Víkurfréttir - 30.04.2015, Blaðsíða 10
10 fimmtudagur 30. apríl 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Beitir er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi í 70 fer-
metra bílskúr í Vogum árið 1989.
Eigendur fyrirtækisins eru Haf-
steinn Ólafsson og Þóra Braga-
dóttir. Fyrirtækið varð til þegar
Þóra var búin að ala upp tvö
eldri þeirra hjóna og tilkynnti
bónda sínum að nú væri komið
að honum að ala upp tvö yngri
börnin. Hafsteinn var á þessum
tíma vélstjóri til sjós á stærstu
loðnuskipum íslenska flotans,
síðast á Guðmundi RE. Hann
var því lítið heima en frúin setti
honum stólinn fyrir dyrnar og
sagði honum að koma í land.
Hafsteinn varð að finna sér eitt-
hvað að gera í landi og úr varð
að bílskúrinn við heimili þeirra í
Vogum var tekinn undir smiðju þar
sem hafist var handa við blandaða
smíðavinnu en fljótlega var farið
í sérhæfingu í ryðfríu stáli sem
hefur haldist síðan. Beitir smíðar í
dag flest tæki úr ryðfríu stáli fyrir
fiskvinnslu- og matvælaiðnað.
Fyrirtækið er best þekkt fyrir
framleiðslu á beitningartrektum,
línuspilum og beituskurðarhnífum
fyrir 6 til 100 tonna báta.
Fyrsta afurð fyrirtækisins varð
beitingartrekt og þar kom nafnið
á fyrirtækinu, Beitir. Beitningart-
rektin var sýnd á sjávarútvegs-
sýningu í Laugardalshöll og þar
með var boltinn farinn að rúlla.
„Frá þessum tíma höfum við verið
með fókusinn á línuveiðum og öllu
sem þeim tilheyrir,“ segir Haf-
steinn í samtali við Víkurfréttir. „Í
framhaldi af beitningartrektinni
var beðið um línuspil og færaspil,
lyftukör og þvottakör um borð í
bátana, aðgerðaraðstöðu og fleira.
Nú var komið að þeim tímamótum
að plássið í bílskúrnum var búið
og því varð að taka ákvörðun um
að annað hvort að hætta eða halda
áfram að byggja upp fyrirtækið.
Við ákváðum að halda áfram og
byggðum 500 fermetra hús yfir
starfsemina við Jónsvör í Vogum
og fluttum þar inn árið 2000. Það er
gaman að starfa hér og við gátum
leyft okkur að kaupa betri tækja-
búnað. Nýja húsið gerði okkur
einnig kleyft að fara víðar og smíða
meira og það hefur gengið mjög
vel,“ segir Hafsteinn.
Elsti starfsmaðurinn að verða
87 ára
- Þið smíðið næstum
allt frá grunni.
„Já, það er nánast allt smíðað hér.
Það eru aðeins rótorar sem þarf
að nota við spilin sem við fáum
erlendis frá og línuskífur sem
steyptar eru fyrir okkur í Dan-
mörku. Annað er smíðað hér
innanhúss hjá okkur. Við erum
með mjög færa starfsmenn hér
hjá okkur sem hafa verið lengi. Ég
er með rennismið af gamla skól-
anum. Hann er bugaður af reynslu
en hann er að verða 87 ára gam-
all. Okkur þykir vænt um það að
hann skuli vera hér enn. Við erum
fimm á gólfinu að smíða og svo er
frúin með bókhaldið og fjármálin,
starfar sem sendill og allt mögulegt
þar á milli“.
- Hvernig ertu að selja vörur fyrir-
tækisnis. Hvernig lætur þú þetta
spyrjast út?
„Það er helst gert með því að fara á
sýningar og vera sýnilegur sjálfur
á bryggjunni. Sem dæmi um það
má nefna að síðasta sumar fórum
við hjónin í mikið ferðalag um
Norður-Noreg í einn og hálfan
mánuð. Í stað þess að fara á sjávar-
útvegssýningu í Þrándheimi fórum
við í ferðalag og keyrðum allan
Norður-Noreg, fórum á bryggj-
urnar og hittum sjómennina. Það
skilaði okkur mikilli athygli á sýn-
ingu sem við fórum á nú í apríl í
Kabelvåg í Lófóten.
Við fórum með þrettán línuspil og
hluti sem fylgja þeim á þá sýningu.
Þetta seldist allt á sýningunni og
meira til. Við erum í þessari viku
að senda þrjú línuspil til viðbótar
til Noregs og við verðum að senda
þau með flugi. Staðan er líka sú að
lagerinn er enginn eins og stendur
og nóg að gera í að framleiða upp í
pantanir“.
- Hver er munurinn á þeim búnaði
sem þú smíðar fyrir íslenska línu-
flotann og þann norska?
„Hann er þó nokkur. Norðmenn
beita öðrum aðferðum við línu-
veiðar en við Íslendingar. Þeir eru
með mun grennri línu, eins og var
hér á Íslandi fyrir um 15 árum.
Svo eru þeir með þessa svokölluðu
girnislínu sem menn hafa ekki náð
tökum á hér heima. Þeir virðast ná
ágætis tökum á henni og enn betri
eftir að þeir fengu línuspilið frá
okkur og geta dregið hana svona
hratt því hún hringast í balann
eins og venjuleg lína. Þetta kom
mönnum á óvart og gerir það að
verkum að þeir geta lagt helmingi
lengri línu og dregið hana á betri
tíma en áður með þeim búnaði sem
þeir höfðu og er norskur“.
12.000 km bryggjurúntur um
Noreg
Á ferð þeirra Hafsteins og Þóru um
Norður-Noreg síðasta sumar fór
Hafsteinn í nokkra línuróðra og sá
hvernig búnaðurinn frá Beiti virk-
aði við norskar aðstæður og hverjir
hnökrarnir væru. Hann ræddi
málin við sjómennina og fór í að
leysa vandamálin. „Það eru engin
vandamál þannig að ekki sé hægt
að finna á þeim lausn,“ segir Haf-
steinn og nú sendir hann út breytta
útgáfu af línuspilum en þau eru
öðruvísi fyrir norska markaðinn en
þann íslenska.
- Þú vilt meina að þetta ferðalag
ykkar um Noreg í fyrra hafi skilað
sér vel á sýningunni nú í apríl?
„Ekki spurning. Þetta er sú besta
auglýsing sem við höfum nokkurn
tímann fengið. Nánast hver einasti
maður sem kom til okkar á sýning-
unni vissi það að við höfðum farið
hringferð um hafnirnar í Norður-
Noregi, allt frá Kirkenes og niður
til Lófóten sem er gríðarlegt svæði.
Við ókum t.a.m. um 12.000 kíló-
metra á þessu ferðalagi okkar sem
tók sex vikur. Við fengum líka að
vita það að norsku fyrirtækin eru
ekki að gera þetta. Þau bíða bara
við símann eftir pöntunum. Við
lofuðum því að koma annað hvert
ár og fara á milli hafna í stað þess
að fara á sýninguna í Þrándheimi.
Við ætlum á þessu ferðalagi að vera
til staðar að leysa vandamál og gefa
góð ráð. Við erum einnig með
umboðsmann þarna norðurfrá og
erum að byggja upp varahlutalager
þar.
Ánægður með
fraktflutninga Icelandair
Hafsteinn segir að í fyrstu hafi
Norðmennirnir verið hræddir við
að skipta við Beiti og fundist fyrir-
tækið vera langt í burtu, staðsett í
Vogum á Íslandi og þjónustan gæti
orðið erfið. „Það hefur orðið al-
gjörlega öfugt. Samstarf Icelandair
og SAS er mjög gott og það tekur
aldrei meira en tvo til þrjá daga
að koma vörum og varahlutum
á áfangastað, jafnvel þó svo við
sendum heilt línuspil“.
Norðmenn hafa fram til þessa sætt
sig við langan afgreiðslufrest á
ýmsum aðföngum og þeim þykir
ekkert sjálfsagðara en að keyra í
fjóra til sex tíma til að sækja vara-
hluti eða önnur aðföng. Vega-
lengdir eru það miklar á þessum
slóðum.
Noregsmarkaður skiptir
miklu máli
Noregsmarkaður skiptir fyrirtækið
í Vogum miklu máli og er orðinn
miklu stærri en markaðurinn hér
heima. Línubátum þar er einnig að
fjölga mikið. „Norðmenn eru að
átta sig á því að línuveiðar skapa
miklu meiri verðmæti og betra
hráefni,“ segir Hafsteinn.
Þau Hafsteinn og Þóra reyna að
miða rekstur og verkefni fyrir-
tækisins við þann starfsmanna-
fjölda sem nú er hjá fyrirtækinu,
því það sé fyrst og fremst fjöl-
skyldufyrirtæki. Nú séu yngri
fjölskyldumeðlimir að koma inn
í fyrirtækið. „Þeir koma hingað
fljótlega sonur okkar og dætrasynir
tveir sem hafa starfað hér síðustu
3-4 ár. Það kemur að því að þeir
taki við þessu og þá verður gaman
að sjá hvað ný kynslóð í fyrirtæk-
inu gerir. Við höldum vel sjó í dag
og erum að huga að því að bæta
enn frekar við tækjabúnað. Við
sjáum hvað gerist. Allt hefur sinn
tíma,“ segir Hafsteinn Ólafsson að
endingu.
■■ Fjölskyldufyrirtækið Beitir í Vogum:
-viðtal pósturu hilmar@vf.is
Góðar viðtökur
á ört stækkandi
Noregsmarkaði
Sveinn Einarsson rennismiður og Arkadiusz Dabkowski, kallaður Arek.
Frá sjávarútvegssýningunni í Lófóten á dögunum
Sveinn Einarsson, Þóra Bragadóttir,
Hafsteinn Ólafsson og Arkadiusz Dabkowski.