Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.12.2005, Blaðsíða 38

Víkurfréttir - 15.12.2005, Blaðsíða 38
38 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! skipti við. Eftir að verkefninu lauk voru aðstandendur mynd- arinnar einnig sammála um það að Suðurnesjamenn eru full- færir um að taka að sér svona stórt verkefni sem kvikmyndin The Flags of our Fathers er. Sem dæmi um umstangið í sumar í Sandvík, þá voru þar 1200 manns samtímis þegar mest var í sumar. Það lætur nærri að vera eins og allir íbúar Garðs. Tómas fékk björgunar- sveitir á Suðurnesjum til að sjá um öryggismál á sjó en fylgja þurfti öllum prömmum á milli Sandvíkur og Hafna, þar sem búnaðurinn var geymdur á næt- urna. Á stærstu tökudögum voru yfir 20 skip og bátar af öllum stærðum og gerðum við Sandvíkina. Þá voru hótelin í Reykjanesbæ full af fólki sem tengdist kvikmyndatökunni í sex vikur. Tómas sagði þá Hollywood- menn hafa lagt mesta áherslu á öryggismál, enda hafi aðeins orðið nokkur smáóhöpp við sjálfa kvikmyndatökuna. Einn snérist á ökkla og annar brenndi sig á pústi. Ómetanleg reynsla Tómas segir að starf ið við kvikmyndatökuna í Sandvík hafi verið ómetanleg reynsla. Hollywood-menn hafi lausnir á öllum hlutum en eitt var það sem þeir kunnu engar lausnir á, en það var hin alíslenska veð- rátta. Þannig kom djúp lægð upp að landinu á sama tíma og það var stórstreymt. Það var ekki að spyrja að því að Sandvík breytti um svip á einum degi. Þúsundir tonna af sandi færð- ust til og jafnvel birgi fylltust af sandi. Það tók tvo sólarhringa að gera ströndina starfhæfa aftur eftir þau ósköp. Clint Eastwood kynnti sér Bláa herinn Tómas segist hafa kynnst mörgu skemmtilegu og áhugaverðu fólki. Hann hafi kynnst leik- urum og jafnvel talað talsvert við sjálfan leikstjórann, Clint Eastwood. Clint var hrifinn af því sem hann upplifði hér á Reykjanesi og hann lýsti einnig ánægju sinni með það starf sem Tómas var að vinna í umhverfis- málum. Blái GMC trukkurinn sem Blái herinn notar í sín verk var með hlutverk í Sandvík og Clint var hrifinn af bílnum, sem var innan um „vini sína og jafn- ingja” sem voru leikmunirnir frá tímum síðari heimsstyrjald- arinnar. Þegar Clint lauk sínu starfi í Sandvík færði Tómas honum tvo hluti frá Suður- nesjum. Mynd af gestaspori Reykjanesbæjar, sem steypt var í stéttina framan við Sambíóin í Reykjanesbæ og áritaða ljós- myndabók Oddgeirs Karlssonar um Reykjanes. Við þetta tæki- færi bað Clint Eastwood Tómas um kveðju til Reykjanesbæjar. Sagði hann það mikinn heiður að fá þessa viðurkenningu bæj- arins og eins var hann ánægður með baráttuna fyrir umhverfis- málum og hreinsun hafsins. Eignaðist þrjá áberandi leikmuni Þegar tökum á myndinni var lokið fékk Tómas að eiga þrjá leikmuni sem notaðir voru í myndinni og eru áberandi leikmunir af ströndinni í Sand- vík. Um er að ræða herjeppa, sjúkrabíl og bílbát. Þetta eru allt ógangfærir bílar sem stendur en hver veit nema blásið verði í þá lífi við tækifæri og þó síðar verði. Uppi eru hugmyndir um að sýna þessa gripi í Reykja- nesbæ þegar kvikmyndin kemur hingað til sýninga á næsta ári. Tómas segir að framleiðendur myndarinnar hafi mikið lagt upp úr umhverfissjónarmiðum og í upphafi var tekið frá fjár- magn til að nota við uppgræðslu á sárum eftir tökurnar. Tómas vill jafnframt meina að bæði Krýsuvík og Stóru-Sandvík hafi verið í betra ásigkomulagi eftir kvikmyndaverkefnið en fyrir það. Nokkrir aðilar höfðu sig einnig mjög í frammi varðandi umhverfismálin í Krýsuvík við upphaf verkefnisins og segir Tómas þá uppákomu ekki verið þeim aðilum til framdráttar. Því svæði var skilað í mun betra ástandi en áður og sama má segja um Sandvík. Þar var fjar- lægt meira af rusli en komið var með inn á svæðið. Kominn á fjárlög En aft ur að Bláa hern um. Tómasi eru umhverfismálin hugleikin og fannst vænt um þá viðurkenningu sem Víkurfréttir veittu honum í ársbyrjun. Enn frekari staðfesting þess að Blái herinn er á réttri braut fékkst þegar Ungmennafélag Íslands og Pokasjóður veittu Tómasi viðurkenningu á árinu fyrir umhverfismál. Þá hefur um- hverfisráðherra, Sigríður Anna Vi ðt al : H ilm ar B ra gi B ár ða rs on • M yn di r: Úr e in ka sa fn i Skriðdreki sem er jafnvígur á sjó og landi undan ströndum Sandvíkur við tökur á stórmynd Clint Eastwood sl. sumar. Ein af mörgum stórglæsilegum myndum Charles Hood, sem hann tók af Tómasi í Þingvallavatni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.