Víkurfréttir - 21.08.2014, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 21. ágúst 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
-fréttir pósturu vf@vf.is
LJÓSANÓTT
SKRÁÐU ÞINN VIÐBURÐ
Ert þú með viðburð á Ljósanótt?
Mundu eftir að skrá viðburðinn á ljosano.is.
Þannig birtist hann í dagskrá Ljósanætur.
Til að viðburðurinn birtist í prentaðri dagskrá þarf
að skrá hann á vefinn í síðasta lagi sunnudaginn
24. ágúst.
ATVINNA
HÁALEITISSKÓLI
Umsjónarmaður fasteigna óskast í 100% stöðu við
Háaleitisskóla.
Megin viðfangsefni: Starfar við og hefur umsjón með
húseignum, húsgögnum, áhöldum og lóð skólans. Sér
um opnun/lokun húsnæðis og sér um minniháttar
viðgerðir og viðhald.
Umsóknarfrestur er til 5. september
Nánari upplýsingar gefur Anna Sigríður
Guðmundsdóttir, skólastjóri (420-3050 eða
694-5689)
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Reykjanesbæjar
þar sem einnig er að finna menntunar- og hæfniskröfur
og nánari upplýsingar um starfið.
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
AFMÆLISVEISLUR
Í FJÖRHEIMUM
Bókanir fyrir afmælisveislur eru hafnar að nýju á
tölvupóstfangið fjorheimar@reykjanesbaer.is
Staðurinn er leigður út virka daga frá 16.00 - 19.00.
Verðið er 7.000 krónur.
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar
ATVINNA
FJÖLSKYLDU- OG FÉLAGSÞJÓNUSTA
REYKJANESBÆJAR ÓSKAR EFTIR
STARFSMÖNNUM Í FJÖLBREYTT STÖRF
Óskað er eftir aðstoðarmönnum til að sinna
umönnun fatlaðra barna. Sérstaklega er óskað eftir
kvenfólki vegna eðli starfsins. Um er að ræða
hlutastörf í vaktavinnu á kvöldin og um helgar.
Einnig er óskað eftir starfsmönnum í almenna
liðveislu. Liðveisla felur í sér félagslegan stuðning við
einstaklinga með fötlun. Störfin henta bæði körlum og
konum, einnig vel með námi.
Umsóknarfrestur er til 15. september 2014.
Nánari upplýsingar veita Jóhanna María Ævarsdóttir
og Hrefna Höskuldsdóttir í síma 421 6700.
Sækja skal um störfin rafrænt á vef Reykjanesbæjar
þar sem einnig er að finna menntunar- og hæfniskröfur
og nánari upplýsingar um störfin.
http://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Breytingar á pólitísku landslagi í Reykjanesbæ hafa greinilega leitt til þess að spenna hefur hlaðist upp
á meðal bæjarfulltrúa í sumarfríi bæjarstjórnar. Ólíkt
því sem hefur verið að gerast við Bárðarbungu, þá var
spennan í Reykjanesbæ leyst úr læðingi á þriðjudags-
kvöld. Kvikan kom upp á yfirborðið og ýmislegt var
látið flakka. Það hreinlega gaus fyrirsögnum. „Stríðið
er hafið“, „Böðvar fer hamförum“, „Kjartan Már er
klárlega ekki kona“, „hróplegt ósamræmi“, „Óþolandi
lýðræði í Reykjanesbæ“ og jafnvel „Formaður bæjar-
ráðs gerir afglöp,“ eru fyrirsagnaefni sem þeyttust í
loftið á fundinum.
Fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudagskvöld
var sá fyrsti sem haldinn er eftir sumarleyfi bæjarstjórnar
en bæjarráð hefur farið með vald bæjarstjórnar í fríinu.
Frá því bæjarstjórn kom síðast saman fyrir sumarleyfi þá
hafa nýir valdhafar í Reykjanesbæ ráðið nýjan bæjarstjóra.
Nýráðinn bæjarstjóri er þó ekki kominn til starfa og var
því autt sæti við hringborð bæjarstjórnar Reykjanesbæjar
á þriðjudagskvöldið, því settur bæjarstjóri var í hlutverki
ritara á fundinum.
„Einstaklingur með skýra pólitíska sýn“
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, ætlar
greinilega að láta til sín taka í minnihlutanum. Hann byrj-
aði þó fund bæjarstjórnar á því að hrósa meirihlutanum
fyrir val á bæjarstjóra og að þar hafi verið ráðinn „ein-
staklingur með skýra pólitíska sýn“. „Ég lýsti því skýrt hér
á bæjarstjórnarfundi í lok júní að ég teldi að bæjarstjóri í
Reykjanesbæ þyrfti fyrst og fremst að hafa skýra pólitíska
sýn til að fylgja eftir þeim verkefnum sem honum eru
falin af hálfu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarstjóri hefur
svo sérfræðinga, hvern á sínu sviði, til að vinna að hinum
faglegu þáttum. Það er sú niðurstaða sem orðið hefur við
val á nýjum bæjarstjóra að þar er auðvitað einstaklingur
með skýra pólitíska sýn,“ sagði Böðvar og gagnrýndi
ráðningarferli meirihlutans sem hann sagði pólitískt og
klárlega ekki gagnsætt. Nefndi hann m.a. að umsóknir
um starf bæjarstjóra hafi ekki verið lagðar fram í bæjar-
ráði eins og venja er með þau störf sem bæjarráð ræður í.
Böðvar sagði að ráðningarferlið hafi verið fyrst og fremst
pólitískt og hafi ekki verið faglegt nema að litlu leyti. Það
hafi að mestu leyti verið unnið af oddvitum þeirra flokka
sem nú skipa meirihluta í Reykjanesbæ. „Og það var klár-
lega ekki gagnsætt. Þetta er þó það sem meirihlutinn hafði
lofað í upphafi kjörtímabils í ítarlegum málefnasamningi
flokkanna,“ sagði Böðvar og bætti síðar við: „Ráðning
Kjartans Más Kjartanssonar er að sjálfsögðu í hróplegu
ósamræmi við það sem fulltrúar meirihlutaflokkanna
höfðu sagt sínum kjósendum og bæjarbúum fyrir kosn-
ingar. Sá einstaklingur átti að vera ópólitískur, hann átti
að vera sérfræðingur í endurskipulagningu skulda og gott
væri að minsta kosti að hann væri kona. [ … ] Kjartan
Már Kjartansson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og bæjarráðs-
maður í Reykjanesbæ og oddviti framsóknarmanna er að
sjálfsögðu ekki ópólitískur frekar en nokkur af okkur sem
sitjum við þetta borð. Hann hefur góða rekstrarreynslu en
hann er enginn sérfræðingur í endurskipulagninu skulda
og hann er klárlega ekki kona. Svo mikið er víst“. Böðvar
sagði að þeir flokkar sem nú skipa meirihlutann verði að
svara þessu fyrir bæjarbúum. Böðvar sagðist þó vænta
mikils af Kjartani Má í stöðu bæjarstjóra í Reykjanesbæ og
hlakka til samstarfsins.
Það hefur lítið breyst
„Það eru rúm fjögur ár síðan ég stóð hérna síðast á þessum
stað. Það er gaman að vera kominn til baka. Ég heyri það
að það hefur lítið breyst. Menn eru greinilega ánægðir
með að maður skuli vera kominn til baka, ég heyri það og
menn hafa legið yfir viðfangsefnunum í allt sumar og til-
búnir að takast á við þau verkefni sem bíða okkar og það
er gott. Það er ýmislegt sem þarf að gera og það er gott að
hafa hér einstaklinga sem eru tilbúnir að minna okkur á
þegar við erum að gera rangt, þegar við erum að brjóta
lög. Það gæti líka þurft að koma til að ég þyrfti að minna
félaga minn Böðvar á að sveitarstjórnarlög hafa verið
brotin af ýmsu tilefni hér í gegnum tíðina vegna ýmissa
ákvarðana sem hafa verið teknar hér við stórnvölinn
undafarin ár,“ sagði Guðbrandur Einarsson, bæjarfull-
trúi Beinnar leiðar. Hann sagði jafnframt að staðið hefði
verið að ráðningu bæjarstjóra eins faglega og hægt var.
Lýðræðislega hafi verið staðið að ráðningunni „en ekki
einn ríkisflokkur“ staðið á bak við hana eins og þegar
Árni Sigfússon og áður Ellert Eiríksson urðu bæjarstjórar
Reykjanesbæjar. Guðbrandur vísaði því allri umræðu um
ófaglega ráðningu bæjarstjóra til föðurhúsanna.
Bæjarstjóri sléttur að framan
„Menn eru að velta því fyrir sér hvernig þessi bæjarstjóri
eigi að vera í laginu, hvort hann eigi að vera sléttur að
framan í efriparti eða neðriparti,“ sagði Guðbrandur og
vitnaði í framhaldi til þess að hann hafi sagt í viðtali að
hann hvatti konur til að sækja um starf bæjarstjóra en
hann hafi einnig hvatt heimamenn sem væru til þess
bærir að geta sinnt þessu starfi til að sækja um. „Ég sagði
líka í þessu viðtali að við ráðum ekki konu bara af því að
hún er kona. Hún verður að vera sú sem er metin hæfust.
Það voru konur sem sóttu um en þær voru bara ekki
metnar hæfastar,“ segir Guðbrandur. Ferlið hafi endað
þannig að Hagvangur hafi að lokum valið tvo einstaklinga
hæfasta. Þeir voru báðir heimamenn en hvorugur þeirra
var kona.
„Við ætluðum að sjálfsögðu ekki að ráða skoðanalausan
bæjarstjóra. Fyrir mér eru skoðanir pólitík, það liggur
alveg í hlutarins eðli. Fólk sem hefur skoðanir á málum er
pólitískt fólk. Þannig að við ætluðum að sjálfsögðu að ráða
pólitískan einstakling, manneskju sem hefði skoðanir á
samfélaginu sínu, en við ætluðum ekki að hafa það þannig
að ég, eða Friðjón eða Gunnar yrðum bæjarstjórar“. Guð-
brandur sagðist fagna því að þessu faglega ferli væri lokið
og að við værum komin með mjög hæfan einstakling sem
ætlar að leggjast á sveif með okkur og taka á þeim mjög
erfiðu málum sem framundan eru. Þau eru ærin, sagði
Guðbrandur á fundinum.
„Það er ljóst að stríðið er hafið. Böðvar fer hamförum og
byrjar á jákvæðum nótum og þakkar okkur og fagnar en
setur svo á sig stríðshanskana,“ sagði Friðjón Einarsson
bæjarfulltrúi Samfylkingar og óháðra þegar hann kom í
pontu á bæjarstjórnarfundinum. Friðjón velti síðan upp
þeirri spurningu hvort fyrrum stjórnmálamenn eigi aldrei
neina möguleika. Kjartan Már, verðandi bæjarstjóri, hafi
hætt í stjórnmálum fyrir fjórum árum en sé litaður í
grænum lit af Sjálfstæðismönnum í Reykjanesbæ.
„Óþolandi lýðræði í Reykjanesbæ“
Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, kom
í pontu og fagnaði ráðningu Kjartans Más Kjartanssonar
í embætti bæjarstjóra. Hann sá hins vegar ástæðu til að
gagnrýna bæjaryfirvöld þegar kemur að nefndaskipan
og talaði um „óþolandi lýðræði í Reykjanesbæ“. Kristinn
sagði það það gjörsamlega óþolandi að í Reykjanesbæ sé
annað lýðræði en t.a.m. í sveitarfélögum á höfuðborgar-
svæðinu og vísar þar til þess að framsóknarmenn hafi ekki
fengið áheyrnarfulltrúa í fastanefndum bæjarins, þrátt
fyrir að Framsóknarflokkurinn hafi boðist til að hafa full-
trúa sína þar launalaust fyrir bæjarfélagið. Kristinn sagði
formann bæjarráðs hafa gert afglöp í málinu þegar hann
afgreiddi tvær tillögur í málinu sem eina. Önnur tillagan
hafi verið um áheyrnarfulltrúa en hin um kjör þeirra.
Kristinn sagði að á meðan ekki verði breyting á muni
hann tala um óþolandi lýðræði í Reykjanesbæ hvar sem
kostur gæfist á því.
Friðjón Einarsson sagði framkomu Kristins í þessu máli
ekki hafa verið til sóma „og orðháttur og hótanir bæði til
mín og framkoma í kringum allt þetta mál finnst mér ekki
sómi bæjarfulltrúa,“ sagði Friðjón.
Kristinn kom upp og baðst afsökunar á að ef hann hafi
notað einhver illa valin orð á einhverjum fundi, þá biðjist
hann afsökunar á því „en mér var misboðið á þeim fundi,
gjörsamlega“. Kristinn sagði enn fremur „ég er gjörsam-
lega yfir mig hneykslaður á ráðstöfun og afglöpum for-
manns bæjarráðs í meðferð þessara tillagna minna. Ég
stend alveg við það“.
Nánar verður fjallað um bæjarstjórnarfundinn á vf.is.
„Kjartan Már er ekki kona“
- fyrsti bæjarstjórnarfundur eftir sumarfrí eins og atburðarás við Bárðarbungu
Frá fundi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þriðjudagskvöld. Stóll bæjarstjóra er auður og bíður eftir að Kjartan Már
Kjartansson komi til starfa 1. september nk. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson