Víkurfréttir - 30.12.2003, Síða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
N ú í jólamánuðinum fórbrautskráning nemendaLögregluskóla ríkisins
fram við hátíðlega athöfn í Bú-
staðakirkju í Reykjavík. Að
þessu sinni voru brautskráðir
37 nemendur en þeir hófu nám
við skólann í janúarbyrjun
2003. Nemendur af Suður-
nesjum voru að gera góða hluti
í skólanum í ár og röðuðu sér í
toppsæti í einkunnum, auk
þess sem lögreglumaður
skólans er einnig af Suður-
nesjum.
Í ræðu skólastjóra Lögregluskól-
ans, Arnars Guðmundssonar,
rakti hann m.a. starfsemi og
starfsaðstöðu skólans á þessu ári
og nefndi þar sérstaklega aukn-
ingu í framhaldsmenntun lög-
reglumanna.
Arnar beindi þeim orðum sínum
til brautskráningarnemendanna
að það væri ekki nóg að afla sér
þekkingar því að framundan væri
í lögreglustarfi þeirra að breyta
þekkingunni yfir í hegðun og að
hver og einn, sem sinnti lög-
reglustarfi, yrði hverju sinni að
gera réttu hlutina. Arnar sagði að
það gæfi auga leið að rétt vinnu-
brögð lögreglu, vel uppfærðar,
vandaðar og umfram allt réttar
skýrslur lögreglu um viðfangs-
efni sín, þar sem lögreglan lýsti
því hvernig hún gerði rétta hluti á
réttan hátt, skiptu sköpum til að
rétt og trúverðug afgreiðsla og
meðferð mála ættu sér stað hjá
ákæruvaldi og síðan hjá dóms-
valdi. Íslenskt réttarkerfi byggði
á þeirri grundvallarreglu að í op-
inberum málum skyldi upplýsa
sannleikann.
Í lok ræðu sinnar lagði skólastjóri
á það áherslu við væntanlega
lögreglumenn að þeir nytu lög-
reglumenntunarinnar og vonaði
að þeir yrðu trúverðugir málsvar-
ar hennar. Hann bað þá að njóta
ánægju í lögreglustarfi, stunda
réttu vinnubrögðin og vanda
framkomu sína en það réði mestu
um árangur þeirra í starfi. Bað
hann þá sérstaklega að sýna hátt-
vísi og vera heiðarlega lögreglu-
menn.
Björn Bjarnason, dómsmálaráð-
herra, hélt ræðu við brautskrán-
inguna og sagði m.a. frá því að
lögreglustarfið væri mikils metið
meðal Íslendinga og fáar stofnan-
ir þjóðfélagsins nytu meira
trausts en lögreglan. Í því fælist
þess vegna ekki lítil ábyrgð, að
slást í hóp þeirra sem hafa aflað
lögreglunni þessa trausts. Brýndi
hann því fyrir nemendunum að
mikið væri í húfi að ekki félli
blettur á hinn góða starfsheiður
lögreglunnar og fyrir hann skyl-
du þeir ganga fram af stolti og
virðingu. Sömuleiðis hvatti
dómsmálaráðherra unga og fers-
ka lögreglumenn til að láta að sér
kveða við mótun framtíðarinnar
á starfsvettvangi sínum.
Hæstu meðaleinkunn á lokapróf-
um náði Einar Júlíusson en hann
náði meðaleinkunninni 9,15. Í
næstu sætum þar á eftir voru
Heiða Rafnsdóttir með meðalein-
kunnina 9,06 og Bjarney Sólveig
Annelsdóttir með meðaleinkunn-
ina 8,85. Meðaleinkunn allra
nemendanna var 7,97.
Dómsmálaráðherra afhenti fjór-
um nemendum sérstaka viður-
kenningu fyrir að ná glæstum ár-
angri í íslensku. Þessir nemendur
eru Eiríkur Rafn Rafnsson,
Heiða Rafnsdóttir, Maríanna
Said og Olivera Ilic.
Þeir lögreglufulltrúar sem starfa
við Lögregluskólann völdu úr
hópi nemenda „Lögreglumann
skólans” og varð Bjarney Sólveig
Annelsdóttir fyrir valinu.
Við athöfnina hélt Jóhannes
Snævar Harðarson ræðu fyrir
hönd nemenda og Lögreglukór
Reykjavíkur söng tvö lög. Þess
ber að geta sérstaklega að með
kórnum sungu þrír kennarar
skólans og fimm nemendur auk
þess sem einn þeirra fimm spil-
aði á trompet með kórnum í öðru
laganna.
Þeir 37 nemendur sem voru
brautskráðir að þessu sinni hafa
lokið grunnnámi frá Lögreglu-
skóla ríkisins og öðlast þekkingu
til að takast á við öll almenn lög-
gæslustörf. Þeir geta nú sótt um
þær lausu stöður lögreglumanna
sem í boði eru og, eins og fram
kom í ræðu dómsmálaráðherra,
er langþráð markmið að nást því
að í landinu er nú lögreglumennt-
að fólk fyrir hendi til að skipa all-
ar stöður lögreglumanna.
➤ B R A U T S K R Á N I N G F R Á L Ö G R E G L U S K Ó L A R Í K I S I N S
Nemendur af Suðurnesjum í öllum toppsætum skólans
Kunnugleg andlit úr lögreglunni á Suðurnesjum. Bjarki Sigurðsson, Bjarney Sólveig
Annelsdóttir, Brynjar Stefánsson, og Einar Júlíusson.
Hinrik Konráðsson og Bjarney Sólveig Annelsdóttir á góðri stundu.
Jóhannes Harðarson hér næstur
ljósmyndaranum. Hann flutti
ræðuna fyrir hönd nemenda.
Næsta blað 8. janúar 2004
Auglýsingasíminn
er 421 0000
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 15:01 Page 6