Víkurfréttir - 30.01.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 30. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
„Heimakletturinn“ hættur
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
KÆRU ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ!
Aðfaranótt 5. febrúar mun Kapalvæðing setja upp nýja sjónvarpsstöð
sem getur breytt uppröðun á sumum eldri boxum og sjónvörpum.
Nýjustu sjónvörpin eiga að uppfærast sjálfkrafa.
Hjá þeim sem kemur tilkynning á skjáinn um að uppfæra
sjónvarpið/boxið þá er best að setja (ok) við því!
Endilega komið á skrifstofuna til að skipta út eldri TechniSat boxinu yfir í nýtt HD smart box.
Nánari upplýsingar verða á heimasíðu kapalvæðingar www.kv.is
Skrifstofa sími: 421-4688, Þjónustu sími: 894-4688.
Njarðvíkingurinn Friðrik Stefánsson hefur ákveðið að
segja það gott í körfuboltanum
og leggja skóna á hilluna góðu.
Friðrik hefur verið að glíma við
meiðsli undanfarin ár og hefur
að þeim sökum ákveðið að hætta.
Í samtali við vefsíðuna Karfan.
is sagði Friðrik að skrokkurinn
hreinlega væri að hruni kom-
inn. „Þetta hófst svona fyrir al-
vöru fyrir ári síðan, ég hef meira
og minna verið síðan þá að spila
hnjaskaður að einhverju leyti.
Kálfi, ökkli, nári og þetta er allt svo
byrjað að tengjast saman. Þannig
að ég hreinlega verð bara að segja
staðar numið í boltanum,“ sagði
hinn 37 ára gamli Friðrik í samtali
við Karfan.is.
Friðrik hefur leikið með Njarðvík
síðan árið 1998 en ferilinn hófst
á æskuslóðunum í Vestmanna-
eyjum. „Þegar þetta er byrjað að
hafa áhrif á mig í mínu daglega lífi
og vinnunni þá held ég að sé bara
nóg komið. Ég skil við liðið núna
í fínum höndum. Það er komin
einn vel kjötaður í teiginn til að
taka við keflinu og ég er þokkalega
sáttur við minn feril,“ sagði Friðrik
í viðtalinu.
Ungmennafélag Njarðvíkur til-kynnti á þriðjudagskvöld um
val á íþróttafólki UMFN 2013. Í ár
voru kjörnir tveir íþróttamenn, karl
og kona. Íþróttafólk Njarðvíkur
eru Elvar Már Friðriksson körfu-
knattleiksmaður og Inga María
Henningsdóttir kraftlyftingakona.
Íþróttamenn deilda
félagsins voru valin:
Júdómaður: Bjarni Darri Sigfússon
Júdókona: Sóley Þrastardóttir
Sundmaður:
Alexander Páll Friðriksson
Sundkona: Sunneva
Dögg Friðriksdóttir
Þríþrautarmaður:
Rafnkell Jónsson
Þríþrautarkona:
Þuríður Árnadóttir
Knattspyrnumaður:
Theódór Guðni Halldórsson
Kraftlyftingamaður:
Þorvarður Ólafsson
Kraflyftingakona:
Inga María Henningsdóttir
Körfuknattleiksmaður:
Elvar Már Friðriksson
Körfuknattleikskona:
Erna Hákonardóttir
Íþróttakarl UMFN:
Elvar Már Friðriksson
Íþróttakona UMFN:
Inga María Henningsdóttir
Inga María og Elvar Már
íþróttafólk Njarðvíkur
Aníta Lóa með sigur á bikarmóti
Um síðustu helgi fór fram Bikar-
mót í samkvæmisdansi og sigr-
uðu þau Aníta Lóa Hauksdóttir
Njarðvíkurmær og dansfélagi
hennar Pétur Fannar Gunnars-
son frá dansdeild HK í flokki
Ungmenna Standard og urðu
þau einnig í 2. sæti í flokki full-
orðinna.
Pétur og Aníta eru aðeins 15 ára
gömul. Þau eru einnig Norður
Evrópumeistarar í Standard og
Latín dönsum. Þau eru á leiðinni
nú í febrúar til Danmerkur þar
sem þau munu keppa á Copen-
hagen Open sem er mjög stór al-
þjóðleg keppni. Pétur og Aníta
hafa nú þegar tryggt sér þátttöku
með A- landsliði Íslands fyrir árið
2014.
Friðrik í baráttunni undir körfunni í Sláturhúsinu fyrir nokkrum árum.