Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2015, Side 6

Víkurfréttir - 12.03.2015, Side 6
6 fimmtudagurinn 12. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR -viðtal pósturu vf@vf.is Júlíus Viggó Ólafsson er að verða 14 ára og byrjaði að syngja fyrir sjö árum. Faðir hans, tónlistarmaðurinn og Sand- gerðingurinn Ólafur Þór Ólafs- son, segir alltaf hafa legið fyrir drengnum að gera eitthvað í tónlist. „Hann byrjaði að syngja áður en hann byrjaði að ganga. Þetta var skrifað í stjörnunar. Það hjálpaði örugglega líka að ég var úti um allt að syngja.“ Þegar móðir Júlíusar gekk með hann voru foreldrarnir duglegir við að fara á tónleika og í raun vera innan um tóna og tónlist alla tíð. Hann lærði söng í nokkrar vikur þegar ég var lítill patti, en fannst gömlu dægurlögin sem kennd voru ekki vera efni sem átti við hann. „Ég hef aðallega lært að syngja með því að koma fram með pabba og syngja fyrir fólk. Það er mjög gott að hafa lifandi undirspil, það gefur atriðunum meira líf og líka er hægt að breyta tóntegund eftir því sem mér finnst best. Svo hefur pabbi líka verið duglegur að benda mér á hluti, hvernig ég á að opna hálsinn og ná hærri tónum,“ segir Júlíus. Reyndar sé framundan sá tími að röddin þroskast og breytist. „Annað hvort verða læti eða þagnir,“ segir hann í gamansömum tón. Fenginn til að syngja víða Ólafur Þór segir gaman að fylgj- ast með því hvernig hlutirnir hafi breyst frá því að pabbinn stjórnaði öllu og yfir í að sonurinn stjórni þessu sjálfur. „Hann velur lögin sjálfur og ég æfi mig fyrir undir- spilið.“ Júlíus hefur víða komið fram hjá hinum og þessum félög- um, m.a. á hátíðisdögum. Spurður um sönginn sem framtíðarstarf segir hann allt fara eftir því hvernig þetta þróast. „Ég sé þetta allavega fyrir mér sem áhugamál og eitt- hvað sem ég hef til hliðar. Þetta tekur t.d. ekki mikinn tíma frá náminu, ég æfi bara þegar ég hef tíma og ég næ vel að halda utan um allt sem ég þarf að gera.“ Spurður um uppáhalds söngvara segist Júlíus hafa gaman að því að því að hlusta á lög frá því í fyrri heimstyrjöldinni. „Jazz er líka mjög skemmtilegur. Uppáhaldslag er La Mer með Django Reinhardt og líka lög með Edit Piaf. Ætli það megi ekki segja að ég sé gömul sál,“ segir Júlíus og brosir en hann er í sviðs- ljósinu hjá Sjónvarpi Víkurfrétta í þessari viku. SVF fylgdist með honum syngja fyrir eldri borgara á Nesvöllum og það geta áhorfendur séð í sjónvarpsþætti vikunnar. -ritstjórnarbréf Hilmar Bragi Bárðarson skrifar Ferðaþjónustan er ekki einkamál ferðaþjónustunnar. Hún snertir okkur öll. Gríðarlegur vöxtur hefur verið í komu ferðamanna til landsins og Suður- nesjamenn fara ekki varhluta af því. Vöxturinn er meiri hér en yfir landið allt. Þannig fjölgaði gistinóttum hér um 21% á milli ára meðan landsmeðal- talið er 13%. Við heyrum af því að uppselt er í Bláa lónið dag eftir dag og það þurfi í raun að panta tíma í lónið. Lónið er mikill segull sem dregur til sín stærstan hluta þeirra ferðamanna sem koma til landsins. Nú er unnið í því að dreifa ferðamönnum meira um svæðið út frá Bláa lóninu. Þuríður Aradóttir hjá Markaðsstofu Reykjaness sagði í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta í síðustu viku að Reykjanesskaginn væri skemmtilegt svæði fyrir ferðamenn og þar væri mikil umferð ferðamanna. Það væri hins vegar verkefni nú að stoppa ferðafólk lengur á svæðinu. Ferðaþjónustufólk á svæðinu þurfi því að eiga samtal saman og vinna í sameiningu að því að finna réttu áhersluna í ferðamálum fyrir svæðið. Keflvíkingurinn Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, setti í gang í október sl. vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir íslenska ferðaþjónustu og stuðla að samkeppnishæfni hennar á alþjóð- legum vettvangi til lengri tíma. Hún fékk annan Keflvíking, Guðfinnu Bjarnadóttur, til að leiða vinnuna. Guðfinna boðaði til fundar með ferða- þjónustunni á Suðurnesjum í síðustu viku m.a. til að ræða það hvert skal stefna. Því miður var dræm mæting frá ferðaþjónustunni á þann fund. Þrátt fyrir að ferðamenn í janúar nú séu 35% fleiri en í sama mánuði í fyrra þá segir Guðfinna að fjöldi ferðamanna sé ekki markmið útaf fyrir sig. „Það er verðmætasköpunin sem hlýst af greininni. Á allra síðustu mánuðum og misserum hefur hver ferðamaður verið að skilja minna eftir sig, sem er al- gjörlega öfug þróun miðað við það sem við vildum sjá,“ segir hún í samtali við Víkurfréttir. Spurð að því hvað sé það mikilvægasta sem ferðaþjónustan getur gert í dag, sagði Guðfinna: „Það sem er mjög mikilvægt er hreinlega gestrisni og kurteisi. Upplifun ferðamanna er í raun nándin við þá sem eru að þjónusta. Ferðaþjónustan úti um allan heim þrífst á því að það sé gestrisni og þetta þægilega viðmót sem við viljum öll þegar við erum á ferðalögum. Um leið og ferðamaðurinn upplifir eitthvað frábært, þá mun hann mögulega setja það á samfélagsmiðla og sú umsögn ferðast,“ segir Guðfinna m.a. í viðtali við Víkurfréttir í dag. Gestrisni og kurteisi ferðaþjónustunnar skilar sér á samfélagsmiðla Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Sigurður Gunnarsson siddi@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, dora@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur P Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. SÍMI 421 0000 6 fimmtudagurinn 5. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR Ungmennin er okkur hugleikin í Víkurfréttum þessa dagana. Bakgrunnur þeirra er misjafn alveg eins og áhugamálin sem eru fjölbreytt. Davíð Guðbrandsson fann sig ekki í fótbolta, sundi eða körfubolta sem að hans mati þurfti að geta til að meika það í heimabænum þegar hann var barn og unglingur. Hann prófaði að fara í Leikfélag Keflavíkur og var tekið þa opnum örmum. „Það er líka mikill þroski fyrir ungt fólk að taka þátt í leikfélagsstarfi. Þetta er góður félagsskapur fólks á öllum aldri og þessu fylgir mikil ábyrgð,“ segir Davíð í viðtali í Víkurfréttum. Drengjafimleikar eiga sér mjög stutta sögu hjá Keflavík en fulltrúar félagsins, 9-14 ára, unnu fyrsta bikarmeistaratitilinn í sögu þess, á bikarmóti í áhaldafimleikum um síðustu helgi. Aðrir keppendur frá Keflavík kræktu sér í brons eða unnu sér inn þátttökurétt á Íslands- mótinu. Þar er þjálfar nn Vilhjálmur Ólafsso greinilega að vinna gott starf fyrir félagið, laða að og draga fram það besta í sínu fólki. Yfir 100 skólakrakkar hafa sótt um sumarvinnu hjá Saltveri í Njarð- vík og 20 ungmenni starfa þessa dagana á næturvöktum í loðnu- vinnslu þar. „Þei eru örugglega dauðþreyttir í skólanum. Buddan verður í lagi hjá þeim og það er vonandi að skólinn sætti sig við það,“ segir Guðmundur Jens Guðmundsson, framleiðslu- og útgerðar- stjóri, í samtali við Víkurfréttir. Það er ekki oft sem skólakrökkum g fst t kifæri til að vinna sér inn góðar tekjur á stuttu tíma og kynnast fjörinu og pu inu sem fylgir vertíðum. Sú var íðin að skólar gáfu nemendum jafnvel frí til þess að hægt yrði að bjarga slíkum verð- mætum í vinnslu. Til er hóp r u glinga sem skortir sjálfsöryg i til að finna styrkleika sína og stuðni ginn sem þarf til að virkja þá. Þórunn Íris Þórisd ttir, sem hefur umsjón með Velferðarsjóði Suðurnesja, segir fleira ungt fólk á menntaskólaaldri eiga í vandræðum en áður. Unga fólkið sem leiti til hennar geri sér stundum ekki grein fyrir því að ýmislegt er í boði til að efla sjálfsmynd þess til að breyta stöðu sinni. „Margir sem koma hingað þurfa fyrst og fremst á hvatningu og stuðningi að halda sem þeir fá ekki heima. Þeir koma jafnvel stoltir hingað til að segja frá góðum árangri sem þeir hafa náð í námi eftir að hafa þegið styrk úr Velferðarsjóði fyrir skólagjöldum, bókakostnaði og skólamat,“ segir Þórunn Íris í forsíðufrétt í Víkurfréttum. Þótt baklönd unga fólksins séu misjöfn heima fyrir, þá eru þau samt víða í samfélaginu og þar er vel hægt að ná fram því besta, leyfa því að prófa fjölbreyttar leiðir til að finna sig; hvort sem það er í námi, vinnu eða félagsstarfi. Svo má ekki gleyma að hrósa þeim og hvetja. vf.is Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjó n: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Frét astjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamenn: Olga Björt Þórðardótti , sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Hönnun og umbrot: Þorsteinn Krist sson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdó tir, sí i , rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Prentu : Landsp nt hf. Upplag: 9000 eintök. Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er al ennt á fimmtudögu . Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. SÍMI 421 Hefur þú ekki tíma fyrir morgunmat? Sumir hlaupa út á morgnana með tóman maga og gefa sér ekki tíma til að byrja daginn á staðgóðum morgunmat. Þarna er snilld að vera búin að græja morgunmatinn áður en þú ferð að sofa og kippa þessu bara með í vinnuna eða skólann næsta morgunn. Þannig ertu viss um að þú sért að byrja daginn vel og getur betur haldið þér í jafnvægi með næstu máltíðir yfir daginn. Hér eru nokkrar hugmyndir að morgunmat sem mér finnst gott að eiga tilbúið í ísskápnum ef tíminn er naumur næsta dag. • Hafragrautur eða chiagrautur í krukku. Láta hafra eða chia fræ í krukku með vatni eða möndlumjólk og í ísskáp. Sniðugt að bæta kanil, rúsínum, kakódufti, bláberjum og kókósflögum út í. T.d. alveg hægt að gera chia krukkugraut fyrir 3 daga í einu. • Eggjamuffins. Hrærið saman í ommilettu og hellið í sílikon muffins form og bakið í ofni kvöldinu áður. Fínt að grípa 1-2 með sér í vinnuna. • Berjaboost sem hægt er að geyma í ísskápnum og drekka strax um morguninn. Líka gott að gera grænmetissafa í safapressunni gulrótar -eða rauðrófusafa með sítrónu. • Soðin egg og avókdaó. Mjög gott að sjóða vel af eggjum til að grípa með sér ef lítill tími. Egg og avókadó fer mjög vel saman til að redda sér á í morgunkaffinu. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is, www.pinterest.com/grasalaeknir ÁSDÍS GRASALÆKNIR SKRIFAR Árshátíð Reykjanesbæjar var haldin 28. feb. í Stapa og mættu rúmlega 500 manns og skemmtu sér konunglega. Örvar Þór Kristjánsson var veislustjóri, Pétur Jóhann var með uppistand, Sverrir Bergmann og Halldór fjallabróðir voru með skemmtiatriði ásamt því að spila á Stapabar. Síðan hélt Buffið uppi stuðinu. Holta- og Háaleitisskóli sáu um árshátíðina í ár. Í nefndinni voru úr Holtaskóla Elínborg Herberstdóttir, Freydís Helga Árnadóttir, Hildur Bára Hjartar- dóttir, Sigurbjörg Jónsdóttir og Stefanía Helga Björnsdóttir. Úr Háaleitisskóla voru Guðný Ólöf Gunnarsdóttir, Halla Karen Guðjónsdóttir og Jón Haukur Hafsteinsson. Hér eru myndir af nokkrum en það má sjá fleiri á vf.is. -mannlíf pósturu vf@vf.is Ekkert væl bara stuð hjá Reykjanesbæ! íf -ritstjórnarbréf Olga Björt Þórðardóttir skrifar Að velja sér bakland ■■ 14 ára upprennandi söngstjarna úr Sandgerði heldur mest upp á lög frá fyrri heim- styrjöldin i. Syngur úti um öllum Suðurnesin. Fékk sönggenin úr föður sínum: ER LÍKLEGA GÖMUL SÁL Heimsótti eldri borgara á Nesvöllum í Reykjanesbæ Hinn ungi Júlíus Viggó söng fyrir eldri borgara á Nesvöllum í Reykjaenesbæ nýlega. Þar tók hann nokkur lög með Óla föður sínum. Það er ávallt fjör hjá öldruðum á Nesvöllum og þeir eru á leiðinni í ske mtilega ferð norður í land og verða af því tilefni með fjáröflunar- kaffi þegar spilabingó fer fram á morgun föstudag. „Hlutverk gestastofunnar er að vera upplýsinga- og fræðslumiðstöð þar sem gestir fá upplýsingar um jarð- vanginn, s.s. sérstöðu hans, jarð- fræði, náttúrufar, sögu, þjónustu og afþreyingu. Þar er sagt frá mótun Reykjanesskagans á myndrænan hátt, skýringamyndir eru unnar af Suðurnesjamanninum Guðmundi Bernhard sem fékk það hlutverk að gera flóknar myndir sem fræði- menn unnu að til einföldunar fyrir almenning,“ segir Eggert Sólberg Jónsson, verkefnastjóri jarðvangs, gestastofan opnar á morgun, 13. mars og er hún sú fyrsta sinnar tegundar í jarðvangnum. Jarðfræðingurinn Ari Trausti Guð- mundsson skrifaði handrit sýn- ingarinnar og Björn G. Björnsson sá um heildarútlit. „Myndbönd af jarðvangssvæðinu verða sýnd á stórum sjónvarpsskjám og sagt frá því helsta sem fyrir augu ber á Reykjanesskaganum. Þá verður stórt líkan af Reykjanesskaganum áberandi í Gestastofunni sem er gagnvirt þar sem ljós blikka þegar ýtt er á takka.“ Gestastofan þjóni sem upplýsingamiðstöð í Reykja- nesbæ og sé skilgreind sem lands- hlutamiðstöð. Að jarðvangnum standa öll sveitar- félögin á Suðurnesjum og sex aðrir hagsmunaðilar; Keilir, Bláa Lónið, Ferðamálasamtök Reykja- ness, Þekkingarsetur Suðurnesja, HS Orka og Heklan – Atvinnu- þróunarfélag Suðurnesja. Sýningin er fjármögnuð með styrkjum frá Sóknaráætlun Suðurnesja og Menningarráði Suðurnesja. Unnið er að því að opna Gestastofur í öllum sveitarfélögum á Suður- nesjum á næstu árum. Gestastofan opnar kl. 14:00 og eru allir vel- komnir. Myndrænt og einfalt fyrir almenning ■■ Gestastofa jarðvangs opnar á morgun í Duushúsum:

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.