Víkurfréttir - 27.10.2005, Page 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Skráningar í síma 847 6144 eða 421 6158
NÁMSKEIÐ
Í ÞRÝSTIPUNKTAMEÐFERÐ
Birgitta Jónsdóttir Klasen
náttúrulæknir
og rithöfundur
Birgitta Jónsdóttir Klasen heldur
námskeið í þrýstipunktameðferð og
um heilsu og næringu á Flughótelinu
miðvikudaginn
2. nóvember frá kl. 19-21.
Námskeiðsgjald kr. 3000,-
Síðasta námskeið fyrir jól!
Clint Eastwood mun gera tvær kvikmyndir um innrásina á Kyrrahafs-
eyjuna Iwo Jima. Sem kunnugt
er voru umfangsmikil atriði úr
myndinni Flags of our Fathers
tekin í Sandvík á Reykjanesi
og í Krýsuvík nú síðsumars.
Tök um á þeirri mynd mun
ljúka síðar í þessum mánuði í
Chicago í Bandaríkjunum.
Clint Eastwood hef ur lengi
viljað sýna báðar hliðar árásar-
innar á Iwo Jima en hann vildi
ekki gera það á þann hátt að
stökkva fram og til baka yfir víg-
línuna. Clint Eastwood ræddi
við Paul Haggis, sem skrifaði
kvikmyndahandrit Flags of our
Fathers, og vildi fá hann til að
skrifa handrit út frá sjónarhorni
Japana. Haggis var hins vegar
yfirbókaður og því fékk Clint
handritshöfund af japans-banda-
rískum ættum, Iris Yamashita,
til að vinna kvikmyndahand-
ritið. Yamashita vann einnig að
Flags of our Fathers.
Kvikmyndin sem sýnir bar-
dagann um Iwo Jima frá sjón-
arhorni Japana heitir Lamps
Before the Wind og munu
tökur á henni hefjast í febrúar á
næsta ári. Sagan hefst á bardaga
í svörtum sandi Iwo Jima, en
þær senur voru allar kvikmynd-
aðar í Sandvík á Reykjanesi. Það
er því spurning hvort Eastwood
sé aftur á leiðinni til Reykjanes-
bæjar með kvikmyndatökulið
til þess að taka upp bardagana
frá öðru sjónarhorni?
Myndirnar verða síðan báðar
frumsýndar næsta haust.
Kemur Clint aftur í svarta
sandinn á Reykjanesi?
Eastwood gerir aðra mynd um innrásina á Iwo Jima: