Víkurfréttir - 03.07.2014, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 3. júlí 2014 9
Magnús Stefánsson hóf ný-lega sitt annað kjörtímabil
sem bæjarstjóri í Garði. Hann
segist vera að leita sér að hús-
næði í bæjarfélaginu en staðan
er að hans mati ekki góð í hús-
næðismálum í Garðinum. Hann
telur atvinnulífið í Garðinum
vera ágætt en vissulega hafi
heimamenn verið ósáttir þegar
starfsemi Garðvangs var flutt til
Reykjanesbæjar. Víkurfréttir tóku
bæjarstjórann tali á Sólseturs-
hátíðinni í Garði en sérstakur
sjónvarpsþáttur Víkurfrétta um
Garðinn verður sýndur á ÍNN í
kvöld klukkan 21:30.
Aðspurður um atvinnulífið á Garði
segir Magnús það vera ágætt.
„Auðvitað eru aðstæður þannig að
margir íbúar sækja atvinnu út fyrir
Garðinn. Að öðru leyti er ágætis
staða á atvinnulífinu hér. Það er
auðvitað sameiginlegt hagsmuna-
mál sveitarfélaganna á svæðinu
hér að við náum af stað einhverri
starfsemi í Helguvíkinni. Það er
gríðarlega mikilvægt fyrir öll þessi
sveitarfélög.“ Sjávarútvegurinn er
afar mikilvægur fyrir Garðinn þrátt
fyrir að engin höfn sé
í bæjarfélaginu. „Hér
eru fiskvinnslufyrir-
tæki og útgerðarfélög
sem eiga aðsetur í
Garðinum. Nesfiskur
er stórt og myndarlegt fyrirtæki,
með þeim stærri hér á svæðinu og
það skiptir gríðarlega miklu máli
fyrir Garðinn, enda fjölmargir sem
starfa hjá þeim til lands og sjós.
Síðan erum við með fleiri fyrirtæki
hér, þannig að sjávarútvegurinn
skiptir mjög miklu.“
Tekin var ákvörðun um að flytja
starfsemi Garðvangs til Reykjanes-
bæjar í fyrra. Garðbúar voru ekki
alls kostar sáttir við þá ákvörðun.
„Við vorum eðlilega mjög ósátt
við það og töldum að það hefði átt
að vera samstaða um að ráðast í
endurbætur á Garðvangi og halda
áfram starfsemi með hjúkrunar-
þjónustu. Það gekk því miður ekki
eftir af ýmsum ástæðum og hafa
bæjaryfirvöld í Garðinum ekki
verið sátt við þá þróun. Það er
verkefni fyrir höndum núna að ná
samstöðu með sveitarfélögunum
á svæðinu og sækja um fleiri rými
hér, því það er skortur á hjúkrunar-
rýmum fyrir aldraða hér á Suður-
nesjum. Það ætti að vera okkar
sameiginlega verkefni að ná fram
árangri.“
Bæjarstjórinn er þegar byrjaður að
leita sér að húsnæði í Garðinum en
hann hefur áhyggjur af húsnæðis-
málum í byggðarfélaginu. „Það er
erfitt fyrir fólk að fá leiguhúsnæði í
Garði. Þetta er vandamál sem hefur
verið uppi og við höfum verið að
missa frá okkur fólk til búsetu í
öðrum sveitarfélögum. Hér á Íbú-
ðalánasjóður nokkra tugi íbúða
sem standa auðar og margar ónot-
aðar. Fólk á mjög erfitt með að fá
húsnæði hreinlega, það er auðvitað
áhyggjuefni. Við þurfum að fara í
það að ná samstarfi við Íbúðalána-
sjóð og fleiri aðila um að vinna í
þeim málum, þannig að ég og aðrir
sem viljum búa í Garðinum getum
fengið húsnæði til þess að búa hér.“
■■ Býr í sama húsi og foreldrar hennar byggðu 1954:
Ekki enn flutt að heiman
Oddný Harðardóttir þingmaður var meðal þeirra sem nutu veður-
blíðunnar og dagsrkárinnar í Garði. Víkurfréttir spurðu Oddnýju út í
hátíðina og ýmislegt fleira sem einkennir sveitarfélagið.
Gott að koma heim
„Hátíðin hefur þróast mjög vel
finnst mér. Þetta er fjölskyldu-
hátíð, hátíð okkar Garðmanna
og við bjóðum gesti velkomna,“
segir Oddný, sem býr í Garðinum
og ekur alltaf til vinnu í Reykja-
vík. Hún segist alltaf kunna vel við
sig þar. „Ég segi stundum að ég sé
ekki enn flutt að heiman því ég á
heima í húsinu sem mamma og
pabbi byggðu 1954 og ég ólst upp
í. Mér líkar mjög vel í Garðinum
og alltaf þegar ég keyri Garðveginn
og sé húsið mitt þá léttir mér. Það
er svo gott að koma heim.“ Oddný
telur að það fylgi því eitthvað ein-
stakt að fara út á Garðskaga, setjast
í fjöruna og horfa út á haf. „Ég leita
hingað til að fá hugarró og ég held
að það séu töluvert fleiri sem gera
það,“ segir hún.
Tveir þingmenn frá Garðinum
Tveir starfandi þingmenn koma
úr þessu 1600 manna sveitarfélagi.
Auk Oddnýjar er það Ásmundur
Friðriksson. Spurð segir Oddný
að það sé mjög gott. „Ég er fyrsti
þingmaðurinn held ég úr Garð-
inum. Að vísu er Eiður Guðnason
ættaður úr Garðinum og sjálfsagt
einhverjir fleiri. Nú eigum við tvo
og vonandi bara fjölgar þeim,“
segir Oddný. Spurð um hvort hún
telji íbúa Garðs vera stolta af þing-
mönnum sínum telur hún að svo
hljóti að vera. „Þeir eru alla vega
góðir við okkur. Ég kvarta ekki
undan því.“ Einnig var Magnús
Stefánsson, núverandi bæjarstjóri,
þingmaður og ráðherra áður. „Það
er góður grunnur að hafa komið að
rekstri bæjarfélags fyrir starf þing-
manns og sú reynsla nýtist vel. Ég
get mælt með því að fara þessa leið.
Byrja á sveitarstjórnarpólitíkinni
og fara þaðan inn á þing,“ segir
Oddný.
Vill hvergi annars staðar búa
Spurð um hvað henni finnist um
Garðinn núna og hvort henni finn-
ist góðir hlutir vera að gerast, segir
Oddný svo vera og Garðbúa hafa
verið skynsama í fjármálum. „Það
hefur ekki skipt máli hvaða meiri-
hlutar hafa verið við völd, menn
hafa gætt að sér. Hér hrundi ekki
allt árið 2008. Auðvitað má rífast
um smáatriði hér og þar og menn
takast á. Minnihluti veitir meiri-
hluta aðhald. En í heildina tekið
erum við sátt við hvernig málin
hafa þróast hér.“ Þá finnst Odd-
nýju gott að búa í Garðinum. „Ég
get ekki hugsað mér að búa neins
staðar annars staðar,“ segir hún að
endingu.
Fríðindi og forréttindi
að búa í Garði
Jónína Magnúsdóttir formaður
bæjarráðs í Garðinum var í sól-
skinsskapi á Sólseturshátíðinni
um sl. helgi. Jónína er nýlega
farin að skipta sér af pólitík en
hvers vegna ákvað hún að beita
sér fyrir bæjarbúa í Garðinum?
„Það var nú vegna fjölda áskor-
ana og svo hef ég nú alltaf haft
áhuga á byggðarlaginu. Ég er
fædd og uppalin hérna og er annt
um byggðarlagið. Ég tel mig hafa
margt að bjóða upp á og langar að
leggja mitt af mörkum til þess að
gera Garðinn að ennþá betri bæ
til að búa í.“
Jónína segist hafa átt ákaflega góða
æsku í Garðinum og því kjósi hún
að búa þar og ala upp börn sín.
„Mér finnst gott að ala upp börnin
mín hérna. Þó svo að það sé ekki
allt til alls hér þá er mjög stutt í
allt hérna. Mér finnst bara fríðindi
og forréttindi að búa hérna, þetta
er svo stutt frá öllu, en svo kemur
maður bara hérna í þess vin í eyði-
mörkinni, þar sem maður getur
bara notið náttúrunnar, fegurðar-
innar og rólegheitanna, sem ég
kannski nýt hvað best.“
Hvað má bæta í Garðinum að
mati formanns bæjarráðs? „Það
þarf að bæta tómstundastarf fyrir
yngri kynslóðina, þar má alltaf
gera betur. Við þurfum líka að
halda við ákveðnu starfi eins og
bættum samgöngum, því það er
lykilatriði fyrir okkur hérna. Við
þurfum líka að fegra bæinn okkar,
halda honum fallegum og hreinum
þannig að hann verði ákjósanlegur
fyrir íbúa og gesti. Svo tel ég að við
verðum að halda uppi blómlegu
tómstundalífi, félagslífi og menn-
ingu. Þannig fáum við fólk til þess
að sækja okkur heim og okkur til
þess að halda áfram að búa hérna.“
Pollapönkarar gáfu sér tíma
með aðdáendum sínum.
Norrænir vinir Garðbúa
stigu léttan dans.
Bæjarstjórinn í Garði
á erfitt með að finna
sér húsnæði
- Hefur áhyggjur af þróun mála