Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.12.2003, Side 17

Víkurfréttir - 30.12.2003, Side 17
VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ 2004 I ÞRIÐJUDAGURINN 30. DESEMBER 2003 I 17 sportspjall Í þróttalífið hér á Suðurnesj-um snýst að langmestu leytií kringum fótboltann á sumrin og körfuboltann á vet- urna. Þó eru fjölmörg svið sem eru ekki alltaf í sviðsljósinu og þeirra á meðal eru íþróttir fatl- aðra. Margir íslenskir íþrótta- menn á því sviði hafa verið í fremstu röð á heimsvísu og nægir þar að nefna Kristínu Rós Hákonardóttur, sund- drottningu með meiru. Annað dæmi um slíkan afreks- mann er Keflvíkingurinn Jóhann Kristjánsson. Hann hefur verið bundinn við hjólastól síðan hann lenti í vélhjólaslysi árið 1996, en lét mótlætið ekki buga sig og hefur á síðustu árum unnið sig upp í hóp fremstu borðtennis- manna heims í sínum flokki. Víkurfréttum lék forvitni á því að vita hvað búi á bak við slíka vel- gengni og náði tali af Jóhanni á heimili foreldra hans. Þegar hann er spurður út í upp- hafið á ferlinum segir hann að strax í endurhæfingunni á Reykjalundi eftir slysið hafi borðtennis virst liggja vel fyrir honum. „Ég bara fann mig í þessu og þegar ég kom út leitað- ist ég eftir að komast á æfingar og endaði í Reykjavík.“ Eftir að hann byrjaði að æfa náði hann fljótlega góðum árangri og fór að keppa á Íslandsmótum. Síðastliðið eitt og hálft ár hefur Jóhann verið fremstur meðal jafningja í borðtennisíþróttinni hér á landi og er meðal annars þrefaldur Íslandsmeistari. Síðan 1998 hefur hann farið reglulega utan til að keppa. „Ég fór sex eða sjö sinnum út að keppa í fyrra og í ár hef ég farið níu sinnum út. Ég er sem stendur í 20. sæti heimslistans í mínum flokki en hef hæst náð því 16. Ég á enn nokkuð í land með að vera afger- andi í toppbaráttunni, en ég fór á heimsmeistaramótið í Tævan í febrúar síðastliðnum og á ennþá séns að komast inn á Ólympíu- leikana í Aþenu á næsta ári.“ Fyrir utan að æfa sex sinnum í viku og lyfta með því nokkrum sinnum í viku, vinnur Jóhann á skrifstofu Verkalýðs- og sjó- mannafélags Keflavíkur auk þess sem hann rekur fyrirtækið Fello, sem selur rafmagnsvörur frá Danmörku. Þá á hann líka fimm ára dóttur, Guðrún Önnu, þannig að hann hefur í ýmis horn að líta. „Ef þú gætir fundið aðferð til að fjölga tímum í sólarhringnum væri ég til í að heyra af henni.“ Fyrir utan að keppa í sínum flokki hefur Jóhann líka att kappi við ófatlaða. „Ég lagði Guðmund Stephensen í leik, en hann var líka í hjólastól,“ segir Jóhann og brosir út í annað. „En svo bauð ég líka í Jón Ásgeir í Bónus og hann mætti á næstu æfingu með sinn eigin spaða og allt. Hann var alveg ágætur, hafði greinilega einhvern grunn, en hann sá samt aldrei til sólar!“ Keppt er í íþróttinni út um allan heim og ljóst er að mikill kostn- aður fylgir ferðalögum og uppi- haldi og hefur Jóhann þurft að sleppa nokkrum mótum vegna fjárskorts. En það er ekki að heyra neinn uppgjafartón hér heldur er okkar maður staðráðinn í að ná enn lengra í þessum bransa. Til þess þarf stuðning og hvetja Víkurfréttir fyrirtæki og einstaklinga hér í bæ til þess að styðja við bakið á þessum efni- lega unga manni með ráðum og dáð. STEFNAN TEKIN Á ÓLYMPÍULEIKA T il tíðinda dró í íþrótta-málum hér á Suðurnesj-um þegar ákveðið var að hefja keppni á ný undir merkj- um Keflavíkur í knattspyrnu kvenna, en undanfarin ár hef- ur Keflavík verið í samstarfi við Víði og Reyni í RKV. Einnig var ákveðið að endurreisa 2. flokk kvenna sem hefur ekki verið starfandi um alllangt skeið. Í kjölfarið var Ásdís Þorgilsdótt- ir, landsliðskona og margfaldur Íslandsmeistari með KR, ráðin sem þjálfari meistaraflokks, en Hannes Jón Jónsson tekur við 2. flokki. Þetta er í fyrsta þjálfunarstarf Ás- dísar en eftir að hún eignaðist sitt annað barn í sumar var ljóst að erfitt væri fyrir hana að halda áfram að æfa með KR í Reykja- vík, þar sem hún býr í Keflavík og keyrir á milli á æfingar. Þannig sá hún gott tækifæri til að samræma boltann og fjölskyldu- lífið þegar Keflavík auglýsti eftir þjálfara og sló til. „Auðvitað var þetta ekki auðveld ákvörðun þar sem ég er að taka skref aftur á bak hvað varðar feril minn sem fótboltamanns, en ég sé mikla möguleika með Keflavíkurliðið þar sem mikið er af ungum og efnilegum stelpum. Liðið hefur oft verið nálægt því að komast upp í úrvalsdeild en alltaf hefur vantað herslumuninn og nú er tími kominn á hugarfarsbreyt- ingu.“ Ásdís er nokkuð bjartsýn á að liðið komist upp og telur að það geti gerbreytt öllu hjá liðinu. „Ef við komumst svo upp er auð- veldara fyrir okkur að fá aftur stelpur af svæðinu sem hafa farið til annarra liða og þannig tryggt okkur sæti meðal þeirra bestu.“ Ásdís bendir líka á mikilvægi 2. flokks vegna þess að nú fari ung- ar stelpur ekki rakleiðis upp í meistaraflokk. „Það er alveg nauðsynlegt að hafa 2. flokk vegna þess að sumar ungu stelp- urnar ráða ekki við breytinguna upp í meistaraflokk og heltast úr lestinni. Þetta er góð millilending fyrir þær.“ Vonandi verður þetta til þess að lyfta kvennaboltanum á svæðinu upp á hærra plan og víst er að metnaðurinn er til staðar. Tefla fram kvennaliði í knatt- spyrnu undir merki Keflavíkur - er í fremstu röð á heimsvísu! JÓHANN RÚNAR KRISTJÁNSSON Jóhann Rúnar Kristjánsson - lagði helsta borðtenniskappa landsins og einnig Jón Ásgeir í Bónusi! 1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 15:06 Page 17

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.