Víkurfréttir - 15.12.2005, Side 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Elsku Trausti Fannar.
Hamingjuóskir með 4 ára
afmælið. Kveðja frá mömmu,
Bjössa og Elísabetu.
Sunnudaginn 18. desember
verður Sigurbjörg Ragnarsdóttir
spákona/miðill fimmtug. Hún
tekur á móti gestum þann sama
dag að Urðarbraut 7 í Garði eftir
kl. 14. Allir sem Sigurbjörgu
þekkja er boðið að þiggja léttar
veitingar á afmælisdaginn.
Afmæliskveðjur
Fyrsta Evrópuferðin í Jólalukku Víkurfrétta 2005 kom upp á miða sem afhentur var ungri konu í versluninni Kóda síðastliðinn mánudag. Þetta er fyrsta ferðin
sem gengur út svo vitað sé, enn eru 15 ferðir í boði og því
gæti það gefið vel að gera jólainnkaupin hér heima. Meðal
þeirra vinninga sem enn eru í boði er sófasett frá Bústoð að
verðmæti kr. 100.000, fartölva frá Tölvulistanum að verðmæti
kr. 85.000, fjöldi leikfanga, rafmagnstækja og búsáhalda frá
Byko, inneignir frá verslunum, 2 ltr. Coke, Coke Light eða
Egils appelsín, áskriftir að Sýn og konfektkassar, hangikjöt,
svínahamborgarhryggir og fjöldi annarra vinninga frá Kasko.
Yfir 5100 vinningar eru í boði og því eftir nógu að sækjast.
Fékk Evrópuferð
á Jólalukku í Kóda
- ennþá 15 ferðir í pottinum!
Víkurfréttir eiga eftir að gefa út tvö blöð á þessu ári. Næsta blað verður á
miðvikudaginn, 21. desember,
eða degi fyrr en vanalega.
Skilafrestur á auglýsingum í
það blað er næsta mánudag.
A ð v e n j u g e f u m v i ð ú t
myndarlegt áramótablað en það
kemur út fimmtudaginn 29.
desember. Vegna frídaga er ráð
að panta auglýsnigar í það blað
í tíma.
Víkurfréttir koma næst
á miðvikudaginn og
veglegt áramótablað
- síminn er 421 0000