Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2015, Síða 20

Víkurfréttir - 12.03.2015, Síða 20
20 fimmtudagurinn 12. mars 2015 • VÍKURFRÉTTIR Systrafélagi Innri-Njarðvíkurkirkju, ásamt eiginmönnum sínum og fjölskyldum, byggðu húsið og gerðu það fokhelt. Þá gáfu þau Njarðvíkurbæ það til þess að klára og setja á stofn leikskóla. Hann var svo stofnaður árið 1985. „Þetta er dálítið skemmtileg saga vegna þess að við störfum í anda Reggio Emilia, en þar skipta þrír aðilar máli; umhverfið, kennarinn og barnið. Umhverfið er þriðji kennarinn. Og vegna þess að það þarf heilt þorp til að ala upp barn þá var heilt þorp sem byggði þennan leikskóla því fólkinu fannst vanta leikskóla fyrir börnin á svæðinu sínu,“ segir Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri. Umsóknarfrestur um störf flokkstjóra og yfirflokk- stjóra, bæði vinnuhópa og á skrifstofu, RENNUR ÚT Í DAG. Vakin er athygli á því að eldri umsóknir þarf að endurnýja. Aðeins er tekið við rafrænum umsóknum á www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf þar sem einnig má nálgast nánari upplýsingar. Vinnuskólinn er reyklaus vinnustaður og skulu flokkstjórar vera tóbakslausir. Frekari upplýsingar veitir Berglind Ásgeirsdóttir í síma 420-3200 eða berglind.asgeirsdottir@reykjanesbaer.is. Önnur störf vinnusóla verða auglýst síðar. Auglýsum eftir matreiðslumanni/matráði í 100% stöðu. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Í leikskólanum dvelja 83 börn við leik og störf og þar starfa að jafnaði 24 starfsmenn. Hæfniskröfur: Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla af mat– reiðslu í stóreldhúsi, góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta og lipurð og sveigjanleiki í sam- skiptum. Snyrtimennska áskilin. Umsóknarfrestur er til og með 26. mars nk. og skal sótt um starfið á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Tjarnarsels, Inga María Ingvarsdóttir (inga.maria.ingvarsdottir@tjarnarsel.is) Reykjanesbær óskar eftir að ráða verkefnastjóra ferða- og upplýsingamála hjá sveitarfélaginu. Um fullt starf er að ræða og mun starfsmaður hafa aðstöðu í Duus safnahúsi. Helstu verkefni: Rekstur á upplýsingamiðstöð ferðamála í Duus safnahúsi, móttaka gesta og umsjón með ferða- og kynningarmálum hjá Reykjanesbæ o.fl. Menntunar- og hæfniskröfur: Háskólamenntun sem nýtist í starfi, ferðamálafræði æskileg. Reynsla af ferða- og/eða kynningarmálum æskileg. Færni til að setja fram upplýsingar í ræðu og riti á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til og með 23. mars n.k. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á vef Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is/ stjornkerfi/laus-storf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Valgerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri menningarsviðs, (valgerður.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is) VINNUSKÓLI REYKJANESBÆJAR SUMARSTÖRF ATVINNA LEIKSKÓLINN TJARNARSEL ATVINNA VERKEFNASTJÓRI FERÐA- OG UPPLÝSINGAMÁLA ■■ Skapandi og lifandi starf í 30 ára leikskólanum Holti í Innri-Njarðvík: Mála eldfjöll og veiða hákarla Í umhverfi Holts og í göngufæri eru mói, tjarnir, fjara og útinámssvæði sem börnin nota mikið í leikskóla- starfinu. „Þetta er alveg yndislegt og við njótum góðs af því. Úti- námssvæðið í Narfakotsseylunni byggðum við ásamt Akurskóla og leikskólanum Akri. Það var gert á svo uppbyggilegan hátt því börnin lögðu grunninn sjálf. Þau komu með hugmyndir um hvað þau myndu vilja hafa þar, í samstarfi við arkitekt og öllu samfélaginu, þ.m.t. foreldrum sem einnig komu að þessari vinnu. Við förum mikið þangað til að uppgötva og læra nýja hluti. Það gleyma börnin sér tím- unum saman,“ segir Kristín. Mikill sköpunarkraftur Starfsfólkið á Holti verður mikið vart við sköpunarkraft barnanna í innra og ytra umhverfi og þegar Víkurfréttir komu í heimsókn voru börn m.a. að mála eldfjall saman og fræðast um það. „Já, við munum eftir því þegar við vorum börn og fórum í móann í búleik, þá gleymdum við öllu öðru og ímyndunaraflið fór á fleygiferð. Það er nákvæmlega það sem gerist hjá börnunum. Þau skoða lífbreyti- leikann í vatninu. Í dag voru þau að veiða hvali og margir eru hræddir um að hvalir séu í útrýmingar- hættu á þessu svæði,“ segir Kristín og brosir. Eins og annars staðar í Reykjanesbæ hefur Holt verið í góðu samstarfi við heimaskóla sinn, Akurskóla og börnin eru dug- leg að heimsækja hann. „Einu sinni í viku förum við með hóp þangað í tíma og það er frábær aðlögun að næsta skólstigi; að fá að vera eðli- legur nemandi í umhverfinu einu sinni í viku. Svo vinnum við ýmis verkefni og þemu með Akurskóla og hinum leikskólanum, Akri. Hlutir fá nýtt líf Stefnan sem skólinn hefur tekið er að vinna mikið með endurvinnan- legan og endurnýtanlegan efnivið. Fá það sem allir leggja frá sér og þurfa ekki að nýta meira eða gefa hlutum nýtt líf. „Þá erum við til dæmis að tala um kubba, pappa- kassa og umbúðir úr eldhúsinu. Þetta er líka eitthvað sem við verðum að hugleiða í þessum heimi að nýta sem best alla hluti og kaupa ekki allaf nýja. Það er m.a. gert í listasmiðjunni okkar.“ Einnig sé lögð áhersla á að foreldrar komi með það sem nýtist ekki á heimil- unum. „Það hefur t.d. verið nýtt í búðinni okkar. Við viljum einnig gjarnan að fá allt samfélagið með okkur í lið og höfum sett af stað efnisveitu sem er staðsett í Ramma- húsinu á Fitjum. Þar geta fyrirtæki á svæðinu komið með eitthvað sem þau nota ekki. Þá geta allir skólar leitað þangað og fengið efnivið sem nýtist þeim vel,“ segir Kristín. Börnin „féflettu“ pabbann Dæmi eru um að foreldrar sem koma með börnin sín séu oft mjög áhugasamir um það fram fer í leik- skólanum. „Eitt sinn var faðir sem sá búðina þegar það var nýfarið að nota hana. Honum fannst það svo spennandi að hann vippaði sér úr skónum og lék sér með börn- unum. Lét þau hafa greiðslukortið sitt. Hann sagði að það hefði verið búið að féfletta hann þegar hann fór út. Hann var búinn að versla svo mikið,“ segir Kristín hlæjandi og bætir við að foreldrum sé frjálst að staldra við og kynnast starfinu. „Við viljum fá foreldra sem allra mest inn í starfið okkar og okkur finnst alltaf gaman að fá foreldra í heimsókn, til skrafs og ráðagerða og segja okkur hvað þeim finnst um allt hér. Það er mikið um það að foreldrar komi í heimsókn og vilji velja sér leikskóla. Þau vilja skoða og heyra hvað það er sem skólinn stendur fyrir og hvernig skóla- starfið fer fram.“ Opið hús verður í Holti föstudag- inn 13. mars á milli kl.14 og 15 og eru allir velkomnir og kjörið tæki- færi fyrir foreldra ungra barna sem hafa áhuga á að skoða starfið að líta við. Afmæliskaka verður í boði. Einnig stendur yfir myndlistarsýn- ing barna á Holti í versluninni Hjá Fjólu þar sem sýndir eru munir úr endurnýtanlegum efnivið. Það er mikið um það að foreldrar komi í heimsókn og vilji velja sér leikskóla. Þau vilja skoða og heyra hvað það er sem skólinn stendur fyrir og hvernig skólastarfið fer fram. Elín Björk Einarsdóttir og Kristín Helgadóttir skólastýrur í Holti. SJÁIÐ MEIRA FRÁ HOLTI Í SJÓNVARPI VÍKURFRÉTTA Á ÍNN OG VF.IS

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.