Víkurfréttir - 11.06.2015, Blaðsíða 22
22 fimmtudagur 11. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-sportið pósturu vf@vf.is
Glímusamband Íslands hef-ur sett saman landsliðshóp
sinn þetta árið. Hópurinn tekur
þátt í æfingabúðum með skoska
og enska landsliðshópnum í
Backhold og Gouren og að lok-
um er keppt á Hálandaleikum
sem fara fram í Bridge of Allan. Í
fyrra átti Njarðvík 2 þáttakendur.
Það voru þeir Guðmundur Stef-
án Gunnarsson sem varð þriðji
í opnum flokki fullorðina og
Bjarni Darri Sigfússon sem sigr-
aði opinn flokk unglinga og var
valinn glímumaður mótsins. Í ár
voru fjórir Njarðvíkingar vald-
ir í 11 manna landsliðshóp. Það
voru þau Bjarni Darri Sigfússon,
Ægir Már Baldvinsson, Halldór
Ingvarsson og Catarina Chainho
Costa.
Halldór og Catarina eru að taka
þátt í sínu fyrsta landsliðsverkefni
eftir gríðalea gott gengi á árinu
en Bjarni Darri og Ægir Már eru
nokkuð reyndir ef svo má segja.
Bjarni er einnig unglingalandsliðs-
maður í Judo og Ægir í Taekwondo.
Grindavíkur-
konur áfram
í Borgunar-
bikarnum
u Grindavíkurkonur eru
komnar í 8 liða úrslit Borg-
unarbikarsins eftir 2-0 sig-
ur á Augnablik á sunnudag.
Bentína Frímannsdóttir kom
UMFG yfir á 36. mínútu og
það var svo Sashana Campbell
sem innsiglaði sigurinn með
marki á 90. mínútu.
Grindavíkurkonur hafa byrjað
leiktímabilið vel og eru á toppi
B-riðils 1. deildar kvenna með
6 stig og hafa ekki tapað leik.
Liðið leikur í kvöld gegn Fram
á Grindavíkurvelli kl. 20 en
liðin eru jöfn á toppi riðilsins
og er því um uppgjör topplið-
ana að ræða.
Elías Már í
U21 landsliði
Íslands
u Elías Már Ómarsson hef-
ur verið valinn í U21 lands-
lið karla sem leikur gegn
Makedóníu í undankeppni fyr-
ir Evrópumótið í knattspyrnu
en leikurinn fer fram á Voda-
fone vellinum við Hlíðarenda
á fimmtudaginn. Elías Már
leikur með Valerenga í norska
boltanum en þangað fór hann
eftir síðasta leiktímabil eftir
að hafa verið einn besti leik-
maður Keflvíkinga í Pepsí
deildinni. Þetta verður þriðji
landsleikur Elíasar fyrir U-21.
Korpak systur
kræktu í gull
og brons
uZuzanna Korpak frá Golf-
klúbbi Suðurnesja sigraði
í flokki 15 - 16 ára og Kinga
Korpak hlaut 3. sætið í flokki
14 ára og yngri á Íslands-
mótinu í holukeppni í golfi,
en Íslandsbankamótaröð
barna og unglinga fór fram á
Strandavelli á Hellu um síð-
ustu helgi. Mikil spenna var á
lokadeginum.
Þær systur hafa verið sigursæl-
ar í golfmótum og voru þær
systur báðar á verðlaunapalli
í fyrsta mótinu sem fram fór á
Akranesi fyrir tveimur vikum.
Þá sigraði Kinga og Zuzanna
varð í 3. sæti.
KONUR ERU
KONUM BESTAR!
26. SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ Á LAUGARDAGINN
KL.11 Í REYKJANESBÆ
Kæru Suðurnesjakonur,
Lykillinn að vellíðan er að hugsa á heilbrigðan hátt
um sjálfan sig og aðra. Heilsa er allt í senn andleg,
líkamleg og félagsleg. Konur eru því hvattar til að
fagna því að þær eru eins ólíkar og þær eru margar
og njóta þess fjölþætta ávinnings sem fylgir heil-
brigðum lífsháttum svo sem jákvæðu hugarfari,
daglegri hreyfingu og hollum matarvenjum.
Mikil ánægja og þátttaka hefur verið í Kvenna-
hlaupinu á undanförnum árum.
Í Kvennahlaupinu eiga mæðgur, systur, mömmur,
ömmur, frænkur og vinkonur á öllum aldri notalega stund saman. Hver
og ein tekur þátt á sinn hátt og á sínum hraða, margar labba, aðrar skokka,
sumar skokka og labba til skiptis og svo hlaupa líka einhverjar allan tím-
ann.
Hlaupið verður frá ýmsum stöðum á Suðurnesjum og í Reykjanesbæ verð-
ur hlaupið frá K-húsinu, Hringbraut 108, við fótboltavöllinn og er valið
um þrjár vegalengdir; 2, 4 eða 7 km. Vegalengdin sem hver og ein kona
velur er ekki aðalmálið heldur að vera með og hafa gaman af.
Gaman væri að sem flestar konur verði með og ef þú sérð þér ekki fært
um að labba, skokka eða hlaupa, þá væri FRÁBÆRT ef að þú myndir fara
út í dyr heima hjá þér og HVETJA HRAUSTU KONURNAR þegar þær
hlaupa framhjá og jafnvel að hafa hressa tónlist í gangi.
Þær sem verða úti úr bænum þennan dag, geta hlaupið hvar sem er á
landinu eða erlendis. Aðal málið er að hreyfa sig og vera með.
Best er að skrá sig á fimmtudag og föstudag. Skráning fyrir Reykjanesbæ
fer fram kl.17-19 í K-húsinu, Hringbraut 108. Þátttökugjald er 1500 kr.
fyrir eldri en 12 ára og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Innifalið í verðinu er
flottur fjólublár bolur, verðlaunapeningur, Egils Kristall og frítt er í sund á
eftir í Vatnaveröld.
Á laugardaginn kl 10.30 geta þær skráð sig sem ekki komast í forskrán-
inguna.
Koma svo stelpur, náum núna að slá met í Reykjanesbæ og fá 600 stelpur
til að vera með. Ekki bíða eftir rétta veðrinu til að hreyfa þig. Við búum á
Íslandi. Rétta veðrið kemur nokkrum sinnum á dag.
Hlakka til að sjá sem flestar konur hlaupinu á laugardaginn kl.11!
Með hlaupakveðju,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Verkefnisstjóri SJÓVÁ Kvennahlaups ÍSÍ í Reykjanesbæ 2015
Grindavík tapaði gegn Þrótti Reykjavík í 1. deild karla á mánudags-kvöldið, 0-1. Grindvíkingar voru mun betri aðilinn í leiknum
og fengu fjölda færa sem að þeir nýttu illa. Óli Baldur Bjarnason fékk
dauðafæri á 82. mínútu en lét verja frá sér. Þremur mínútum síðar skor-
uðu Þróttarar sigurmarkið þegar Viktor Jónsson lagði boltann framhjá
Benóný Þórhallssyni.
Grindvíkingar sitja í 10. sæti 1. deildar karla með 4 stig og ljóst að liðið þarf
að girða sig í brók ef botnbarátta á ekki að verða hlutskipti Grindvíkinga
sem spáð var góðu gengi í sumar.
EKKERT GENGUR
HJÁ GRINDAVÍK
Fjórir landsliðsmenn úr
röðum UMFN til Skotlands
n Íslandsmótið í knattspyrnu, 1. deild karla:
NES
Íþróttafélag fatlaðra á Suðurnesjum
Auglýsingasími
Víkurfrétta er 421 0001