Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.12.2003, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 30.12.2003, Qupperneq 4
4 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Skólaslit haustannar ogbrautskráning Fjöl-brautaskóla Suðurnesja fór fram laugardaginn 20. des- ember. Að þessu sinni útskrif- aðist 61 nemandi; 38 stúdentar, 5 meistarar, 14 iðnnemar og 7 útskrifuðust af starfsnáms- brautum. Nokkrir nemendur brautskráðust af tveimur eða fleiri námsbrautum. Karlar voru 31 en konur 30. Alls komu 40 úr Reykjanesbæ, 6 úr Garði og 4 komu úr Grindavík og Sandgerði. Nemendur úr sveitarfélögum utan Suður- nesja voru 7 talsins. Við athöfnina voru veittar viður- kenningar fyrir góðan námsár- angur. Andri Axelsson fékk við- urkenningu fyrir góðan árangur í ensku og Ásta Mjöll Óskarsdóttir fyrir góðan árangur í listum. Daníel Pálmason fékk viður- kenningar fyrir góðan árangur í spænsku og íþróttum. Finna Pálmadóttir hlaut verðlaun fyrir árangur sinn í frönsku og líffræði og efnafræði. Gísli Valgeirsson fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í ensku og sálfræði. Guðni Sigurbjörn Sigurðsson hlaut verðlaun fyrir árangur í byggingagreinum og Þóra Brynjarsdóttir fyrir árangur sinn í þýsku. Jónína Steinunn Helga- dóttir og Kristín Erla Ólafsdóttir fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í íþróttum. Þá fengu þeir Kristján Þór Karlsson og Harald- ur Haraldsson viðurkenningu frá skólanum fyrir störf í þágu nem- enda öldungadeildar. Að venju veitti Sparisjóðurinn í Keflavík nemendum skólans við- urkenningar fyrir góðan námsár- angur. Að þessu sinni hlaut Daní- el Pálmason viðurkenningu fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi og Gísli Valgeirsson hlaut viður- kenningu fyrir góðan árangur í erlendum tungumálum. Kristinn Einarsson fékkfyrir jól afhent aðal-verðlaunin í jólaleik Húsasmiðjunnar. Í verðlaun var glænýr Electrolux kæli- skápur að verðmæti um 100.000 kr. Leikurinn, sem fór fram í öll- um verslunum Húsasmiðjunn- ar, fólst í því að þátttakendur giskuðu á hversu margar skrúf- ur væru í glerkrukku sem kom- ið var fyrir í hverri Húsa- smiðjuverslun. Sá sem kæmist næst réttum fjölda væri sigur- vegarinn. Kristinn afrekaði það að giska nákvæmlega á fjöldann í krukkunni svo ekki munaði einni einustu skrúfu. Sæmilegt afrek það. Aðspurður sagðist Kristinn ekki hugsa sér að ger- ast farandgiskari að atvinnu, en miðað við frammistöðu hans telja Víkurfréttir að hann sé efnilegur á þeim vettvangi! Á myndinni sést Kristinn taka við verðlaununum úr hendi Árna Júlíussonar, verslunarstjóra. Lögregla skarst í leikinnþegar hópur ungmennahafði safnast saman í miðbæ Grindavíkur um mið- nætti á jóladagskvöld og kveikt þar í bálkesti. Tveir voru hand- teknir eftir að hafa reynt að hindra lögreglu en eldurinn var slökktur og hópnum dreift. Þetta er fjórða árið í röð sem lögregla þarf að hafa afskipti af ungmennum vegna óspekta af þessu tagi um jól. Fólkið hafði staflað upp vörubrettum og kveikt í. Annar hinna handteknu, Þorkell Magnússon, sagðist í samtali við Víkurfréttir vera ósáttur við handtöku lögreglunnar. Hann hafi ekki kveikt eldinn, heldur eingöngu spurt lögreglu hvað hún myndi gera ef hann kveikti í brennunni. Hann sagði þessa brennu vera árlega uppákomu að kvöldi jóladags en þetta var í fjórða skiptið sem kveikt er í bál- kesti í Sólarvéinu í Grindavík. Aðspurður hvers vegna ekki sé sótt um leyfi fyrir brennunni, sagði Þorkell, að þetta væri úti- vistarsvæði og þarna væri tilbúið eldstæði og þess vegna væri ekki sótt um sérstakt brennuleyfi. Þor- kell sagði að þarna yrði aftur slegið upp bálkesti að ári en á jóladagskvöld voru um 150 ung- menni á staðnum. ➤ F J Ö L B R A U TA S K Ó L I S U Ð U R N E S J A Ú T S K R I F A R 6 1 N E M A N D A ➤ E L D A R B R E N N A Í G R I N D A V Í K Á J Ó L U M Daníel Pálmason með hæstu einkunn á stúdentsprófi Unnið við hættulegar aðstæður í flughálu Berginu Vinningshafi í Jólaleik Húsasmiðjunnar: Vissi svarið upp á skrúfu! Þorkell Magnússon á staðnum þar sem 150 ungmenni komu saman á jóladagskvöld og kveiktu eld. Ætla að kveikja eldinn aftur að ári Víkurfréttamynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson Það getur verið glæfralegt að skipta um perur í ljósun- um á berginu, en það er fyrirtækið Nesraf sem sér um peruskiptin. Hjörleifur Stefánsson rafverktaki og Gestur Eyjólfsson starfsmaður í Nesraf fóru út á berg fyrir jólin til að skipta um peru í einu ljósinu. Að sögn Hjörleifs eru alltaf tveir menn á ferð til að skipta um perur á berginu því erfitt getur verið að komast að perustæðunum. „Við erum alltaf með taugar festar í okkur og hættum ekki á neitt,“ segir Sveinbjörn en venjulega þarf að skipta um fimm perur á ári. „Í ár höfum við skipt um sjö perur og er það meira en venjulega. Hugsanlega eru þetta perur sem hafa verið frá upphafi.“ Ljósin á berginu setja mik- inn svip á Keflavík, enda eru þau eitt helsta vörumerki ljósnætur. TÓNLEIKAR Í FRUM- LEIKHÚSINU Í KVÖLD Guðmundur Hreinsson og dóttir hans Jana María verða með tónleika í Frumleikhúsinu í kvöld, þriðjudaginn 30. des. Þar flytja þau frumsamin lög og texta eftir Guðmund ásamt lögum við texta eftir leikarann og hirðskáldið Ómar Ólafsson. Tónleikarnir hefjast kl. 20.Aðgangseyrir er 800 kr.Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 14:50 Page 4

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.