplýsingar má finna á www.sudsu-
dvestur.is
Undirbúningur tónleika vel á veg kominn
Rythma og Blúsfélag Reykjanesbæjar:
Opnun í
Suðsuðvestur
���������
�������������
��������
��������������