Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2015, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 11.06.2015, Qupperneq 6
6 fimmtudagur 11. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001 vf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Olga Björt Þórðardóttir, olgabjort@vf.is Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is og kylfingur.is ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN: AUGLÝSINGASTJÓRI: UMBROT OG HÖNNUN: AFGREIÐSLA: PRENTVINNSLA: UPPLAG: DREIFING: DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA: Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáaug- lýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðju- dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. HILMAR BRAGI BÁRÐARSON RITSTJÓRNARBRÉF Sárfættur Sigvaldi lætur gott af sér leiða Sigvaldi Arnar Lárusson er lögreglumaður á Suðurnesjum sem er að láta gott af sér leiða. Hann er rúmlega hálfnaður á göngu sinni frá Keflavík til Hofsóss, um 370 km. leið. Gönguna fer hann til stuðnings Um- hyggju, félags langveikra barna. Ástæðan fyrir göngunni er arfaslök spádómsgáfa Sigvalda, sem hafði spáð því að knattspyrn- umaðurinn Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn íþróttamaður ársins 2014. Ef spáin gengi ekki eftir ætlaði Sigvaldi að fara á tveimur jafnfljótum frá Keflavík og alla leið til Hofsóss, en Sigvaldi á ættir að rekja þangað norður. Þrotlausar æfingar hófust strax á nýja árinu og sl. föstudag var komið að fyrsta göngudeginum af níu. Stór hópur styður Sigvalda í göngunni og alla þá daga sem Sigvaldi hefur verið á göngu hefur hann haft félagsskap á göngunni og hann fær góðar móttökur þar sem hann kemur. Það er alls ekki auðvelt að ganga þá vegalengd sem Sigvaldi er núna að takast á við. Álag á lík- amann er mikið. Bólgnir ökklar og blöðrur eru fylgifiskar svona göngu. Undirritaður prófaði sjálfur að ganga tæplega 50 km. vegalengd eftir malbiki fyrir tveimur árum og var „lappalaus“ í viku á eftir. Sigvaldi er að fara ígildi maraþons á hverjum degi í níu daga og vonast til að ferða- lagið skili Umhyggju fúlgu fjár og honum mikilli skemmtun og ánægju. Við getum öll tekið þátt í þessu verkefni með Sigvalda lögreglumanni og hringt inn styrki í eftir- talin númer: 901-5010 - 1.000 kr., 901-5020 - 2.000 kr., 901-5030 - 3.000 kr. -menntun pósturu vf@vf.is KEILIR - MIÐSTÖÐ VÍSINDA, FRÆÐA OG ATVINNULÍFS: Tvöþúsundasti nemandinn útskrifast frá Keili LJ Ó SM Y N D IR : O D D G EI R K A R LS SO N Keilir - Miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs útskrifaði 132 nemendur af fjórum brautum af við hátíðlega athöfn í Andrews Theater á Ásbrú föstudaginn 5. júní. Út- skrifaðir voru nemendur af Háskólabrú, einka- og styrkt- arþjálfaranámi, leiðsögunámi í ævintýraferðamennsku og atvinnuflugmannsnámi. Þau tímamót voru við þetta tækifæri að tvöþúsundasti nemandinn útskrifaðist úr Keili og féll sá heiður Davíð Ágústssyni, nemanda í atvinnuflug- mannsnámi Flugakademíu Keilis, og fékk hann bókagjöf frá ISAVIA. Háskólabrú Keilis útskrifaði í allt 40 nemendur úr þremur deildum: Félagsvísinda- og lagadeild; Hugvísindadeild; og Viðskipta- og hagfræðideild. Nemendur Verk- og raunvís- indadeildar útskrifast síðan í ágúst. Soffía Waag Árnadóttir, forstöðumaður Háskólabrúar flutti ávarp. Dúx var Haukur Daði Guðmundsson með 9,14 í meðaleinkunn. Fékk hann bók frá Íslandsbanka og spjaldtölvu frá Keili sem viðurkenn- ingu fyrir bestan námsárangur. Kristrún Helga Jóhanssdóttir flutti ræðu útskriftarnema. Með útskriftinni hafa samtals 1.256 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keilis og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. 31 nemandi lauk atvinnuflugmannsprófi frá Flugakademíu Keilis. Snorri Páll Snorrason, skólastjóri Flugakademíunnar flutti ávarp. Sebastian Fredsholt frá Danmörku fékk viður- kenningu fyrir bestan námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,79 í einkunn sem er hæsta meðaleinkunn sem hef- ur verið veitt í atvinnuflugmannsnámi Keilis frá upphafi. Christoffer Schröder flutti ræðu útskriftarnema fyrir hönd Flugakademíu Keilis. 47 nemendur útskrifuðust sem ÍAK þjálfarar úr Íþrótta- akademíu Keilis, 39 einkaþjálfarar, 8 styrktarþjálfarar. Arn- ar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis, flutti ávarp, Snjólfur Björnsson fékk viðurkenningu fyrir bestan námsárangur í ÍAK einkaþjálfun með 9,52 í meðal- einkunn og Eyþór Ingi Einarsson í ÍAK styrktarþjálfun með 9,06 í meðaleinkunn. Fengu þeir gjafabréf frá Sporthúsinu í Reykjanesbæ. Þá brautskráðust fjórtan leiðsögumenn í ævintýraferða- mennsku á vegum Keilis og Thompson Rivers University í Kanada. Þetta er annar hópurinn sem lýkur náminu, sem er átta mánaða háskólanám þar sem helmingur námsins fer fram víðsvegar um í náttúru Íslands. Elín Lóa Baldursdóttir, nemandi í ævintýraleiðsögunáminu, fékk gjöf frá GG sjó- sport sem viðurkenningu fyrir bestan námsárangur með 8.87 í meðaleinkunn og flutti hún einnig ávarp útskriftarnema. Í allt hafa 2.123 nemendur útskrifast frá Keili síðan hann hóf störf árið 2007. Fjöldi umsókna hefur borist um nám fyrir haustið 2015. Mikil aukning er í atvinnuflugmannsnám í Flugakademíu Keilis auk þess sem fjöldi umsókna hafa borist í leiðsögunám í ævintýraferðamennsku og einkaþjálfaranám Íþróttaakademíu Keilis. Sem fyrr eru flestir umsækjendur um nám í Háskólabrú Keilis, en að jafnaði stunda um tvö hundruð einstaklingar staðnám og fjarnám í Háskólabrú á ári hverju. Enn er hægt að sækja um nám í flestum deildum Keilis og er hægt að nálgast nánari upplýsingar á www.keilir.net. SJÓNVARP VÍKURFRÉTTA - FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN OG VF.IS

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.