Víkurfréttir - 15.12.2005, Page 61
VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ • JÓLABLAÐ I I FIMMTUDAGURINN 15. DESEMBER 2005 I 61
M
yn
di
r:
J
ac
qu
el
in
e
D
ow
n
ey Bretlandseyjar:
Vísindamenn vara við að þeim ung-
mennum sem reglulega neyta kanna-
bisefna sé töluverð hætta búinn á að
verða fyr ir and-
legum/geðrænum
röskunum, síðar á
lífsleiðinni. Telja
þeir efnið hafa svo
alvarleg áhrif á heil-
ann að það sé talin
helsta orsök geð-
rænna vandamála,
á Bretlandseyjum
í dag.
D r . S t a n l e y
Zammit, sérfræðingur í lyfjarann-
sóknum, greindi nú nýlega frá rann-
sóknum sínum á ráðstefnu BUBA
Foundation. Þar sýndi hann fram á að
þau ungmenni sem notað höfðu kanna-
bisefni allt að 50 sinnum eða oftar fyrir
18 ára aldur væru þrefalt líklegri til að
þróa með sér geðvandamál síðar á æv-
inni en aðrir, þar sem heili þeirra væri
ennþá á þroskastigi og því berskjaldaðri
fyrir eyðingarmætti efnisins. Töluverðar
líkur væru því á að efnið hefði alvarleg
áhrif á þroska unglinga sem neyta þess.
Þær væru þó töluvert minni hjá þeim
sem notað höfðu efnið 10 sinnum eða
sjaldnar fyrir 18 ára aldur.
Dr. Zammit benti því jafnframt á að
auðveldlega væri hægt að koma í veg
fyrir að fjöldinn allur af ungmennum
skaðaðist varanlega ef efnið væri ekki í
boði á meðal þeirra. Í ljósi þessa hljóti
ofangreindar niðurstöður að vera mjög
mikilvægar, ekki eingöngu frá heilbrigð-
islegu sjónarmiði heldur einnig félags-
legu. Vegna rannsókna sinna hefur Dr.
Zammit nú nýverið fengið viðurkenn-
ingu og styrk til enn frekari rannsókna
á efninu en aðrar nýlegar rannsóknir
hafa einnig sýnt fram á sterk tengsl
milli neyslu kannabisefna og aukinnar
áhættu á öðrum heilsufars- og félags-
legum vandamálum. Aðrar viðvaranir
vísindamanna um skaðsemi kannabis
hafa leitt í ljós, eftir miklar rannsóknir
á eituráhrifum þess, að THC (tetra-
hydrocannabinol), sem er virka vímu-
efnið úr plöntunni, ákvarðar vímuna
með því að hafa áhrif á efni í heilanum,
sem senda boð frá einni frumu til ann-
arrar. Eiturefnið THC er eftir vinnslu
mun sterkara en það var fyrir nokkrum
áratugum og skaðsemin því að sama
skapi mun meiri.
Umræðan um lögleiðingu
Í byrjun s.l. árs var samþykkt á breska
þinginu að færa kannabisefnin niður
úr áhættuflokki B yfir í flokk C. Efnið
flokkast því nú m.a. með sterum, róandi
lyfjum og sterkum verkjalyfjum, sem
allt eru lögleg en lyfseðilsskyld. Nýju
lögin heimila þó ekki ungmennum
undir 18 ára aldri að nota kannabisefni.
Gríðarlegt magn kannabisefna er árlega
notað á Bretlandseyjum. Kannanir hafa
leitt í ljós, að þriðjungur allra 15 ára
ungmenna hafa prófað efnið. Háværar
raddir eru uppi um, í þjóðfélaginu, að
ítarleg rannsókn hefði átt að hafa farið
fram, áður en lögunum var breytt þann
24. janúar 2004. Þeirri rannsókn hefði
svo átt að hafa verið fylgt eftir, með
fræðslu og forvörnum. En fram hefur
komið að misbrestur hafi orðið á þeirri
eftirfylgni.
Helstu fylgismenn breytinganna töldu
tíma lögreglunnar betur varið í að eltast
við þá sem meðhöndluðu sterkari fíkni-
efni. Með breytingunum varð aðgengi
því einfaldara að efninu ásamt því að
raddir fyglismanna fyrir skaðleysi þess,
urðu háværari.
„Hins vegar, eftir einungis rúmlega árs
reynslu af nýju löggjöfinni, telur Tony
Blair, forsætisráðherra, að nauðsynlegt
sé að endurskoða hana. Hún hafi svo
ekki verði um villst gefið út röng og vill-
andi skilaboð til ungmenna og breytt
ástandi þar í landi, til hins verra. “
HLÚUM AÐ ÆSKUNNI
BYGGJUM HENNI BJARTA
FRAMTÍÐ!
Þýtt og staðfært að hluta
úr bresku pressunni.
Reykjanesbær, nóvember 2005
Elías Kristjánsson,
foreldri og áhugamaður um
fíkniefnaforvarnir.
UNGLINGAR OG KANNABIS
HEILINN ENNÞÁ AÐ ÞROSKAST!