Víkurfréttir - 30.04.2015, Blaðsíða 25
25VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 30. apríl 2015
AÐALFUNDIR DEILDA UMFN
verða haldnir í Íþróttahúsinu í Njarðvík og hefjast eftirfarandi daga:
4. maí Sunddeild kl. 19:30
5. maí Þríþrautardeild kl. 19:30
6. maí Massi - kraftlyftingadeild kl. 19:30
7. maí Júdódeild kl. 19:30
11. maí Körfuknattleiksdeild kl. 19:30
12. maí Aðalstjórn UMFN kl. 19:30
kaffitar.is
Elskar þú kaffi?
Sumarstörf hjá Kaffitár Stapabraut. Í boði eru
fjölbreytt störf í skemmtilegu vinnuumhverfi
Sölu- og þjónustufulltrúi á skrifstofu Kaffitárs
Helstu verkefni
• Þjónusta við viðskiptavini Kaffitárs
• Öflun nýrra viðskiptavina
• Áætlanagerð, undirbúningur og eftirfylgni
• Frágangur pantana
Hæfniskröfur:
• Reynsla af sölumennsku
• Hæfni og áhugi á mannlegum samskiptum
• Áhugi fyrir kaffi
• Góð almenn tölvukunnátta
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Vinnutími 08:00 til 16:00 alla virka daga.
Umsóknafrestur er til 8. maí 2015.
Upplýsingar veitir Hildur Guðlaugsdóttir sölustjóri
í síma 420 2703 eða á hildurgg@kaffitar.is.
Laust starf hjá Kaffibrennslu Kaffitárs
Helstu verkefni
• Pakka og framleiða okkar gæða kaffi .
• Önnur þau verkefni sem snúa að kaffinu og
framleiðslu þess.
Hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf umfram allt að hafa áhuga á
að læra nýja hluti.
• Frumkvæði og rík þjónustulund
• Færni í mannlegum samskiptum og hæfileiki til að
vinna með öðrum.
• Lyftarapróf æskilegt, þó það sé ekki skylda.
Vinnutími 08:00 til 16:00 alla virka daga.
Umsóknafrestur er til 8. maí 2015.
Upplýsingar veitir Kristbjörg Gunnbjörnsdóttir
framleiðslustjóri í síma 420 2713 eða
á kristbjorg@kaffitar.is.
Kaffitár framleiðir og selur
einungis úrvalskaffi. Við
leggjum áherslu á gæði og
ferskleika. Við erum
skemmtileg, alúðleg,
umhverfisvæn,litaglöð og
líka röff og töff. Við setjum
fólk í fyrirrúm og opnum
hjarta okkar til að koma
boðskap Kaffitárs til skila og
tengjast viðskiptavinum
okkar traustum böndum.
Við kaupum kaffi án
krókaleiða til að stuðla að
þvi að við fáum besta kaffi
sem völ er á og að
bændurnir fái sanngjarnt
verð fyrir vöru sína.
– leggur heiminn að vörum þér
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
Keilir og Matorka hafa undir-ritað samstarfssamning.
Markmið samningsins er að efla
tengsl fyrirtækjanna á sviði rann-
sókna og þróunar. Þeim mark-
miðum hyggjast fyrirtækin
ná með nemendaverkefnum,
reglulegum kynningarfundum,
þ.m.t. vísindaferðum, störfum
fyrir nemendur eftir aðstæðum
hverjum sinni, möguleikum á að
nýta rannsóknaraðstöðu Keilis,
þróunarverkefnum í samstarfi
fyrirtækjanna og í þátttöku í
klasastarfi um þróun námsbrauta
í líftækni.
Fiskeldi muni gegna lykilhlutverki
í matvælaframleiðslu til framtíðar.
Árleg aukning í fiskeldi er 6-8% eða
um 25 milljón tonn til ársins 2020.
Aukning kemur bara úr fiskeldi því
ekki verður veitt meira úr höfum
heimsins. Í samtali við Víkurfréttir
sagði Stefanía Katrín Karlsdóttir frá
Matorku að mikilvægt væri að hafa
þessa og nokkrar aðrar staðreyndir
varðandi stöðu fisks í heiminum.
Hún sagði að Evrópusambandið
þarf að flytja inn 65% af fiski til
innanlandsneyslu, Finnland 75%,
Katar 95% og Indland um 70%.
Brasilía, Rússland, Indland og Kína
eru þau lönd eða markaðssvæði
með lang mesta vöxtinn. Sam-
kvæmt frétt Intra Fish í apríl er því
spáð að Brasilía muni innan nokk-
urra ára taka við allri laxafram-
leiðslu frá Chile.
Stefanía segir jafnframt að fiskeldi
á Íslandi sé fyrst og fremst til út-
flutnings, á heimsmarkað, um allan
heim og að Íslendingar geta tekið
pólitíska ákvörðun um það hvort
þeir vilja vera stærri þátttakendur
á ört vaxandi fiskneyslumarkaði
í heiminum eða hvort þeir vilja
öðrum það eftir.
Matorka hyggst vera með í þeirri
uppbyggingu sem framundan er í
heiminum og nýta hinar einstöku
aðstæður á Reykjanesi þar sem
vatn frá Svartsengi skapar einstakar
aðstæður. Matorka mun nýta sér
þær aðstæður og koma upp mjög
vistvænu kerfi til framleiðslu á
nokkrum tegundum fiskar, s.s. laxi,
bleikju og fleiri tegundum. Stefnt er
að árlegri framleiðslu upp á 3.000
tonn í fiskeldisstöð sem mun rísa á
iðnaðarsvæði vestan Grindavíkur í
nágrenni við golfvöll þeirra Grind-
víkinga.
Í máli Hjálmar Árnasonar, fram-
kvæmdastjóra Keilis, kom fram að
samningur þessi væri í samræmi
við tilganginn með starfi Keilis, þ.e.
að vinna náið með fyrirtækjum til
að efla verðmætasköpun og þróa
nýsköpun. Fyrirtækin geta nýtt
sér hinn góða tækjabúnað Keilis
en geta einnig unnið með nem-
endum í tæknifræðinni að raun-
hæfum verkefnum. Samstarfið við
Matorku er kjörinn vettvangur til
þess. Slíkt fyrirkomulag er til hags-
bóta fyrir alla aðila, fyrirtækin og
ekki síst nemendur sem þannig fá
að vinna að lifandi verkefnum.
Hjálmar vakti einnig athygli á því
að á Reykjanesi væri að verða til
sterkur líftækniklasi. Keilir væri
með í undirbúningi í samstarfi við
líftæknifyrirtækin á svæðinu að
byggja upp spennandi námsbraut á
sviði líftækni.
-fréttir pósturu vf@vf.is
Svona mun eldisstöð Matorku við Grindavík líta út.
■■ Samstarfssamningur milli Keilis og
Matorku vegna fiskeldis við Grindavík:
Nýta rannsóknaraðstöðu
í Keili fyrir nýtt 3000
tonna fiskeldi í Grindavík
Frá undirritun samnings á milli Keilis og Matorku. F.v.: Sverrir Guðmunds-
son, forstöðumaður tæknifræðináms Keilis, Stefanía K. Karlsdóttir, for-
stöðumaður, viðskiptaþróunar Matorku og Hjálmar Árnason, framkvæmda-
stjóri Keilis. VF-mynd: Hilmar Bragi