Víkurfréttir - 30.01.2014, Qupperneq 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 30. janúar 2014 15
LESTUR
VINSÆLASTI
FRÉTTAMIÐILL Á
SUÐURNESJUM
www.vf.is+
83%
PÁSKA OG SUMARÚTHLUTUN
Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur vegna Páska er til 12. febrúar 2014
Umsóknarfrestur vegna Sumars er til 8. apríl 2014
Munaðarnes
3 hús
með heitum potti
Reykjaskógur
1 hús
með heitum potti
Akureyri
2 íbúðir
Páskaúthlutun er frá 16. - 23. apríl
Sumarúthlutun er frá 30. maí - 5. september (vikuleiga)
Hægt er að sækja um orlofshús á vef félagsins www.stfs.is eða vera í sambandi við starfsfólk
á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ. Sími:421-2390.
Orlofsnefnd STFS
Um er að ræða eftirtalin orlofshús:
Atvinna
Umsókn og upplýsingar á www.verkmenn.is
TIL LEIGU
Herbergi til leigu
Herbergi til leigu. Uppl. í síma 862 7511
Lítil 3ja herbergja íbúð
til leigu í Reykjanesbæ. Uppl. í síma
691 0288
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 30. jan. - 5. feb. nk.
• Bingó • Listasmiðja • Handverk
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Félagsvist • Bridge
• Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Léttur föstudagur 31. janúar kl.14
dagskrá á vegum FEBS
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar í síma 420
3400 eða á www.nesvellir.is
- smáauglýsingar - uppboð
ÓSKAST
Meðleigjandi óskast
Vantar meðleigjanda upp á Ásbrú. Er
með 110 fm íbúð og fylgir not á heim-
ilistækjum s.s þvottavél, þurrkari.
Leigan er 50.000 kr á mánuði. Samband
við Jakob 846 2515
UPPBOÐ
Einnig birt á
www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Heiðargerði 1 fnr. 227-8337,
Vogar, þingl. eig. Leifur Jónsson,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður,
þriðjudaginn 4. febrúar 2014 kl.
09:00.
Hólagata 6 fnr. 209-4825, Sand-
gerði, þingl. eig. þb. Sigríðar
Ágústu Jónsdóttur, gerðarbeiðandi
Úlfar Guðmundsson hdl., þriðju-
daginn 4. febrúar 2014 kl. 10:15.
Kirkjuvegur 31 fnr. 228-7437,
Keflavík, þingl. eig. Heimir Sigur-
sveinsson, gerðarbeiðendur Íbú-
ðalánasjóður og Reykjanesbær,
þriðjudaginn 4. febrúar 2014 kl.
10:35.
Melás 8 fnr. 231-0573, Njarðvík,
þingl. eig. Trausti Már Traustason,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í
Keflavík, þriðjudaginn 4. febrúar
2014 kl. 09:40.
Sýslumaðurinn í Keflavík,
28. janúar 2014.
Ásgeir Eiríksson,
staðgengill sýslumanns.
Keflvíkingar sýndu styrk sinn þegar þeir fengu granna sína
frá Njarðvík í heimsókn í Dom-
ino's deild karla í körfubolta á
mánudag. Óhætt er að segja að
gestirnir hafi aldrei séð til sólar
í TM-Höllinni en Keflvíkingar
unnu öruggan 105-84 sigur. Kefl-
víkingar leiddu með 10 stigum í
hálfleik, 48-38, en í síðari hálfleik
kafsigldu þeir þá grænklæddu al-
gjörlega og unnu verðskuldaðan
sigur. Nánari umfjöllun, viðtöl
og tilþrif má sjá á vef Víkurfrétta,
vf.is.
Keflvíkingar hnykluðu vöðvana
Molar úr rimmunni
um Reykjanesbæ
· Bekkurinn hjá Keflavík
skoraði 23 stig gegn 9 frá Njarðvík
· Keflvíkingar skoruðu mest 15 stig
í röð án þess að Njarðvíkingar næðu
að svara. Frá stöðunni 7:6 til 22:6
· Njarðvíkingar voru einu sinni
yfir í leiknum, í stöðunni 3:4
· Michael Craion var með 37
framlagsstig í leiknum. Næsti
maður var með 26 slík stig, það
var Darrell Lewis. Hæsta fram
lag Njarðvíkinga kom frá Elvari
Friðrikssyni, 20 framlagsstig.
· Keflvíkingar hittu úr 60%
skota sinna í leiknum sem er
besta nýting þeirra í vetur
Njarðvíkingar hittu úr
42% skota sinna
· Keflvíkingar voru með 48%
þriggja stiga nýtingu í saman
burði við 24% hjá Njarðvík
· Keflvíkingurinn Gunnar Ólafsson
var með 78% skot
nýtingu í leiknum
· Guðmundur Jónsson og
Arnar Freyr Jónsson skoruðu
samtals 7 stig í leiknum
Keflvíkingar hafa misst frá sér þrjá leikmenn í
meistaraflokki karla í körfu-
boltanum að undanförnu. Þeir
Almar Guðbrandsson, Óli Geir
Jónsson og Ragnar Gerald Al-
bertsson eru hugsanlega hættir
hjá liðinu en að baki liggja
ýmsar ástæður.
Hinn hávaxni leikmaður Kefl-
víkinga, Almar Guðbrandsson,
hefur ákveðið að hætta að leika
með liðinu í Domino’s deild karla
í körfubolta. Gunnar Stefánsson
aðstoðarþjálfari liðsins staðfesti
ákvörðun Almars í samtali við
Víkurféttir. Gunnar segir að mið-
herjanum hafi staðið til boða að
leika áfram með liðinu en hann
hafi ekki óskað eftir því. Almar
taldi að hann hafi ekki fengið þau
tækifæri sem hann hafði vonast
eftir og því taldi hann best að
róa á önnur mið. „Almar er að
berjast við besta miðherja Íslands
(Michael Craion) og því er sam-
keppnin hörð.“
Hinn 208 cm hái Almar sagði
að honum og þjálfaranum Andy
Johnston kæmi ekki saman og
að þess vegna væri nú komið að
leiðarlokum. „Hlutverk mitt í lið-
inu var lítið sem ekki neitt,“ sagði
Almar í samtali við Karfan.is.
„Svona stórir menn eru vand-
fundnir á Íslandi og það er leiðin-
legt að missa svona sannan Kefl-
víking úr liðinu. Hann hafði sínar
ástæður en tækifæri stóð honum
til boða. Andy ætlaðist til mikils
af honum og svo er bara undir
honum komið að sýna hvað í
honum býr,“ segir Gunnar og
bætir því við að Almar, sem er 23
ára gamall, hafi lengi verið efni-
legur en erfitt hafi reynst að stíga
næsta skref.
Óli Geir Jónsson er mörgum
kunnur fyrir allt annað en körfu-
bolta. Óli Geir er frambærilegur
leikmaður og hefur undanfarin
ár leikið við góðan orðstír hjá
Reyni Sandgerði í 2. deild.
„Óli Geir vildi fá fleiri tækifæri
en þau voru ekki að bjóðast fyrir
hann,“ segir Gunnar sem sjálfur
þekkir það hlutverk að vinna
sér sæti í sterku Keflavíkurliði.
„Stökkið er stórt frá 2. deild. Óli
er búinn að leggja hart að sér og
menn eiga skilið tækifæri ef þeir
vinna vel fyrir því. Ég tel að hann
hafi fengið ágætis tækifæri. Það
eru ekki allir sem taka þetta stökk
í úrvalsdeildarlið Keflavíkur
og ætlast til þess að fá að spila
mikið.“ Eins og staðan er núna er
Óli Geir erlendis í leyfi og óvíst
hvort hann klæðist Keflavíkur-
treyjunni aftur.
Ragnar hefur ekki leikið körfu-
bolta um skeið en það mun vera
af persónulegum aðstæðum.
„Hans er sárt saknað í okkar her-
búðum. Þegar hann er tilbúinn
þá kemur hann vonandi aftur,“
sagði Gunnar.
Keflvíkingar eiga unga stráka sem
banka á dyrnar hjá liðinu. „Það
kemur maður í manns stað hjá
Keflavík. Það er nógur efniviður
hér og strákar sem eru tilbúnir
að stíga upp,“ sagði Gunnar að-
stoðarþjálfari að lokum.
Almar og Óli Geir
hættir hjá Keflavík
-Ragnar í fríi um sinn