Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 30.12.2003, Blaðsíða 2
➤ G L Æ N Ý U P P S K E R A Í S A N D G E R Ð I ➤ T V Ö J Ó L A B Ö R N F Æ D D U S T Á H E I L B R I G Ð I S S T O F N U N S U Ð U R N E S J A ➤ S O R P H I R Ð A Á S U Ð U R N E S J U M stuttar f r é t t i r 2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson Fjölmörg umferðarslys um jólin á Suðurnesjum Sex umferðaróhöppurðu í umdæmi lög-reglunnar í Keflavík frá því skömmu fyrir mið- nætti á aðfangadagskvöld og þar til um miðjan dag á jóladag. Laust fyrir kl. 23 á aðfangadagskvöld var jeppabifreið ekið á ljósa- staur. Tveir menn voru í bílnum og var ökumaður- inn, maður á miðjum aldri, fluttur á slysadeild. Á fjórða tímanum á jólanótt valt fólksbifreið á Hafnavegi. Ökumaður, 18 ára piltur, var fluttur á sjúkrahús. Um átta- leytið á jóladagsmorgun fór svo bíll út af Reykjanesbraut- inni en ökumaður slasaðist ekki. Í kringum hádegi í gær fór jeppabifreið útaf Grindavíkur- vegi og valt en ekki urðu slys á fólki. Klukkan 13.30 lenti fólksbifreið út af Garðvegi og ökumaður var fluttur á slysa- deild en var ekki talinn mikið slasaður en bifreiðin skemmdist mikið. Fjórum mínútum eftir þetta rákust saman fólksbíll og sendibíll á Reykjanesbraut austan við Vogaveg en engin slys urðu á farþegum en bílarnir lentu utan vegar og skemmdust töluvert. F jögur tilboð bárust ísorphirðu á Suðurnesj-um en tilboðin voru opn- uð 22. desember sl. Lægsta til- boðið barst frá Gáma- og tækjaleigunni ehf. á Fáskrúðs- firði upp á 794.040 kr. fyrir hverja sorphreinsun. Gert er ráð fyrir því að sorphirða eigi sér stað á tíu daga fresti, þannig að sorp er tekið frá heimilum 37-38 sinnum á ári. Næst lægsta tilboðið átti Suð- urvirki upp á 835.140 kr., Njarðtak var með þriðja lægs- ta tilboðið uppá 849.150 kr. og Íslenska gámafélagið bauð 933.600 kr. í verkið. Kostnaðar- áætlun Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja hljóðaði upp á 950.000 kr. Næsta skref í málinu er að óska eftir gögnum um lægstbjóðanda en niðurstöðu er að vænta á milli hátíða hvaða tilboði verður tekið. Þrettán aðilar sóttu útboðsgögn í þessu útboði sem samkvæmt kostnaðaráætlun kostar sorphirða 180 milljónir króna á fimm ára tímabili. Teknar voru upp síðustukartöflurnar úr garðin-um hjá Birni Maronssyni og Lydíu Egilsdóttur í Sand- gerði á aðfangadag, sannkall- aðar jólakartöflur. Kartöflurn- ar voru stórar og fallegar og voru þær notaðar í jólamatinn. Þau hjónin hafa ræktað kartöflur í garðinum hjá sér í áraraðir og segir Björn að þetta sér í fyrsta sinn sem kartöflur séu teknar svo seint upp úr garðinum. „Frostið hefur aðeins náð að skemma efstu kartöflurnar, en þessar sem ég náði upp voru stórar og falleg- ar. Þær voru fínar í uppstúfið með hangikjötinu á jóladag,“ sagði Björn í samtali við Víkur- fréttir. Íbúum í Garði fjölgar ört Nú liggja fyrir upplýs-ingar frá HagstofuÍslands um íbúa- fjölda í Garði miðað við 1. des. 2003. Íbúar í Garði eru 1283 en voru 1. des. 2002 1237. Íbúum hefur því fjölg- að um 46 eða um 3,72 %. Jólakartöflur á aðfangadag Víkurfréttamynd: Hilmar Bragi Bárðarson Lægsta tilboðið kom frá Fáskrúðsfirði Jólabörnin á Suðurnesjumeru tvö að þessu sinni,bæði fædd á jóladag. Fyrra barnið var stúlka, fædd kl. 13:15. Foreldrar hennar eru Inga Björg Símonardóttir og Ekasit Thasaphong í Grinda- vík. Seinna jólabarnið var hins vegar drengur sem fæddist þegar klukkuna vantaði 20 mínútur í níu á jóladagskvöld. Hann var 14.5 merkur og 54 sentimetrar. Foreldrar hans eru Kristinn Sörensen og Margrét Mary Byrne. Kristinn á fyrir þrjú börn en Margrét Mary eitt. Báðum jólabörnunum heilsast vel. Stúlkan úr Grindavík var farin heim með foreldrum sínum þegar ljósmyndari átti leið um fæðingardeildina. Jóladrengurinn var hins vegar klæddur í jólasveinabúning og er á með- fylgjandi mynd með foreldrum sínum sl. sunnudag.Lítill jólasveinn! 1. tölublað Víkurfrétta 2004 Þetta tölublað Víkurfrétta er 1. tölublað ársins 2004, þó svo enn lifi um tveir sólarhringar af árinu 2003. Ástæðan er sú að þessi vika er fyrsta vika ársins 2004 samkvæmt dagatali. Vík- urfréttir reyna ávallt að láta tölublöð og vikunúmer fylgjast að, enda einfaldar það bókanir á auglýsingum. Fyrsta blaðið á nýja árinu, þann 8. janúar, kemur því í annarri viku og verður því 2. tölublað. Við opnum aftur skrifstofur blaðsins á föstudaginn kl. 09. Jólakartöflurnar voru stórar og fallegar þegar Björn Maronsson tók upp úr garðinum á aðfangadag. 1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 14:30 Page 2

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.