Víkurfréttir - 12.03.2015, Page 18
18 fimmtudagurinn 12. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Hlusta á fólk í ferðaþjónustu
„Ragnheiður Elín hafði samband
við mig síðasta sumar því hún vildi
fara af stað með stefnumótun og
móta framtíðarsýn fyrir ferða-
þjónustuna sem er ört stækkandi
atvinnugrein og orðin langmesta
útflutningsafurðargrein fyrir okkur
Íslendinga. Það var ákveðið að gera
stefnuna þannig að bæði einkaað-
ilar í greininni og ríkið væru
saman. Við erum að safna gögnum
og greina þau gögn. Þá erum við að
hlusta á fólk og við höfum haldið
vel yfir 20 fundi og þessi hér í
Reykjanesbæ er einn af þeim. Við
förum um landið og tölum við fólk
í mismunandi landshlutum um
þeirra ábendingar og upplifun af
ferðaþjónustu og þeirra áherslu-
þætti,“ segir Guðfinna í samtali við
Víkurfréttir.
-ferðamál pósturu vf@vf.is
ER MIKILVÆG Í
FERÐAÞJÓNUSTUNNI
Keflvíkurmærin
Guðfinna Bjarnadóttir
leiðir vinnu verkefna-
hóps sem skoðar ferða-
þjónustuna
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, setti í gang í október sl. vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Mark-
miðið er að byggja góðan grunn fyrir íslenska ferðaþjónustu og stuðla að samkeppnis-
hæfni hennar á alþjóðlegum vettvangi til lengri tíma. Mikið hefur verið kallað eftir
því að stjórnvöld móti stefnu og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu og sterkur
vilji er meðal hagsmunaaðila að koma að þeirri vinnu.Stýrihópur um verkefnið starfar
undir formennsku ráðherra en þar eiga einnig sæti ferðamálastjóri og formaður og
framkvæmdastjóri SAF. Samhliða er starfandi verkefnahópur, sem heldur utan um
verkefnið og er ætlað að kortleggja stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu, huga að umgjörð
ferðaþjónustunnar á Íslandi og taka mið af þekkingu og þróun ferðaþjónustu erlendis,
einkum þar sem vel hefur tekist til. Verkefnahópnum er ætlað að gera tillögu að stefnu
og framtíðarsýn til lengri tíma og aðgerðaráætlun til skemmri tíma.
Keflvíkingurinn Guðfinna Bjarnadóttir leiðir vinnu verkefnahópsins en hún var með
framsögu á fundi fyrir aðila í ferðaþjónustu á Suðurnesjum í síðustu viku. Því miður var
þátttaka á fundinum dræm en ferðaþjónustan stendur í dag á ákveðnum tímamótum.
Viðtal og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Gestrisni
og kurteisi
Hún segir nauðsynlegt að hlusta á
fólk og meta reynslu þess og ekki
síður að sjá hvað þær þjóðir sem
hafa náð hvað lengst í ferðaþjón-
ustu eru að gera og hvernig þær
halda utan um sín ferðaþjónstumál.
35% vöxtur í janúar m.v. sama
mánuð í fyrra
„Við erum á fullu nú í greiningar-
vinnunni sem lýkur núna í lok mars
með því að hópurinn sest niður og
tekur saman alla sína greiningu og
birtir fyrstu drög að stefnu. Hag-
tölur og greining á stöðu ferðaþjón-
ustunnar sýna að við erum aftarlega
í upplýsingaöflun. Þegar hrunið
varð þá skruppu saman tekjur
ríkisins og þá var ákveðið að skera
niður, m.a. í svona gagnagreiningu
á sama tíma og ferðaþjónustuan er
að vaxa svona rosalega hratt. Frá
janúar 2014 til janúar 2015 er 35%
aukning ferðamanna hér á landi.
Það gefur augaleið að fjöldinn er að
vaxa mjög hratt og á sama tíma eru
kerfin okkar ekki að standa sig eins
og skildi og það þarf að laga það.
Okkur vantar betri gögn til að sjá
hver staðan er á hverjum tíma. Mín
sýn er sú að við getum séð gögn í
hverjum mánuði, þannig að þau
sem vinna í ferðaþjónustunni gætu
metið stöðuna hverju sinni“.
Þrátt fyrir að ferðamenn í janúar
nú séu 35% fleiri en í sama mánuði
í fyrra þá segir Guðfinna að fjöldi
ferðamanna sé ekki markmið útaf
fyrir sig. „Það er verðmætasköp-
unin sem hlýst af greininni. Á allra
síðustu mánuðum og misserum
hefur hver ferðamaður verið að
skilja minna eftir sig, sem er algjör-
lega öfug þróun miðað við það sem
við vildum sjá“.
Hraður vöxtur óheilbrigður
Svo hraður vöxtur eins og nú er í
ferðaþjónustunni, er að sögn Guð-
finnu óheilbrigður. „Ástandið er
óheilbrigt í hverju sem er og þá þarf
að staldra við, hugsa málið og reyna
að átta sig á stöðunni. Ég held að
það sé alveg gríðarlega mikilvægt
verkefni sem ráðherrann hóf og
þá með aðkomu greinarinnar, að
staldra núna við og sjá hver staðan
er og hvar við mögulega þurfum að
herða róðurinn.
– Hvernig getum við brugðist við
ástandinu núna?
„Það er aldrei skynsamlegt að
hugsa að við getum lagað eitt-
hvað hratt. Vissulega eru nokkrir
þættir sem við verðum að taka
okkur saman um. Við þurfum að
selja og bjóða upp á eitthvað sem
er einhvers virði fyrir ferðamann-
inn. Huga vel að upplifun þeirra og
reyna að fara ekki ódýrar leiðir. Við
verðum að fara að lögum og gera
eins vel við ferðamanninn og hægt
er. Þá þarf að byggja upp þekkingu
á meðal starfsfólks með menntun á
staðnum eða formlegri menntun.
Við þurfum að efla þekkingu starfs-
fólks á greininni“.
– Hvað er það mikilvægasta sem
ferðaþjónustan getur gert í dag?
„Það sem er mjög mikilvægt er
hreinlega gestrisni og kurteisi. Upp-
lifun ferðamanna er í raun nándin
við þá sem eru að þjónusta. Ferða-
þjónustan úti um allan heim þrífst
á því að það sé gestrisni og þetta
þægilega viðmót sem við viljum öll
þegar við erum á ferðalögum. Við
þurfum að huga að starfsmanna-
málum eins vel og við getum og
þjálfa starfsfólkið“.
Þarf að skapa grundvöll til
launahækkunar
Eitt af þeim hættumerkjum sem
eru í ferðaþjónustunni er að störf
í henni eru ekki hálaunastörf og
sú staða getur komið upp að ekki
fáist fólk til að sinna ferðamönnum.
Seðlabankinn spáir þenslu og þá
vantar vinnuafl og það ekki óeðli-
legt að vinnuaflið leiti þangað sem
eru betri laun. „Þess vegna skiptir
verðmætasköpun í greininni svo
miklu máli til að við getum borgað
hærri laun. Ef framleiðni vinnuafls
eykst þá er það grundvöllur fyrir
hærri launum. Við þurfum öll að
hugsa um það saman hvernig við
getum aukið verðmætasköpun í
greininni“.
Guðfinna segir tækifærin á Reykja-
nesskaganum vera endalaus. Hér
séu seglar sem dragi að ferðamenn.
„Það þarf að halda áfram að skil-
greina þá og gera þá fleiri. Við
verðum að vera góðir sölumenn
og við þurfum að selja eitthvað
sem virði er í. Um leið og ferða-
maðurinn upplifir eitthvað frábært,
þá mun hann mögulega setja það
á samfélagsmiðla og sú umsögn
ferðast,“ segir Guðfinna og bendir
á að samfélagsmiðlarnir séu besti
miðillinn til að láta spyrjast út góða
þjónustu og áhugaverða ferðaþjón-
ustu.
Hjónin Guðfinna
Bjarnadóttir og Vil-
hjálmur Kristjánsson
ásamt Þuríði H.
Aradóttur verkefnis-
stjóra hjá Markaðs-
stofu Reykjaness.
Guðfinna Bjarnadóttir var með
framsögu á fundi Markaðsstofu
Suðurnesja í síðustu viku þar
Guðfinna Bjarnadóttir á ættir sínar að rekja til
Keflavíkur. Hún ræddi við sitt heimafólk á fund-
inum í Duushúsum í síðustu viku.
VF-myndir: Hilmar Bragi