Víkurfréttir - 21.08.2014, Page 7
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 21. ágúst 2014 7-viðtal hilmaru vf@vf.is
Fjölskyldudagar voru haldnir í Sveitarfélaginu Vogum frá fimmtu-degi til sunnudags um síðustu helgi. Í boði var fjölbreytt dagskrá
fyrir alla aldurshópa. Hátíðin náði hámarki á laugardeginum. Að deg-
inum til var dagskrá í Aragerði sem var sniðin fyrir börn og fjöldi leik-
tækja en um kvöldið var blásið til tónleika og kvöldinu lauk svo með
flugeldasýningu sem Björgunarsveitin Skyggnir annaðist.
Á föstudeginum var tekin í notkun
ný stúka við íþróttavöllinn sem var
byggð af sjálfboðaliðum sem tóku
sig til og fjármögnuðu verkefnið og
höfðu frumkvæði að því sjálfir. Á
fjölskyldudögum var einnig haldið
golfmót, farin söguganga og vígð
ný upplýsingaskilti í sveitarfélag-
inu. Þá endaði hátíðin með tón-
leikum í Tjarnarsal grunnskólans á
sunnudagskvöldinu.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í
Sveitarfélaginu Vogum, er ánægður
með hvernig til tókst. Hátíðin hefur
verið haldin í nokkur ár og alltaf um
þessa sömu helgi í ágúst. „Hátíðin
hefur náð að festa sig í sessi en dag-
skráin er á svipuðum nótum frá ári
til árs. Íbúarnir eru mjög virkir en
við skiptum bænum upp í þrjú hverfi
sem öll hafa sinn lit. Við höfum
hverfaleika en allt gengur þetta út á
að efla íbúana og samkennd þeirra
og efla bæjarbraginn,“ segir Ásgeir í
samtali við Víkurfréttir.
– Nú komst þú hingað til starfa um
mitt síðasta kjörtímabil. Hvernig
koma Vogar þér fyrir sjónir?
„Þeir koma mér skemmtilega á
óvart og ég hef ekkert nema já-
kvæða og góða reynslu af Vog-
unum. Þetta er samfélag sem byggir
fyrst og fremst á góðu mannlífi.
Hér er stutt í allar áttir og Vogar
eru vel staðsettir. Það er jafn langt
fyrir okkur að fara á höfðuborgar-
svæðið eins og til Reykjanesbæjar
eða á flugvöllinn. Það er mikil og
rík saga hér. Löng útgerðarsaga,
t.a.m. árabátaútgerð inn eftir allri
Vatnsleysuströndinni. Það er mikið
dreifbýli hér inn eftir strönd þann-
ig að við erum með góða blöndu
af byggð og frábæra náttúru sem
leynir á sér þegar maður fer að
kynna sér hana aðeins“.
Egg og beikon
Atvinnulífið í Vogum byggir fyrst
og fremst á matvælaframleiðslu.
Nokkur leiðandi fyrirtæki hafa
aðsetur í Vogum og á Vatnsleysu-
strönd. Í lögsögu Voga eru bæði
stórt svínabú og stórt eggjabú. Í
sveitarfélaginu eru tvær fisk-
vinnslur og tvö fiskeldisfyrirtæki.
Þá er þar þjónustustarfsemi auk
starfsemi sveitarfélagsins sjálfs.
Ásgeir bæjarstjóri segir að rekstur
sveitarfélagsins gangi þokkalega.
Afkoman er nokkurn veginn í
járnum en þó réttum megin við
strikið alla jafna.
„Við höfum náð miklum árangri
í að koma niður skuldahlutfalli
okkar. Hér varð til sjóður þegar
sveitarfélagið seldi hlut sinn í Hita-
veitu Suðurnesja. Sá sjóður hefur
nú verið notaður til að kaupa upp
fasteignir sem á sínum tíma voru
seldar inn í Eignarhaldsfélagið
Fasteign. Við þessar aðgerðir lagast
skuldahlutfallið mjög og er komið
vel niður fyrir 100% viðmiðið sem
er mjög fínt, þar sem leyfilegt er að
vera með 150% skuldahlutfall.
Stolt af skólanum
Fræðslumálin í Vogum taka til sín
stærsta hlutann af skattfé Voga-
manna. Í grunnskólanum, Stóru-
Vogaskóla, eru tæplega 200 nem-
endur. Þá rekur sveitarfélagið leik-
skóla og er með íþrótta- og félags-
starf. Ásgeir segir að íbúar í Vogum
séu stoltir af skólanum sínum, enda
séu nemendur að ná góðum ár-
angri og þar starfi einvala lið góðs
starfsfólks.
Sveitarfélagið Vogar stendur ekki
fyrir neinum framkvæmdum
um þessar mundir. Í sumar hafi
þó verið unnið við lagfæringu á
götum í bæjarfélaginu. Stefnan
hefur verið sú eftir hrun að stíga
varlega til jarðar. Í hruninu 2008
varð skuldsetningin sveitarfélaginu
talsvert erfið. „Við erum fyrst og
fremst að reyna að halda við okkar
eignum en nýframkvæmdir eru í
sjálfu sér engar frá því við tókum í
notkunn nýja knattspyrnuvelli eða
íþróttamannvirki fyrir nokkrum
árum, sem var gert af myndarskap
og kostaði talsvert mikið fé“.
Getum tekið við fleira fólki
Í Sveitarfélaginu Vogum búa í
dag um 1130 manns en voru
mest 1240-50 árið 2008. Fækkun
íbúa hefur stöðvast og er fjöldi
íbúa aftur á rólegri uppleið. „Við
viljum gjarnan taka við fleira fólki
og höfum innviði til að taka við
fleiri íbúum. Vogar eru heppi-
lega staðsettir og sérstaklega fyrir
fólk sem þarf að sækja atvinnu út
fyrir sveitarfélagið“. Flestir sækja
vinnu út fyrir bæjarmörkin, bæði
á höfuðborgarsvæðið og til Reykja-
nesbæjar. „Landrými er hér nægt
og við vonumst
til að íbúum fari
að fjölga á nýjan
leik,“ segir Ás-
geir Eiríksson
b æj ars t j ór i í
Sveitarfélaginu
Vogum í samtali
við Víkurfréttir.
Ítarlegra viðtal
er við Ásgeir í
Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is og í
vikulegum sjónvarpsþætti Víkur-
frétta á ÍNN í kvöld, fimmtudags-
kvöld kl. 21:30
Viðtal og myndir: Hilmar Bragi
Myndir: Frá fjölskyldudögum í
Vogum um nýliðna helgi.
Vogar koma skemmtilega á óvart
- segir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í viðtali við Víkurfréttir
Umhverfis- og skipulagsnefnd
Sveitarfélagsins Voga veitti um
nýliðna helgi tvær umhverfis-
viðurkenningar í sveitarfélaginu.
Viðurkenningarnar voru veittar á
fjölskyldudögum í Vogum.
Guðrún H. Sigurðardóttir og
Reynir Ámundason að Fagradal
11 fengu viðurkenningu fyrir stíl-
hreina, snyrtilega og vel við haldna
lóð.
Ragnhildur Hanna Finnbogadóttir
og Rúnar Vigfússon í Klöpp, Ægis-
götu 39, fengu viðurkenningu fyrir
fallegar endurbætur á húsi og fjöl-
breyttan og áhugaverðan garð.
■■ Sveitarfélagið Vogar:
Fagridalur 11 og Klöpp fengu viðurkenningu
Fagridaglur 11.
Ægisgata 39.
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Sveitarélag
inu Vogum.