Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.06.2015, Page 23

Víkurfréttir - 11.06.2015, Page 23
23VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 11. júní 2015 -sportið pósturu vf@vf.is „Við fórum að vinna saman sem heild. Uppleggið var ekkert flókið og menn gerðu það sem þeir voru beðnir um að gera. Maður fann ein- hvern fiðring í maganum sem hafði kannski ekki verið til staðar í síðustu leikjum,“ sagði Einar Orri Einars- son, leikmaður Keflvíkinga eftir sigur gegn ÍBV í Pepsi-deildinni í knattspyrnu, aðspurður um hvað hefði breyst í fari liðsins í þessum leik. Einar var kominn aftur í sína hefðbundnu stöðu á miðjunni eftir að hafa leikið sem miðvörður og átti stórfínan leik auk þess að skora annað mark liðsins. Nýráðnir þjálfarar Keflavíkur í knattspyrnu, þeir Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Birnir Guðmunds- son, fengu sannkallaða óskabyrjun með liðið þegar Keflvíkingar lögðu Eyjamenn 3-1. Keflvíkingar unnu þar með sinn fyrsta sigur í sumar og jöfnuðu ÍBV að stigum en liðin sitja enn á botni deildarinnar með 4 stig hvort. Keflvíkingar mættu með leikgleði og bar- áttu að vopni í leikinn og var allt annað að sjá til þeirra en í undanförnum leikjum. „Ég er alltaf nokkuð sáttur ef ég spila leiki. Ég tel mig geta spilað báðar þess- ar stöður en ef ég þyrfti að velja tæki ég alltaf miðjuna. Á endanum ráða þjálfararnir hvar leikmenn spila.“ Þegar Einar var spurður um hvaða þýðingu þessi sigur hefði fyrir liðið sagði hann: „Auðvitað hefur þessi leikur gríðarlega þýðingu fyrir okkur. Ef við hefðum tapað værum við 5-7 stigum á eftir næstu liðum en erum þess í stað við hlið ÍBV og ÍA og von- umst til að geta klifrað upp töfluna í næstu leikjum. Nýju þjálfararnir höfðu ekki mikinn tíma til að undirbúa liðið en nýttu hann vel að mínu mati með því að reyna að skilgreina betur hlutverk hvers og eins og kveikja neista í okkur sem hafði farið dofnandi eftir því sem leið á mótið. Stemmningin var frábær inni í klefa eftir leik, eins og alltaf eftir sigurleiki. Verst að maður var farinn að gleyma hversu gaman er að vinna fótboltaleiki og vonandi verður þetta til þess að menn sætti sig ekki við neitt annað en svona partý í leikslok.“ Keflvíkingar mæta liði Vals í næstu umferð, sunnu- daginn 14. júní, á Nettóvellinum. -segir Einar Orri Einarsson markaskorari í sigurleik Keflavíkur á ÍBV. Góð byrjun hjá nýjum þjálfurum. Var farinn að gleyma hversu gaman er að vinna fótboltaleiki Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Birnir Guðmundsson. Keflvíkingurinn Einar Orri Einarsson og Eyjamaðurinn Víðir Þorvarðar- son í baráttu um boltann. VF-mynd: Hilmar Bragi REYKJANESBÆ Gleðilega þjóðhátíð 17. júní

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.