Víkurfréttir - 12.11.2015, Qupperneq 16
16 fimmtudagur 12. nóvember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf pósturu vf@vf.is
„Kvennaveldið: Konur og kyn-
vitund“ heitir sýning sem opnuð
verður á vegum Listasafns
Reykjanesbæjar í Duus Safna-
húsum í Reykjanesbæ föstu-
daginn 13. nóvember kl. 18. Á
sýningunni er að finna verk eftir
tólf listakonur, Doddu Maggý,
Guðnýju Kristmanns, Guð-
rúnu Tryggvadóttur, Hlaðgerði
Írisi, Huldu Vilhjálmsdóttur,
Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur,
Kristínu Gunnlaugsdóttur, Lo-
uise Harris, Magdalenu Mar-
gréti Kjartansdóttur, Rósku,
Valgerði Guðlaugsdóttur og
Þórdísi Aðalsteinsdóttur. Sýn-
ingarstjóri er Aðalsteinn Ing-
ólfsson, listfræðingur.
Leiðarstef sýningarinnar er að
finna í texta sem bandaríska
skáldkonan Joan Didion skrifaði
um konur og femínisma, nefni-
lega: „Hvað það er að vera kona,
ósættanlegar andstæðurnar sem
í því felast – hvernig það er að
lifa dýpsta vitundarlífi sínu líkt
og neðansjávar, við dimman nið
blóðs, barnsburða og dauða“. Í
þessum texta deilir rithöfundur-
inn einnig á bandarískan femín-
isma, sem hún taldi gera lítið úr
girnd, myrku ímyndunarafli og
líkamlega tengdum áhyggjum
þroskaðra nútímakvenna.
Um listakonurnar á sýningunni
segir í sýningarskrá: „(Þær) fara
ekki í felur með langanir sínar
og ímyndanir. Þær segja frá til-
urð kynhvatar og kynþroska,
opna meira að segja fyrir eld-
fima umræðuna um kynþokka
barna, upphefja áður „óum-
ræðanleg“ fyrirbæri á borð við
sköp og fýsn kvenna, flétta saman
eigin líffræði, táknfræði og sagn-
fræði..Áhorfandinn fær á tilfinn-
inguna að í hispursleysi sínu séu
myndlistarkonur komnar lengra
í tilfinningaþroska en karlkyns
starfsbræður þeirra, sjálfskipaðir
umsjónarmenn stórra sanninda.“
Í sýningarskrá er einnig að finna
ritgerð eftir Sigríði Þorgeirs-
dóttur, prófessor í heimspeki,
sem ber heitið „Meiri spennu og
minna stríð milli kynjanna“. Þar
deilir hún m.a. á peningahagkerfi
nútímans, sem „á upptök sín í
hlutgervingu kvenna og meinar
þeim á margan hátt að vera þær
sjálfar.“
Sýningin í Listasafni Reykjanes-
bæjar stendur til 24. janúar 2016
og er opin frá 12.00-17.00 alla
daga.
KVENNAVELDIÐ
Ný sýning í Listasafni Reykjanesbæjar
Nýmynd ehf - Iðavöllum 7 - 230 Reykjanesbæ
sími 421 1016 - www.nymynd.is - mynd@nymynd.is
2 0 j ó l a k o r t
Jólatilboð
- Myndataka, 20 jólakort og þrjár
myndir í stærðinni 13 x 18 cm.
Fjölbreytt úrval af jólakortum, þú velur.
Glæsilegar jólagjafir
Verð: 22.900 kr
Jólamyndatökur
- Okkar vinsælu barnamyndatökur.
- Verð við allra hæfi.
Tímapantanir í síma 421 1016
Afmælistilboð 11.11.2015
20% afsláttur af öllum stækkunum
Gildir frá 11. nóvember til 30. nóvember
þ r j á r m y n d i r 1 3 x 1 8 c m
ORLOFSHÚS Á SPÁNI
Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins á Spáni laust til umsóknar fyrir
páska. Einnig auglýsir félagið Spánarhús laust til umsóknar fyrir sumar.
Hægt er að sækja um á skrifstofu félagsins eða á vefnum www.stfs.is.
Orlofsnefnd STFS
PÁSKAÚTHLUTUN 2016
Orlofshús á La Marina á Spáni.
22. mars til 5. apríl.
Umsóknarfrestur til 7. desember
SUMARÚTHLUTUN 2016
Orlofshús á La Marina á Spáni.
Sumarúthlutun er
frá 15. maí til 30. sept.
(2 vikur hver úthlutun)
Umsóknarfrestur til 7. desember
Leikfélag Keflavíkur frum-sýndi um síðustu helgi barna-
leikritið Rauðhettu í í leikstjórn
Víkings Kristjánssonar leikara.
Verkið er barnaleikrit fyrir alla
fjölskylduna, en Víkingur segir
að verkið hafi verið stækkað
og inní það bætt fjölmörgum
nýjum persónum til að krydda
söguna og gera hana skemmti-
legri. Auk þess hafa verið samin
nokkur skemmtileg lög sem setja
skemmtilegan svip. Þetta er í
annað skipti sem Leikfélag Kefla-
víkur setur upp leikritið um hana
Rauðhettu.
Uppsetning Rauðhettu núna fær
góðar viðtökur áhorfenda sem hafa
tjáð sig um verkið á fésbókinni og
mæla með Rauðhettu fyrir alla fjöl-
skylduna.
Næstu sýningar á Rauðhettu verða
í Frumleikhúsinu í Keflavík laugar-
daginn 14. nóvember kl. 17. Tvær
sýningar verða á sunnudag kl. 14 og
17 og svo verður aftur sýnt sunnu-
daginn 22. nóvember kl. 14 og 17.
Nánari upplýsingar um Rauðhettu
má nálgast á www.lk.is
Leikfélag Keflavíkur með barnaleikrit í Frumleikhúsinu:
RAUÐHETTA
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA