Víkurfréttir - 12.11.2015, Qupperneq 13
13VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 12. nóvember 2015
Fyrsti laxinn ofan
við Barnafossa
„Ég var orðinn 36 ára gamall þegar
Maríulaxinn koma á land, þökk sé
miklum, norðlenskum veiðimanni,
Stefáni Sigurðssyni. Þetta var í
Djúpá, skammt ofan Barnafossa,“
segir Hjálmar þegar hann rifjar upp
fyrsta laxinn sem hann veiddi:
„Tvisvar hafi ég farið með tengda-
pabba og mágum mínum í lax-
veiði án árangurs. Fann meira að
segja fyrir svekkelsi yfir fiskleysinu
og komst að þeirri niðurstöðu að
þetta ætti ekki fyrir mér að liggja.
Við Valgerður fórum norður
á Akureyri í heimsókn til skóla-
systur hennar. Þekkti gestgjafana
sjálfur lítið. Húsbóndinn spyr mig
fljótlega eftir komuna hvort ég sé
veiðimaður. Segi raunir mínar og
hafi í raun hætt laxveiði áður en
ég byrjaði þær. „Það var leitt,“
svarar hann. „Ég ætlaði nefnilega
að bjóða þér í laxveiði.“ Ekki þurfti
nú meiri ögrun. Við fórum í Djúpá,
fallega, litla á sem rennur úr Ljósa-
vatni út í Skjálfandafljót við Barna-
fossa. Stefán Sigurðsson heitir sá
er dró mig í þessa örlagaríku ferð.
Hann er einn mesti veiðimaður
og náttúrbarn sem ég hef kynnst
og lærði mikið af honum. Þarna
þræddi hann maðk á öngul, festi
flot á og sagði mér að dunda við
lygnan hyl í góðan tíma. Skrapp
sjálfur ofar í ána. Ekki hafði ég
verið lengi þegar flotið byrjaði að
kippast niður reglulega og fyrr
en varði reyndist fiskur á. Hélt að
hjartað ætlaði út út líkama mínum
– svo mikill var spenningurinn um
það hvort hann næðist á land. Vissi
í raun ekki hvernig maður ætti að
bera sig að. Nema Stebbi hafði sagt
mér að halda stönginni boginni ef
fiskur kæmi á.
„Eftir langa og streitufulla mæðu
landaði ég Maríulaxi mínum –
báðir gjörsamlega búnir á því –
fiskur og veiðimaður. Lesendur
geta rétt ímyndað sér stolta veiði-
manninn þegar Stebbi, Mentor-
inn, kom nokkru síðar að kanna
stöðuna. Á milli þúfna lá þessi líka
myndarlegi 6 pundari. Síðan á
Djúpá sinn sess í hjarta mínu“.
pósturu pket@vf.is
500. laxinum fagnað með kampavíni
Núna í október náðist svo 500. laxinn á land. Var jafn spennandi og skemmtilegt eins og þegar þeim fyrsta var landað. Hef skrá yfir alla 500 laxana, hvar veiddir, á hvað og með hverjum. Tímamótafiskur-
inn fékkst í Ytri-Rangá við útfallið á veiðistað nr. 17A. Hafði með mér kampavín og hef oft losað tappa af
minna tilefni. Læt fylgja mynd af glöðum veiðimanni, dauðum laxi og fersku kampavíni. Til að undirstrika
lukkuna setti Ólafur Jón í fisk og landaði á sama stað skömmu síðar undir regnboganum. Vertíð ársins lauk
með stæl og biðin eftir næstu þegar byrjuð.
Hjálmar með 500. laxinn
og kampavínið er klárt.
Sjö laxar á bakkanum og hjónin ánægð.
Hjálmar landaði þessum glæsilega 15 pundara í Skógá og auðvitað á rauðan Frances nr.12..
Félagsskapurinn er stórt atriði í veiði. Hér er Hjálmar með Konráð Lúðvíkssyni og Einari Jóni Pálssyni.
Hjálmar í stuði í Laxá í Leir.