Víkurfréttir - 20.10.2005, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR I 42. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 20. OKTÓBER 2005 I 13
Karfan
Blaðauki Víkurfrétta um úrvalsdeildarlið karla og kvenna í körfuknattleik á Suðurnesjum
á Suðurnesjum
Iceland Express deildirnar komnar í gang!
Keppni í efstu deildum íslenska körfubolt-ans er hafin. Í ár bera
efstu deildir karla og kvenna
merki Iceland Express.
Nú þegar hafa verið leiknar
tvær umferðir þar sem Grinda-
vík, Keflavík og Njarðvík hafa
unnið alla sína leiki. Á síðasta
ársþingi KKÍ var samþykkt
að einungis einn Bandarískur
leikmaður mætti leika í hverju
liði. Því er ljóst að auk in
ábyrgð mun færast á ný til ís-
lensku leikmannanna en það
er einmitt það sem við viljum.
Nokkrir ungir og efnilegir leik-
menn eru að stíga sín fyrstu
skref í efstu deild og þar ber
helst að nefna strákana í U 16
ára landsliðinu sem stóðu sig
með stakri prýði á Evrópumót-
inu á Spáni í sumar. Enn og
aftur var Njarðvíkingum spáð
titlinum en þeir hafa leikið vel
í upphafi móts sem og í öllum
undirbúningsleikjunum. Frið-
rik Ingi Rúnarsson er kom-
inn á ný við stjórnartaumana
hjá Grindvíkingum en hann
þjálfaði liðið þegar það land-
aði sínum fyrsta Ís lands-
meistaratitli. Keflvíkingar,
meistarar síðustu þriggja ára,
munu á ný taka þátt í Evrópu-
keppninni en margir töldu að
þátttaka liðsins í keppninni í
fyrra myndi verða þeim dýr-
keypt. Annað kom þó á dag-
inn. Verði Keflvíkingar Íslands-
meistarar á þessari leiktíð
er það í fyrsta sinn frá árinu
1987 sem einu liði tekst að
vinna titilinn fjórum sinnum í
röð. Það gerðu Njarðvíkingar
á árunum 1984-1987 ásamt
því að verða deildarmeistarar
öll skiptin. Verum dugleg að
mæta á leiki okkar liða í vetur
og sjáum til þess að „dollan”
verði áfram á Suðurnesjum.
Suðurnesjaliðin
byrja leiktíðina vel
Iceland Ex press-deild kvenna hefur farið fjör-lega af stað og virðist
sem framþróunin sem hefur
orð ið í kvenna körf unni
síðustu ár sé síður en svo í
rénun.
Nokkurn skugga ber þó að
keppnina að Suðurnesja-
liðum hefur fækkað um eitt.
Njarðvík dró lið sitt úr keppni
vegna manneklu, en eins leitt
og það var er engin ástæða til
að vænta annars en að stærstu
titlarnir geti endað hér á Suð-
urnesjum líkt og hefð hefur
verið síðustu ár.
Íslandsmeistar Keflavíkur
tefla fram firnasterku liði sem
endranær og eins hafa Grind-
víkingar góðan kjarna af leik-
mönnum sem geta staðið í
öllum liðum deildarinnar, þar
með talið meisturunum.
Keflavík hélt sama mann-
skap og þær voru með síð-
asta vetur, en nú hafa bæst
við tvær ungar og efnilegar
stúlkur, þær Ingibjörg Elva
Vilbergsdóttir og Margrét
Kara Sturludóttir úr Njarðvík.
Auk þess sneri Reshea Bristol
aftur til liðsins, en hún var
öðrum fremur lykillinn á bak
við frábæra byrjun Keflavíkur-
stúlkna á síðasta ári.
Í Grindavík er sjónarsviptir
af allnokkrum lykilmönnum
síðasta árs sem hafa tekið sér
frí frá íþróttinni, en í þeirra
stað eru komnar þær Hildur
Sig urð ar dótt ir og Jer ica
Watson. Hildur er alvön lands-
liðmanneskja sem er komin
aftur til landsins úr atvinnu-
mennsku og Watson er gríð-
arlega öflugur leikmaður sem
á vafalaust eftir að láta mikið
að sér kveða.
Liðin tvö eru tvímælalaust í
hæsta styrkleika í deildinni,
en það er fullvíst að þau lið
sem setja markið á Íslands-
meistara tit il inn þurfa að
leggja Keflvíkinga að velli.
Hvort það tekst kemur í ljós á
vormánuðum.
Kvennakarfan
styrkist enn