Víkurfréttir - 30.12.2003, Qupperneq 8
UNDANFARNIR DAGAR voru hátíðlegir
hjá Kallinum. Hangikjöt og svínahamborgar-
hryggur á borðum um hátíðarnar, auk laufa-
brauðs og fjölda teg-
unda af smákökum.
Kallinn er ekki frá
því að hafa fitnað
yfir hátíðarnar.
OG KALLINN
FÉKK nokkra jóla-
pakka - harða sem
innihélt bækur. Með-
al annars fékk Kallinn hina stórgóðu bók Úlf-
ars Þormóðssonar, Hrapandi jörð sem fjallar
m.a. um afdrif Járngerðarstaðaættarinnar úr
Grindavík í Tyrkjaráninu. Kallinn er búinn
með þá bók - og finnst hún stórgóð. Kallinn
fékk líka ævisögu Elínar Pálmadóttur blaða-
manns á Morgunblaðinu. Stórmerkileg kona
og Kallinn hlakkar mikið til að lesa hana.
ROSALEGA ER KALLINN ánægður með
bæjarstjórn Sandgerðis sem hefur hug á að
kaupa til baka allan Miðneskvótann sem
hvarf frá Sandgerði til Akraness á sínum tíma.
Um er að ræða nokkur þúsund þorskígildis-
tonn sem myndu bæta stöðu Suðurnesja til
muna kæmu þau aftur. Kallinn hefur heyrt frá
ýmsum aðilum í Sandgerði og allir eru gríð-
arlega ánægðir með þá ákvörðun bæjarstjórn-
arinnar að leita eftir samningum við Brim um
kaup á kvótanum.
KALLINN vonar að önnur sveitarfélög og
fyrirtæki á Suðurnesjum taki höndum saman
við Sandgerðinga og tryggi að kvótinn komi
til baka.
KALLINN HEFUR líka heyrt að Lands-
bankinn sé tilbúinn til að lána allt að 400
milljónum til kaupa á kvótanum. Það yrði
mikið framfaraskref ef Sandgerðingum tekst
að ná þessum kvóta til sín og Landsbankan-
um yrði hælt mikið ef hann myndi aðstoða
við kaup á kvótanum.
KALLINN ÆTLAR AÐ kaupa sér flugelda
hjá björgunarsveitunum - hugsanlega eina
tertu eða svo.
KALLINN hvetur alla til að fara varlega um
áramótin og um leið og hann þakkar fyrir
ánægjulegt ár - óskar hann Suðurnesjamönn-
um velfarnaðar á nýju ári.
Áramótakveðja,
Kallinn@vf.is
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
MUNDI
Er Kallinn bara að verða
einhver feitabolla?
DAGLEGAR
FRÉTTIR Á
VF.IS
Ánægður með Sandgerðinga
Ljósmynd: Reynir Sveinsson
„ROSALEGA ER KALLINN
ÁNÆGÐUR MEÐ BÆJARSTJÓRN
SANDGERÐIS SEM HEFUR HUG Á
AÐ KAUPA TIL BAKA ALLAN MIÐ-
NESKVÓTANN SEM HVARF FRÁ
SANDGERÐI TIL AKRANESS Á
SÍNUM TÍMA. UM ER AÐ RÆÐA
NOKKUR ÞÚSUND ÞORSKÍGILDIS-
TONN SEM MYNDU BÆTA STÖÐU
SUÐURNESJA TIL MUNA KÆMU
ÞAU AFTUR.“
Það var mikil stemmning í miðbæ Keflavíkur á Þorláksmessu þegar ljós-
myndarar Víkurfrétta litu á traffíkina. Jólasveinar og jólahljómsveit
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar voru á ferð og flug og sveinarnir dreifðu
nammipokum til barnanna. Það var kalt en þó voru all margir á ferli eins og
þessar myndir bera með sér. Kaupmenn voru almennt ánægðir með jóla-
verslunina þó hún hafi í sumum tilfellum farið örlítið seinna af stað.
Brenna í Innri-
Njarðvík
Ágamlárskvöld kl 20:00verður kveikt í áramóta-brennu á kambinum í
Innri-Njarðvík ef veður leyfir.
Flugeldasýning verður í um-
sjón Björgunarsveitar Suður-
nesja. Að brennunni standa
Innri-Njarðvíkingar ásamt
styrktaraðilum.
Allir velkomnir
Dregið í happ-
drætti Lions-
klúbbs Njarðvíkur
Dregið hefur verið í jólahapp-
drætti Lionsklúbbs Njarðvíkur
2003. Fyrsti vinningur í happ-
drættinu var ný Peugeot 206 bif-
reið og kom vinningurinn á miða
númer 125. Í 2. til 10. vinning
voru United litasjónvarpstæki og
komu vinningar á eftirtalin núm-
er: 745, 142, 1251, 676, 482,
883, 140, 744 og 769. Í 11. til 20.
vinning voru dvd spilarar og
komu vinningar á eftirtalin núm-
er: 1138, 1025, 915, 920, 1285,
837, 1177, 531, 675, 170. Vinn-
inga er hægt að vitja í síma 894-
1913.
Birt með fyrirvara
um prentvillur.
®
Jólastemmning á Hafnargötunni
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 15:56 Page 8