Víkurfréttir - 30.12.2003, Page 18
M ikil uppbygging hefurátt sér stað á tækja-búnaði Björgunar-
sveitarinnar Suðurnes síðasta
árið og á næstu vikum eiga
meðlimir sveitarinnar von á
nýjum björgunarbáti, sem
staðsettur verður í smábáta-
höfninni í Gróf í Keflavík. Um
er að ræða Atlantic 21, opinn
harðbotna björgunarbát með
tveimur vélum, frá Konunglega
breska björgunarfélaginu. Nýi
báturinn er sérhannað sjó-
björgunartæki og mun örugg-
ara björgunartæki en núver-
andi bátur sveitarinnar.
Á næsta ári eru 10 ár liðin frá
sameiningu Hjálparsveitar skáta í
Njarðvík og Björgunarsveit-
arinnar Stakks í Keflavík undir
merki Björgunarsveitarinnar
Suðurnes. Gunnar segir sam-
eininguna hafa skilið sér svo um
munar. Það sýni best mikil upp-
bygging bæði í húsnæðis- og
tækjamálum. Ný svokölluð sex-
hjól hafa verið tekin í notkun og
hafa sannað gildi sitt. Kerra með
fyrstuhjálparbúnaði fyrir allt að
100 manna slys og greiningar-
stöð í risastóru tjaldi hefur vakið
heimsathygli. Þannig hefur verið
spurst fyrir um það hvort sveitin
geti útbúið slíkar kerrur til
útflutnings. Kerran er þægileg í
meðförum og hægt er að flytja
hana hvert á land sem er með
stuttum fyrirvara. Skiptir þá engu
hvort hún er dregin af bíl, sett um
borð í skip eða hreinlega hengd
neðan í þyrlu.
Í tengslum við kerruna góðu er í
burðarliðnum samstarfssamn-
ingur milli Björgunarsveitarinnar
Suðurnes og greiningarsveitar
Landsspítala-háskólasjúkrahúss
um að flokkur frá björgun-
arsveitinni er kallaður út sam-
hliða greiningarsveit Lands-
spítalans. Flokkurinn sem fylgir
kerrunni er m.a. skipaður vel
þjálfuðum mönnum frá Bruna-
vörnum Suðurnesja.
Björgunarsveitina Suðurnes
skipar hópur 40 virkra félaga,
auk yfir 20 nýliða sem nú eru í
þjálfun. Þegar mikið liggur við
samanstendur björgunarsveitin
hins vegar af um 100 körlum og
konum sem hafa þjálfun og
þekkingu til að takast á við hin
fjölbreyttustu verkefni, segir
Gunnar Stefánsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Suðurnes í
samtali við Víkurfréttir.
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ B J Ö R G U N A R S V E I T I N S U Ð U R N E S
Það er góður lífsstíll aðstarfa með björgunar-sveit og það veit unga
fólkið í Reykjanesbæ því nú er
21 ungmenni í svokallaðri
nýliðaþjálfun hjá Björgunar-
sveitinni Suðurnes. Það er
Haraldur Haraldsson sem
annast nýliðaþjálfun sveitar-
innar. Til að gerast fullgildur
meðlimur í Björgunarsveitinni
Suðurnes þarf að ganga í gegn-
um 18 mánaða þjálfun. Hún
felur í sér alla grunnþjálfun
fyrir björgunarsveitarfólk og
þegar tímabilinu er lokið fá
þátttakendur viðurkenningu
sem Björgunarmaður I. Ný-
liðar geta byrjað 16 ára gamlir,
en nýliðastarfið er kynnt fólki
á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Farið er í gegnum fyrstu hjálp
I og II, einnig snjóflóðaleit,
meðferð slöngubáta, fjarskipti,
rötun, ásamt vetrarferða- og
fjallaferðamennsku.
Haraldur segir þjálfunina fara
fram um helgar en önnur hver
helgi er undirlögð af verkefnum,
sem eru fjölbreytt eins og sést af
framangreindu. Hópurinn sem
nú er í nýliðaþjálfun er mjög
skemmtilegur. Strákar eru í
meirihluta en stelpur taka einnig
þátt í starf inu. Mikið er um
helgarferðir, sem að sjálfsögðu
eru bæði áfengis- og vímuefna-
lausar. „Við leggjum áherslu á að
nýliðar stundi heilbrigt líferni og
þannig förum við t.a.m. í líkams-
rækt þrisvar sinnum í viku, þar
sem bæði er stundað þrek og
lyftingar“.
Haraldur segist líta á nýliða-
starfið sem forvarnastarf, þar
sem verið er að byggja upp
unglinga á jákvæðan hátt. „Við
stundum góðan lífsstíl og hér er
ekkert rugl“.
Haraldur segir að tekið sé á móti
nýjum félögum í nýliðastarfið
hvenær sem er ársins. Þeir sem
hafa náð 16 ára aldri og hafa
áhuga á björgunarsveitastarfinu
geta komið í björgunarsveit-
arhúsið við Holtsgötu á mið-
vikudagskvöldum kl. 20 en þá
hittist hópurinn til að skipuleggja
dagskránna.
Starfið eftir áramótin er bæði
spennandi og skemmtilegt.
Haldið verður áfram með hin
ýmsu námskeið og svo er stefnan
tekin á snjóhúsaferð í Tindfjöll
um páskana. Þar munu nýliðarnir
læra að grafa sig í fönn og sofið
verður í snjóhúsum.
P ippý er nýjasti félaginn í Björgunar-sveitinni Suðurnes. Hún er blóðhundursem keyptur hefur verið frá Svíþjóð og
fékk frelsi frá einangrunarstöðinni í Hrísey 17.
nóvember sl. Pippý er því þriðji hundurinn í
hundaflokki Björgunarsveitarinnar Suðurnes.
Þar fara þeir Halldór Halldórsson og Jóhann
Bjarki Ragnarsson með þjálfunarmál. Auk
blóðhundsins eru tveir sheffer-hundar, Aquaríus
og Grandý. Sheffer-hundarnir eru svokallaðir
víðavangs- og svæðisleitarhundar, sem einnig
leita í snjóflóðum og rústum.
Blóðhundurinn er hins vegar eingöngu sporhundur
sem leitar að týndu fólki. Þá lyktar hundurinn af flík
af hinum týnda og rekur þannig slóð hans. Pippý
hafði fengið grunnþjálfun í Svíþjóð af fyrrum
félaga í Björgunarsveitinni Suðurnes. Hér heima
hafa verið lögð fyrir hana þrjú spor og að sögn
Halldórs lofar þjálfunin góðu. Pippý er hins vegar á
hóteli yfir áramótin, enda viðkvæm fyrir flugelda-
skothríðinni um áramót.
Útbúin hefur verið góð aðstaða fyrir tvo leitarhunda
hjá Björgunarsveitinni Suðurnes. Tvö gerði eru við
höfuðstöðvar sveitarinnar í Njarðvík. Halldór segir
mikinn tíma fara í hundaþjálfunina en hundarnir eru
í þjálfun flesta daga ársins. Halldór og Jóhann
Bjarki eru félagar í Björgunarhundasveit Íslands og
þar er þjálfunin einnig stunduð af kappi. Fá verkefni
hafa verið fyrir hundana síðustu mánuði, en það
þýðir ekki að slakað sé á í þjálfun. „ Við vitum ekki
hvenær kallið kemur og þá er vissara að bæði hund-
ar og menn séu í toppþjálfun“, sagði Halldór
Halldórsson að lokum.
H A L L D Ó R H A L L D Ó R S S O N , H U N DA Þ JÁ L FA R I :
Nýr blóðhundur kemur björgunarmönnum á sporið
Líflegt og skemmti-
legt nýliðastarf
H A RA L D U R H A RA L D S S O N , N Ý L I Ð A Þ JÁ L FA R I :
Mikil uppbygging
í tækjabúnaði
sveitarinnar
G U N N A R S T E F Á N S S O N , F O R M A Ð U R B J Ö R G U N A R S V E I TA R I N N A R S U Ð U R N E S :
Fyrstuhjálparkerra
Björgunarsveitarinnar
Suðurnes hefur vakið
athygli á heimsvísu.
Mynd úr nýliðastarfinu.
Slasaður maður fluttur
í börum ofan af jökli.
Pippý boðin velkomin í Björgunarsveitina Suðurnes á dögunum.
Atlantic 21 bátur.
- fyrstuhjálparbúnaður vekur heimsathygli
1. tbl. 2004 24p 29.12.2003 14:00 Page 18