Víkurfréttir - 12.03.2015, Page 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
vf.is
r , . ,
j r
í i: 1
t r: f f.i
f r i l r i
ir l. -1
l i í i
r 1 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FIMMTUDAGURINN 5. MARS 2015 • 9. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Hæstvirtur forseti. Það stendur í frum-varpinu að það muni aldrei koma til þess
að yngri en 18 ára afgreiði vín. En ég velti
þá fyrir mér, af því að verslunin í landinu er
alltaf að reyna að ná niður kostnaði og græða
meira, að t.d. í mínum heimabæ, Grindavík,
er meðalaldur þeirra sem eru að afgreiða á
kassa 13 og 14 ára, og starfsmannaveltan er
gríðarleg,“ sagði grindvíski þingmaðurinn
Páll Valur Björnsson, Bjartri framtíð, í and-
svari í umræðu um áfengisfrumvarpið á Al-
þingi í gær.
Páll Valur velti líka fyrir sér
hvort Nettó í Grindavík yrði
tilbúið að fara að stækka hús-
næði sitt til þess að vera með
áfengi. „Ég veit það ekki. Ég held
að þetta yrði gríðarlegt vanda-
mál. Nú þegar starfa 350 manns
við þetta og starfsmenn ÁTVR á Íslandi eru
mjög ánægðir. Í Grindavík erum við með ÁTVR
nánast við hliðina á búðinni. Þar starfa ósköp
glaðlyndar og skemmtilegar konur, Gunnhildur
og Gerður, og þær hafa miklar áhyggjur af þessu.
Þetta hefur sett starf þeirra í mikið uppnám.
Ég held að það myndi verða mjög erfitt fyrir
verslunareigendur að hafa eftirlit með þessu.“
Atvinnulausum á Suðurnesjum hefurfækkað um 186 á milli áranna 2013
og 2014. 655 voru atvinnulausir í janúar,
290 karlmenn og 365 konur. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofn-
unar. Hlutfallslegt atvinnuleysi á Suður-
nesjum í janúar var alls 5,8%; 4,8% karla
og 7,1% kvenna. Fjöldi atvinnulausra í lok
janúarmánaðar voru 43 í Grindavík, 466
í Reykjanesbæ, 77 í Sandgerði, 43 í Garði
og 26 í Vogum. 3,6% atvinnuleysi var á
landinu á sama tíma.
Guðbrandur Einarsson, bæjarfulltrúi í
Reykjanesbæ og formaður Verslunar-
mannafélags Suðurnesja, segir fækkun
meðal atvinnulausra vera í samræmi við
það að þeim sem fá félagslega aðstoð hjá
Reykjanesbæ fækki einnig.
„Einnig hefur atvinnulausum félags-
mönnum VS fækkað verulega og í dag eru
innan við 40 félagsmenn VS á atvinnuleysis-
skrá.“
„Það voru þó nokkrir sem sem kláruðu
bótaréttinn sinn um áramótin vegna laga-
breytinga. Þetta er fyrsti hópurinn sem
klárar bótarétt sinn eftir að réttur var
skertur, bótarétturinn var á lengdur á tíma-
bilinu eftir hrun. Margt af þessu fólki telst
hvergi og fær ekki félagslega aðstoð frá
sveitarfélaginu sínu vegna þess að maki
þess er yfir hámarkskvarða í tekjum. Þetta
er ótrúleg grimmd og kerfið hættir að leita
að vinnu fyrir fólk,“ segir Kristján Gunnars-
son, formaður VSKF. Fólk sé orðið ófeimn-
ara við að leita sér fjárhagsaðstoðar en áður.
„Það þykir ekki eins mikil skömm að standa
í röð til þess og ég held að það sé mjög
hæpið að fólk geri slíkt að ástæðulausu til
að fá mjólkurpott, brauð og bjúgupakka,
sem er nálægt því að renna út á tíma. Fólk
er opnara með neyð sína. Atvinnuleysið er
örugglega meira en tölur sýna og þær segja
ekkert til um félagslega stöðu fólks. Það er
því ekki ólíklegt að þessi hópur, sem fær
hvergi höfði sínu að halla, leiti til kirknanna,
Rauða krossins og Fjölskylduhjálpar.“
Þórunn Íris Þórisdóttir, rekstrarstjóri Kefla-
víkurkirkju sem hefur umsjón með Vel-
ferðarsjóði Suðurnesja, segir hvorki hafa
fækkað né fjölgað í hópnum sem leiti til
hennar. „Aldursbilið er orðið breiðara,
hópurinn margbrotinn og meira af ungu
fólki á menntaskólaaldri sem er í vand-
ræðum.“ Unga fólkið sem leiti til hennar
geri sér stundum ekki grein fyrir því að
ýmislegt er í boði til að efla sjálfsmynd þess
til að breyta stöðunni. „Margir sem koma
hingað þurfa fyrst og fremst á hvatningu og
stuðningi að halda sem þeir fá ekki heima.
Það kemur jafnvel stolt hingað til að segja
frá góðum árangri sem það hefur náð í námi
eftir að hafa þegið styrk úr Velferðarsjóði
fyrir skólagjöldum, bókakostnaði og skóla-
mat.“
■■ Tugir kláruðu bótarétt sinn um áramótin og fá ekki félagslega aðstoð:
Færri atvinnulausir en fleiri í neyð
Philips DVD Spilari
7.995 |-996 | 6.999 kr
RISA RAftækjAútSAlA í Nettó ReykjA
NeSbæ
Philips 50” lED SjónVarp FHD
119.995 | 19.996 | 99.999 kr
Allir sem versla
raftæki geta tekið
þátt í leik og unnið
þetta Philips 50”
leD sjónvarp að
verðmæti 119.995kr!
Kræsingar & kostakjör
M
ar
kh
ön
nu
n
eh
f
RAftækjADAgAR
nettó reyKjAnesbæ
RISA
10%
20% 30%
40%Nextbook SpjalDtölVa 7,85”
16.995 | -2.596 kr | 14.399 kr
Páll Valur þingmaður á Alþingi:
Eru Gunnhildur og
Gerður ekki betri en
13-14 ára unglingar?
Vonin KE 10 fauk á hliðina í slippnum hjá Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur í óveðrinu sem gekk yfir í
gær. Í snarpri vindhviðu lagðist Vonin á hliðina.
Bátur sem stendur við hliðina stóð einnig tæpt
og ætluðu menn að bíða þar til vind lægði til að
huga frekar að bátunum. Vonin KE er þjónustu-
bátur fyrir köfunarverkefni og var í slippnum til
viðhalds. VF-mynd: Hilmar Bragi
Fauk á hliðina í slippnum
Fimleikar, loðna og leikhús
Níundi þáttur Sjónvarps Víkurfrétta verður á dagskrá ÍNN í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Í þættinum kíkjum við m.a. í heim-
sókn til Fimleikadeildar Keflavíkur en ungir fimleikastrákar nældu í
fyrsta bikarmeistaratitil deildarinnar á móti um síðustu helgi. Fim-
leikastrákarnir eru á myndinni hér til hliðar. Í þættinum skellum við
okkur einnig í loðnuhrognavinnslu hjá Saltveri í Njarðvík, tökum
púlsinn á ferðamálum á svæðinu og ræðum við Davíð Guðbrandsson
leikara sem er að leikstýra í fyrsta skipti um þessar mundir. Þátturinn
verður einnig aðgengilegur í háskerpu á vf.is.
-Fólk er opnara með neyð sína, segir formaður VSKF. Fáir atvinnulausir hjá Verslunarmannafélaginu.
Vikulegur sjónvarpsþáttur frá Suðurnesjum
Sjónvarp Víkurfrétta
á ÍNN fimmtudagskvöld kl. 21:30
– og í HD á vf.is þegar þér hentar!
Poppstjarna og söngfugl úr Sandgerði
... Nett mótið í körfu
og leikskólaafmæli
Stefna og framtíðarsýn fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi
er mikilvægt verkefni, sem í
raun hefði þurft að vera búið
að vinna áður en sprenging
varð í fjölgun ferðamanna fyrir
nokkrum árum. Þetta segir
Magnús Stefánsson, bæjar-
stjóri í Garði, en han var þátt-
takandi í fu di m ferðamál
í Duus s m
fram fór í
i k u n n i .
Hann rit r
p i s t i l á
heimasíðu
Sveitarfélagsins Garðs þar sem
hann fjallar um fundinn.
„Við höfum að mörgu leyti ekki
búið okkur undir þessa þróun,
m.a. með uppbyggingu inn-
viða og erum að elta þróunina
að því leyti. Ég velti fyrir mér
hvort ferðaþjónustan ætti að
horfa til þróunar hjá sjávarút-
vegnum. Horfa frá magni yfir
í aukin verðmæti, því fjöldinn
og magnið skilar ekki endilega
mestum tekjum og framlegð.
Það sem skiptir megin máli er
að nýta auðlindina með sjálf-
bærni að leiðarljósi og á sem
hagkvæmastan hátt. Aukin
framlegð skapar forsendur til að
hækka laun. Það eru allar slíkar
forsendur fyrir hendi varðandi
ferðaþjónustuna, en til að það
geti orðið þarf stefnumótun, að-
gerðaáætlun og samvinnu allra
aðila sem að málinu ko a. Ég
held við séum að fara á rétta leið
í þessum málu ,“ segir Ma nús
bæjar tjóri í Garði.
Kef lvíkingurinn Guðf inna
Bjarnadóttir leiðir vinnu verk-
efnahóps í f rðamálum og var
með framsögu á fundi fyrir
aðila í erðaþjónustu á Suður-
nesjum. Að-
spurð hvað
væri mikil-
vægast sagði
hún hrein-
lega gestrisni
og kurteisi.
„Upplifun ferðamanna er í
raun nándin við þá sem eru að
þjónusta. Ferðaþjónusta úti um
allan heim þrífst á því að það sé
gestrisni g þetta þægilega við-
mót sem við viljum öll þegar við
erum á ferðalögum,“ sagði hún.
Ítarlegra viðtal við hana er á bls.
18 í blaðinu.
e ðaþjónusta horfi til
þró í sjáv rútvegi
– segir Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði. Gestrisni og kurteisi mikilvæg, segir Guðfinna Bjarnadóttir.
Ferskir vindar tilnefndir
til Eyrarrósarinnar
XXFerskir vindar í Garði eru tilnefndir til Eyrar-
rósarinnar, sem er v ðurkenning fyrir fra úr-
skarandi menning verkefni á landsbyggðinni.
Tíu verkefni hafa fengið tilnefningu að þessu
sinni.
Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúr-
skarandi menningarverkefni á starfssvæði
Byggðastofnunar. Markmið Eyrarrósarinnar
er að beina sjónum að og hvetja til menn-
ingarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og upp-
byggingar, á sviði menningar og lista. Það eru
Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð
í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaun-
unum frá upphafi árið 2005.
1944 vilja prestkosningu
í Keflavíkursókn
XXAlls skrifuðu 1944 einstaklingar undir áskorun
um að kosning fari fram um næsta sóknarprest í
Keflavíkursókn en sem kunnugt er sagði Sr. Skúli
Ólafsson upp störfum nýlega og hefur tekið til
starfa í Nessókn.
Kristinn Jakobsson og Anna Sigríður Jóhannes-
dóttir fóru fyrir hönd hóps sem stóð að söfnun
undirskriftanna og afhentu listana á biskups-
stofu í morgun sem mun í framhaldinu fara yfir
þá og síðan taka ákvörðun um tímasetningu
kosningarinnar.
„Við erum mjög þakklát fyrir þessa þátttöku. Það
leynis samhugur í Suðurnesjamönnum þegar á
þarf að halda og hann virkjaður,“ sögðu Kristinn
og Anna við VF.
Þá eru fleiri breytingar í farvatninu í starfs-
mannahaldi Keflavíkurkirkju á aldarafmælinu.
Sigfús B. Ingvason sem verið hefur prestur í
tæpan aldarfjórðung mun hætta störfum 1.
ágúst. Valnefnd á vegum Biskupsstofu mun sjá
um ráðningu í hans starf.
Vitað er að stuðningsmenn Erlu Guðmunds-
dóttur sem starfað hefur sem prestur í Kefla-
víkursókn undanfarin sex ár, eru í skýjunum en
þeir eru margir í sókninni. Þeir vilja fá hana sem
næsta sóknarprest og áttu frumkvæðið að því að
farið var í söfnun undirskrifta vegna kosningar.
Kristinn Jakobsson og Anna Sigríður Jóhannes-
dóttir með undirskrift listana.
Í ÓLGUSJÓ
Berglín GK úr Garði kom inn
til Keflavíkurhafnar í ólgusjó í
vikunni. Tíðarfarið hefur gert
sjómönnum erfitt fyrir í vetur.
VF-mynd/hilmarbragi.
FIMMTUDAGURI N 12. MARS 2015 • 10. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR