Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2005, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 20.10.2005, Blaðsíða 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Sýningin er opin laugardag kl. 12-16 og sunnudag kl. 13-16 HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000 www.hekla.is, hekla@hekla.is Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 · HEKLA, Borgarnesi, sími 437 2100 · HEKLA, Ísafirði, sími 456 4666 HEKLA, Reyðarfirði, sími 470 5100 · HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 · HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 Þreföld frumsýning í söluumboði HEKLU Reykjanesbæ 22. og 23. október Þriðjudaginn 25. októ-ber nk. verður haldinn hádegisverðafundur á Flughótelinu í Keflavík. Á fundinum er boðið upp á upplýsandi og fræðandi fyr- irlestur með Þorgerði Ein- arsdóttur félagsfræðingi. Á fundinum mun Þorgerður Einarsdóttir greina frá nið- urstöðum rannsókna í kynja- fræðum með áherslu á hlut- verk konunnar í samfélaginu. Fyrirlesturinn er bæði áhuga- verður og þarfur í nútíma samfélagi. Fundurinn er öllum opinn, skráning fer fram í síma 892 5863 eða með því að senda tölvupóst með nafni og síma á netfangið gudbjorg@sss.is. Að- gangseyrir er 1000 kr. og greið- ist við innganginn. Boðið er upp á léttan hádegisverð á meðan á fundi stendur. Fyrirlesari Þorgerður Einarsdóttir er fé- lagsfræðingur að mennt og hefur umsjón með kynjafræði- námi við Háskóla Ís lands. Þorgerður hefur stundað rann- sóknir út frá kynjasjónarmiði á ýmsum sviðum s.s. innan fjölskyldufræða, á fæðingar- og foreldraorlofi, vinnumark- aðsmálum og launamálum. Þá hef ur Þorgerður tek ið virkan þátt í jafnréttisumræð- unni um árabil. Fleiri viðburðir Hádegisverðarfundurinn 25. okt. nk. er hluti af þriggja ára sér verk efni á veg um Atvinnuráðgjafar SSS. Sér- verkefnið hófst með ráðstefn- unni „Konur - aukin áhrif á vinnumarkaði“. Nú er há- degisverðarfundur með Þor- gerði Einarsdóttir á dagskrá. Þá verður haldin ráðstefna í byrjun árs 2006 með áherslu á fjölskylduna og starfsframa. Leitast verður við að bjóða upp á áhugaverða og fræðandi fyrirlesara. Aðilar sem komið hafa að verkefninu eru Íslands- banki, Hitaveita Suðurnesja, Byggðastofnun, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum og Reykjanesbær. Aðalfundur Fulltrúaráðs Framsóknarfélag-anna í Reykjanesbæ var haldinn fimmtu-daginn 13. október. Eysteinn Jónsson aðstoðarmaður landbúnaðar- ráðherra var kosinn formaður Fulltrúaráðsins til næstu tveggja ára og Arngrímur Guðmundsson yfirmaður öryggissviðs Flugmálastjórnar á Kefla- víkurflugvelli var kosinn varaformaður til næstu tveggja ára. Aðrir í stjórn eru Brynja Lind Sævarsdóttir for- maður Félags ungra Framsóknarmanna í Reykja- nesbæ, Oddný J.B. Mattadóttir formaður Bjarkar, Félags Framsóknarkvenna í Reykjanesbæ og Einar Aðalbjörnsson formaður Framsóknarfélags Reykja- nesbæjar. Varamenn í stjórn eru Guðný Kristjánsdóttir vara- bæjarfulltrúi, Ólöf Sveinsdóttir og Andri Freyr Stefánsson laganemi. Á aðalfundinum opnuðu þeir Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og Hjálmar Árnason alþing- ismaður formlega heimasíðu Framsóknarfélag- anna í Reykjanesbæ xbreykjanesbaer.is. Sveitarstjórnarkosningarnar í maí á næsta ári voru aðal umræðuefni fundarins og skiptust fundar- menn einkum á skoðunum um það með hvaða fyrirkomulagi ætti að velja frambjóðendur lista Framsóknarflokksins fyrir komandi kosningar. Flestir voru á því að prófkjör væri besta leiðin við val frambjóðenda á listann. Áhugaverður há- degisverðarfundur Atvinnuráðgjöf SSS: PRÓFKJÖR BESTA LEIÐIN Framsóknarfólk í Reykjanesbæ:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.