Víkurfréttir - 11.06.2015, Side 12
12 fimmtudagur 11. júní 2015 • VÍKURFRÉTTIR
VÍSIR ER RÓTGRÓIÐ, KRÖFTUGT OG FRAMSÆKIÐ ÍSLENSKT SJÁVARÚTVEGSFYRIRTÆKI
Ómæld tækifæri í sjávarútvegi
Þetta eru stór tímamót hjá
ykkur Vísisfólki.
Já þessi sjómannadagshelgi er
dálítið sérstök. Það er margs að
minnast og margt að fagna, bæði
afmæli tengt foreldrum okkar
sem hefðu átt 60 ára brúðkaups-
afmæli núna. Pabbi hefði átt
afmæli á miðvikudaginn og svo
er fyrirtækið sjálft fimmtugt.
Þið hafið komið víða við en
hvað myndirðu segja að skipti
mestu máli í fyrirtækinu?
Við höfum verið ákaflega heppin
með starfsfólk. Við vorum að
heiðra tvo starfsmenn í hófi á
föstudaginn sem hafa verið hjá
okkur í 40 ár. Við erum með 20
manns sem eru búnir að vera með
okkur í yfir 20 ár, aðrir 20 í 15 ár,
meira en helmingur sem hefur
verið í 10 ár. Við erum ákaflega
þakklát fyrir það og það er ekki
bara orðagjálfur. Það er bara
þannig að þegar góðu starfsfólki er
stillt saman þá fara menn í gegn-
um alla skafla sem mæta þeim.
Þið fórum nú í gegnum smá
skafla í fyrra þegar þið hætt-
uð með vinnslu úti á landi
og komuð með allt fólkið
hingað til Grindavíkur. Hvern-
ig hefur þetta gengið?
Þetta hefur gengið vonum framar
og kannski ánægjulegast er það að
eins og við skildum við og vönd-
uðum okkur mikið þá eru bara
fimm sem eru ekki komnir með
fasta vinnu. Móttakan á fólkinu
hér hefur gengið mjög vel. Við
vissum alveg að þetta væri erfitt
og viðkvæmt og þekkjum það
mann best. En við erum mjög sátt
með hvernig til hefur tekist, ekki
síst í uppbyggingunni hérna.
Þið sögðuð í fyrra að þið
væruð að gera þetta til
að hagræða í rekstrinum.
Hefur það gengið eftir?
Það hafa allar okkar áætlanir
gengið eftir í því og jafnvel meira
í því en reiknað var með. Sjáv-
arútvegurinn breytist svo ört og
ef þú tekur ekki góðar og erfiðar
ákvarðanir, þá nærðu ekkert
50 ára aldri. Það stendur upp
úr hvað við erum þakklát fyrir
að fyrirtækið skuli vera á góðu
skriði. Ekki bara á lífi og það er
ekkert sjálfsagt að fyrirtæki lifi af
50 ár í öllum þessum breytingum
sem sjávarútvegurinn og allar
aðrar atvinnugreinar glíma við.
Hvaða breytingar í sjávarútvegi
eru helstar á þessum 50 árum?
Þetta eru stórtæk stökk og það
einkennir sjávarútveginn hvað
hann er rosalega fljótur og virk-
ur að breytast. Okkar skilaboð
eru bara að við verðum að leyfa
honum gera það. Ísland er ein
verstöð, búsetuvíglína er ekki á
milli hreppa á Íslandi heldur á
milli Íslands og annarra landa.
Við ætlum að lifa hérna góðu
lífi og ekki láta reka okkur inn í
torfkofana aftur. Sjávarútvegur-
inn er leiðandi í allri framleiðni
og skapandi hugsun og það er að
verða bylting í honum núna. Hún
felst í því að það er að koma að
greininni ótrúlega mikið af ungu
og hæfileikaríku fólki í annað en
bara veiðarnar, sem við erum búin
að rífast um í 30 ár. Sem betur fer
er vaxandi skilningur hvað sjáv-
arútvegurinn er. Við erum að fá
fullt af vel menntuðu fólki og það
er að verða algjör bylting í hvernig
sjávarútvegurinn er mannaður.
Nú eruð þið, ef svo má segja,
bæði í gamaldags vinnslu og
miklum nýjungum. Er þetta
góð blanda hjá ykkur?
Já það má segja að við séum alveg
á sínum hvorum endanum. Hérna
í þessu húsi erum við í tiltölulega
köldu rými í hefðbundnum salt-
fiski. Tækjabúnaðurinn er ekki
eins og hann var en hann lítur
bara út eins og fyrir 50 árum. Í
hinum endanum erum við svo
með fyrstihús, ferskfiskhús og við
erum að stefna á það að framleiða
500 bita á mínútu í haust þegar
allur pakkinn er farinn að virka.
Við erum búin að keyra hann
núna í eitt ár og hann virkar vel.
Þar er hraði og ferskleiki. Við
erum svolitlir saltfiskkarlar í
okkur og aldir upp í því. En það
er rosalega gaman að sjá hvernig
þessi nýju greinar og skurðavélar
eru komnar inn, sem Íslendingar
eru að framleiða. Þær eru í raun
jafnmikil bylting og þegar flök-
unarvélarnar komu. Þannig að við
erum ekki nándar nærri komin að
endamörkum í sjávarútvegi. Þetta
er svona næstum því að byrja.
Eru margir erlendir við-
skiptavinir að fagna þessum
tímamótum með ykkur?
Já, við buðum þeim og það
komu 40-50 manns, okkar helstu
viðskiptavinir á Ítalíu, Spáni,
Þýskalandi og Grikklandi í starfs-
mannapartýið í Hörpu. Síðan fóru
þeir í mjög skemmtilega ferð í gær
upp á jökul þar sem var heiður
himinn og logn. Þeir eiga ekki
orð yfir Íslandi. Flestir þeirra eru
Vísir er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrirtæki þar sem öll áhersla er
lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði.
Fyrirtækið býr yfir góðum skipaflota útbúnum til
línuveiða og rekur saltfiskvinnslu og frystihús í
Grindavík. Afurðir Vísis eru fjölbreyttar, unnar úr
fyrsta flokks hráefni, og framleiddar fyrir breiðan
hóp kröfuharðra viðskiptavina vítt og breitt um
heiminn. Vísir hefur í 50 ár notið mikillar gæfu og
haft á að skipa metnaðarfullu og tryggu starfsfólki
– mannauður fyrirtækisins er því lykillinn að far-
sælum rekstri þess.
Saltfiskvinnsla fyrirtækisins hefur verið starfrækt í
hálfa öld að Hafnargötu 16 í Grindavík. Fyrirtækið
er nú einnig að taka í notkun nýtt hátæknifrystihús
að Miðgarði 3 til að mæta breyttum áherslum í
greininni.
Í tilefni þess að Vísir hf. í Grindavík fagnar 50 ára
afmæli sínu var fyrirtækið með glæsilega dagskrá á
sjómannadaginn. Vísir bauð bæjarbúum og gestum
Sjóarans síkáta að skoða fiskvinnslur fyrirtækisins
undir leiðsögn eigenda. Boðið var uppá fiskismakk,
afmælisköku og lifandi tónlist.
Að kvöldi sjómannadagsins voru svo minningar-
tónleikar um Palla og Möggu [stofnendur Vísis]
í Grindavíkurkirkju. Tónleikarnir voru haldnir í
tilefni 50 ára afmælis Vísis hf. Þar fluttu börn þeirra
Palla og Möggu hárómantísk sjómannalög af nýút-
gefnum diski þeirra „Lögin hans pabba“. Með þeim
voru landskunnir hljóðfæraleikarar undir stjórn
Vilhjálms Guðjónssonar og sérstakur gestasöngvari
verður Ragnar Bjarnason. Sérstakur gestur á minn-
ingartónleikunum í Grindavíkurkirkju var Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Víkurfréttir tóku hús á Vísisfólkinu þegar það tók
á móti gestum í fiskvinnslustöðvum sínum á sjó-
mannadaginn og ræddu m.a. við Pétur H. Pálsson,
framkvæmastjóra Vísis hf.
Vísir óskar sjómönnum,
landverkafólki og fjölskyldum
þeirra til hamingju með
sjómannadaginn!
Í tilefni af 50 ára afmæli Vísis er gestum sjómanna-
hátíðarinnar í Grindavík boðið að skoða fiskvinnslur
fyrirtækisins kl. 14-17 á Sjómannadaginn. Saltfiskvinnsla
fyrirtækisins hefur verið starfrækt í hálfa öld að Hafnargötu
16. Fyrirtækið er nú einnig að taka í notkun nýtt hátækni-
frystihús að Miðgarði 3 til að mæta breyttum áherslum
í greininni.
Um kvöldið stjórnar Jón Ólafsson tónlistarmaður
minningartónleikum um Palla og Möggu. Þar flytja börn
þeirra hárómantísk sjómannalög af nýútgefnum diski þeirra
„Lögin hans pabba“. Með þeim eru landskunnir hljóðfæra-
leikarar undir stjórn Vilhjálms Guðjónssonar og sérstakur
gestasöngvari verður Ragnar Bjarnason. Diskurinn verður
til sölu á staðnum og rennur söluandvirði hans óskipt til
Grindavíkurkirkju. Frítt inn og allir velkomnir.
Hlökkum til að sjá ykkur!
SUNNUDAGURINN 7. JÚNÍ
Kl. 14-17 Opið hús í fiskvinnslum Vísis
að Hafnargötu 16 og Miðgarði 3, Grindavík
Kl. 20.00 M nningartónleikar um Palla og Möggu
í Grindavíkurkirkju
60
60
/
Ö
R
N
S
M
Á
R
I.
IS
V
IÐ
TA
L:
P
Á
LL
K
ET
IL
SS
O
N
M
YN
D
IR
: ©
P
O
R
TR
A
E
H
F.
© PORTRA EHF.
© PORTRA EHF.
© PORTRA EHF.
© PORTRA EHF.
Vísir hf. styður björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík um þrjár
milljónir króna á ári til næstu þriggja ára í tilefni af 50 ára af-
mæli Vísir. Þá gaf Vísir sveitinni einnig 700.000 krónur vegna
kerru undir nýjan bát björgunarsveitarinnar.
Grindavíkurkirkja var þétt setin að kvöldi sjómannadagsins
þegar þar voru haldnir minningartónleikar um þau Palla og
Möggu í Vísi. Hér má sjá börn þeirra í söng á tónleikunum.
Þorbjörn fær 9 milljónir
Minningartónleikar um Palla og Möggu