Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.03.2015, Blaðsíða 23

Víkurfréttir - 12.03.2015, Blaðsíða 23
23VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 12. mars 2015 Júdó Júdódeild Njarðvíkur tók þátt í vormóti Júdósambands Íslands sem fram fór um síðustu helgin. Njarðvíkingar stóðu sig með miklum sóma og unnu til fernra verðlauna á mótinu. Þar bar hæst til tíðinda að Angela Humada Torres sigraði í -70 kg flokki kvenna. Fimleikar Keflvíkingar tryggðu sér um sl. helgi bikarmeistaratitilinn 1. þrepi kvenna í áhaldafimleikum með miklum yfirburðum. Þetta var annar bikarmeistara- titill félagsins á jafnmörgum helgum og annar í sögunni, en drengjalið Keflavíkur vann bikarinn í 5. þrepi helgina áður. Allar fimm Keflvíkur- meyjarnar röðuðu sér á meðal 8 efstu keppenda í mótinu sem er einkar glæsilegur árangur. Körfubolti Öll þrjú Suðurnesjaliðin í karlakörfunni hafa tryggt sér sæti í 8 liða úr- slitum Domino´s deildarinnar. Endanleg niðurröðun ræðst í kvöld þegar lokaumferðin er leikin en sjaldan eða aldrei hefur deildin verið eins jöfn ef undanskilin eru tvö efstu liðin. Crossfit Rafnheiður Sara Sigmundsdóttir stóð sig vel í 2. grein af 5 í undankeppni Crossfit leikana sem fram fara í Kaliforníu í sumar. Sara náði 334 endur- tekningum sem setur hana í 2. sætið á Evrópulistanum og í 8. sæti á heims- listanum í samanlögðu. Næsta grein verður tilkynnt aðfaranótt föstudags og hafa keppendur til mánudagskvölds að skila af sér skori. Fótbolti Það verður Suðurnesjastemmning í Lengjubikar karla á laugardaginn í Reykjaneshöllinni en þá leika Keflvíkingar við Hauka kl. 12 og Grindavík etur kappi við Fjarðarbyggð kl. 14. Keflvíkingar berjast í efri helming riðilsins en Grindvíkingar reyna að spyrna í botninn. ATVINNA Ungmennafélag Njarðvíkur auglýsir stöðu framkvæmdastjóra UMFN   Framkvæmdastjóri skal hafa yfirumsjón með bókhaldi og fjármálum félagsins ásamt daglegum rekstri skrifstofu UMFN auk annarra tilfallandi starfa í samráði við stjórn félagsins.   Framkvæmdastjóri skal uppfylla eftirfarandi hæfnisskilyrði: - Áhugi á starfi og málefnum Ungmennafélagsins - Þekking og reynsla á fjármálum og bókhaldi - Færni í samskiptum - Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt   Framkvæmdastjóri er ráðinn í 60% starf. Laun skv. samkomulagi. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf strax. Nánari upplýsingar um starfið fást hjá framkvæmdastjóra félagins í síma 421-2895. Umsóknarfrestur er til 20. mars nk. Umsókn skal skila skriflega ásamt ítarlegri ferilskrá merkt „Framkvæmdastjóri“ á netfangið umfn@umfn.is. 1100 börn og 444 leikir á Nettómóti Tuttugasta og fimmta Nettómótið í körfuknattleik barna fór fram í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Um 1100 börn upp að 10 ára aldri tóku þátt á mótinu. Alls sendu 23 félög börn til þátttöku. Keppnisliðin voru 194 og spiluðu þau 444 leiki. Í Sjón- varpi Víkurfrétta, sem er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld kl. 21:30, er innslag um Nettómótið. Þáttinn má einnig sjá á vf.is í hás- kerpu. VF-myndir: Páll Orri Pálsson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.