Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.2005, Blaðsíða 25

Víkurfréttir - 20.10.2005, Blaðsíða 25
VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 20. OKTÓBER 2005 I 25 Hræ af hrefnutarfi sem hefur legið í sjónum fyrir utan Ægisgötu í Reykjanesbæ var fyrir helgi dregið út á haf og því sökkt. Það voru starfs menn Heil- brigðiseftirlits Suðurnesja sem bundu kaðal utan um sporð hrefnunnar og drógu hana út á haf en hræið hafði verið í fjöru- borðinu við Ægisgötuna frá því á mánudag í síðustu viku. Ekki gafst þó tækifæri til þess að aðhafast í málinu fyrr en nú vegna öldugangs við sjávarsíð- una en hræið var um 6 metra langt og nær óskaddað og í heilu lagi. Ferðamenn á Reykjanesi nýttu sér tækifærið í brælunni og keyrðu niður á Ægisgötu til þess að virða fyrir sér þessa stóru, tignarlegu en jafnframt dauðu skepnu. Fjöldi þeirra sem sóttu námskeið hjá Miðstöð sí mennt unn ar á Suð- urnesjum hefur aldrei verið meiri en árið 2004. Þetta kom fram á ársfundi MSS sem hald- inn var þann 29. september sl. og greint er frá á vef Reykjanes- bæjar. Starfssemin var mjög fjölbreytt á síðsta ári þ.e. námskeiðahald, fjarnám á háskólastigi og ýmis sérverkefni. Meðal verkefna sem Miðstöðin vinnur að eru lestrar- erfiðleikar fullorðinna, iðnnám fyrir ófaglærða, vika símennt- unar og símenntunaráætlun sveitarfélaganna. Mið stöð in hef ur gert tvær námskrár fyrir Fræðslumið- stöð atvinnulífs ins. Önnur námskrá in Ferðaþjónusta - laugar, lindir og böð var unnin í samstarfi við Bláa lónið. Hin námskráin, Fagnámskeið I fyrir starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, var unnin í samvinnu við HSS, Félagsþjónustu Reykjanesbæjar og Dvalarheimilis aldraða. Fjarnám á háskólastigi hefur verið stór þáttur í starfi Mið- stöðvarinnar. Um 70 nemendur stunda fjarnám í gegnum Mið- stöðina. Fram kom að aðstaða fjarnámsnemenda er að breytast um þessar mundir en samningar hafa verið gerðir um aðstöðu fyrir nemendur í Íþróttaakadem- íunni. Fjárhagsgrundvöllur Miðstöðv- arinnar var nokkuð til umræðu og voru fundarmenn sammála um að bæjarstjórnarmenn og þingmenn ættu að leggjast á eitt við að tryggja fjárhagsgrundvöll- inn, segir í fréttinni á vef Reykja- nesbæjar. Hrefnutarfur dreginn á haf út og sökkt Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja: Björgunarsveitin Suður-nes er að stofna ung-lingadeild fyrir ung- linga á aldrinum 14-16 ára (9. og 10. bekkur). Starf unglingadeilda er mest félagsstarf og útivera. Það sem unglingadeildir eru að gera er mjög fjölbreytt t.d. að fræðast almennt um björgunarstarfið, fara á námskeið í fyrstu hjálp, leit og rötun, læra á GPS tæki og áttavita og læra um með- ferð björgunarbáta. Einnig er farið í heimsóknir til annarra unglingadeilda á landinu og ýmsar aðrar ferðir. Kynningarfundur fer fram í kvöld, fimmtudaginn 20. októ- ber kl. 20 í húsi Björgunarsveit- arinnar Suðurnes að Holts- götu 51. Stofna unglingadeild Björgunarsveitin Suðurnes: Metfjöldi á námskeiðum Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum: Daglega á netinu: www.vf.is, www.vikurfrettir.is, www.kylfingur.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.