Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 8
8 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Erla Guðmundsdóttir var kjörin sóknarprestur í Kefla-
víkurkirkju í vor. Hún er fyrsta
konan til að gegna því embætti
og jafnframt fyrsti innfæddi Kefl-
víkingurinn sem það gerir. Áður
hafði hún gegnt starfi æskulýðs-
fulltrúa hjá Keflavíkurkirkju.
Árið 2009 var hún vígður prestur
safnaðarins og starfaði þá við hlið
sr. Skúla og sr. Sigfúsar. Erla segir
það töluverð viðbrigði að gegna
nú starfi sóknarprests. „Mörg
eru ósýnilegu verkin í þessu nýja
embætti sem ég er enn að máta
mig í,“ segir hún. Erla bendir á
að fólki fjölgi á Suðurnesjum en
prestum ekki. „Það er því mikið
að gera hjá okkur í sálgæslunni
og hjálparstarfinu. Það góða
við fólkið okkar er að það gerir
kröfur til kirkjunnar. Það vill að
hún standi sig og sé til staðar og
við viljum mæta því.“
Erla og eiginmaður hennar Sveinn
Ólafur Magnússon eiga þrjú börn,
þau Helgu 13 ára, Hinrik 5 ára og
Guðríði 3 ára. Erla og Sveinn byrj-
uðu ung saman og segist hún varla
þekkja lífið án hans. Þau fluttu til
Kaupmannahafnar í kringum tví-
tugsaldurinn og fóru bæði í nám,
hún í guðfræði og hann í fram-
leiðslutæknifræði. „Við tókum með
okkur 14 tommu túbusjónvarp,
fjóra kassa og sængur og ætluðum
aðeins að stoppa þarna við. Árin
í Kaupmannahöfn urðu svo átta
og þegar við komum heim vorum
við gift, með barn og heilan gám af
búslóð,“ segir hún.
Sköpuðu jólahefðir
í Kaupmannahöfn
Erla og fjölskylda sköpuðu sínar
eigin jólahefðir á námsárunum í
Kaupmannahöfn og heldur hún
mikið upp á þær allar. „Ég er mikil
hefðakona og manninum mínum
þykir stundum um og ó. Ég skrifa
meir að segja niður hvaða hefðir
eru og hverju þarf að bæta við. Ég
er alin upp við margar hefðir við
hátíðar og í hversdagslífi og þannig
vil ég búa börnum mínum. Þetta
verða svo dýrmætar minningar.
Það var svo dásamlegt hvernig
mamma undirbjó aðventu og jól.
Allt var þrifið, pússað og skreytt
fyrir fyrsta sunnudag í aðventu og
öllum þessum verkum fylgdi aldrei
stress hjá mömmu. Við hjálpuð-
umst að og undir hljómuðu jóla-
lög af plötuspilarnum hans pabba.
Þann háttinn hef ég haft eftir að
ég hóf búskap. Ég er hætt að lesa
greinar frá fólki um að maður eigi
ekki að vera að stressa sig að þrífa
inni í skápum og ofan í skúffum
því þar heldur maður ekki jólin.
Ég fussa bara yfir þessu og enginn
þarf að segja hvernig við háttum
okkar undirbúningi,“ segir Erla
og hlær. „Maður getur gengið í öll
verk með ákveðnu hugarfari og
fyrir suma eru þrif afslöppun undir
jólalagatónum og öll fjölskyldan er
að hjálpast að að gera heimilið fínt
fyrir hátíðina.“
Aðventukransinn á sérstakan sess á
heimili Erlu og eiga þau fjölskyldan
alltaf góðar stundir þegar kveikt
er á hverju kerti. „Þá syngjum við
saman lagið Við kveikjum einu
kerti á. Dóttir mín er að læra á
flautu og spilar undir.“ Stundum er
Erla að vinna á sunnudögum og þá
kveikja þau á kertinu á laugardegi
eða mánudegi.
Erla bakar smákökur fyrir jólin og
reynir alltaf að gera eins kökur og
mamma hennar. „Þó árin líði þá
verða þær aldrei alveg eins og hjá
mömmu en hún á það til að bæta
stundum í boxin mín.“ Önnur
skemmtileg hefð hjá Erlu og fjöl-
skyldu er húslestur. Þá lækka þau
í símum og öðrum tækjum og
hlusta saman á sögu. Núna í ár er
það Aðventa eftir Gunnar Gunn-
arsson sem þau hjónin lesa með
elstu dótturinni. „Það er ákveðinn
sjarmi yfir húslestri og sumar sögur
er hægt að lesa um hverja aðventu.“
Í Danmörku tók fjölskyldan upp
þá skemmtilegu jólahefð að útbúa
góðgæti fyrir fuglana og setja í trén.
Fæddi jólabarn
Erla hefur alla ævi hlýtt á jólaguð-
spjallið á aðfangadag, með einni
undantekningu, þegar hún fæddi
dóttur sína aðfangadagskvöldið
árið 2002 sem hún segir hafa verið
einstaka stund. Það er því alltaf af-
mælisveisla á heimilinu á aðfanga-
dag og ekki minnst á jólin fyrr en
mamma gerir sig klára til vinnu
klukkan 15. Þau hafa alltaf passað
vel upp á að afmæli dótturinnar
gleymist ekki í öllu umstanginu á
aðfangadag. Á aðfangadag er alltaf
messa klukkan 16, aftansöngur
klukkan 18 og svo miðnæturmessa
klukkan 23:30 og því miðast dag-
skrá aðfangadagsins hjá þeim fjöl-
skyldunni við það. Hún kveðst vera
vel gift og því gangi þetta upp. Sama
sé að segja um fólkið í kórnum og
messuþjóna sem eiga góða fjöl-
skyldu á meðan þjónað er í há-
tíðarguðsþjónustum. Í fyrra komu
börn Erlu í messu á aðfangadag og
voru þau yngri heldur óþolinmóð
að bíða eftir því að mamma þeirra
hætti að tala. „Þau voru oft að
spyrja hátt og skýrt hvort mamma
þeirri færi ekki að verða búin tala.
Þetta var því heldur heimilislegt að
prestsbörnin voru komin með nóg
en vonandi hafa allir umburðar-
lyndi fyrir óþreyjufullum börnum
á aðfangadag.“
Fjölbreyttur
hópur kirkjugesta
Erla segir gaman að sjá hve margir
komi til messu um jólin. „Hjá
mörgum fjölskyldum er það hefð
að koma til kirkju um jólin þó þær
komi ekki á öðrum árstímum.
Það er því mikil fjölbreytni sem
er skemmtilegt og fallegt. Fólk vill
heyra jólaguðspjallið lesið, syngja
Heims um ból og upplifa anda
jólanna í helgidómnum.“
Þvert á það sem flestir myndu ef-
laust halda segir Erla vera rólegra
yfirbragð í starfi prestsins yfir há-
tíðisdaga jólanna. Á aðventunni
sjálfri er aftur á móti í mörg horn
að líta og það hlýjar prestunum að
upplifa hversu margir vilja fá þá
í heimsókn eins og í öllum þeim
félagasamtökum sem starfrækt eru
á svæðinu. „Það er dásamlegt og
manni eru ekki settar skorður um
hvað má ræða svo maður talar bara
opinskátt um Jesúbarnið.“ Hún
segir einstakt hve mörg mannúðar-
félög og líknarfélagasamtök séu
starfandi á Suðurnesjum sem styðji
við hin ýmsu málefni.
Janúar er einnig oft annasamur tími
í kirkjunni og segir Erla hann jafn-
vel erfiðasta mánuðinn. „Þá birtast
eftirköst jólanna á svo margan hátt.
Það er erfitt fyrir fólk sem situr í
fyrsta sinn við hátíðarborðið á að-
fangadagskvöld og það er autt sæti
vegna ástvinar sem hefur fallið frá.
Það er líka oft erfitt í janúar eftir
öll útgjöldin í desember. Svo bíður
fólk stundum með hjónaskilnaði
þangað til eftir áramót. Það má því
segja að janúar sé erfiður mánuður
fyrir margra hluta sakir.“
Þakklát fyrir kosningu
Erla tók við embætti sóknarprests
við Keflavíkurkirkju fyrr á árinu
þegar Skúli S. Ólafsson, þáverandi
sóknarprestur, fór til starfa hjá Nes-
kirkju. Fólk innan kirkjunnar kall-
aði eftir því að fram færu kosningar
því það vildi tryggja að Erla hlyti
embættið. Því var gengið í hús og
undirskriftum safnað til að knýja
á um að prestskosningar yrðu
haldnar. Hún segir það því hafa
verið blessun sína að fólk hafi arkað
af stað til að safna undirskriftum.
Hún viðurkennir þó að þetta ferli
hafi tekið á. „Mér fannst óþarflega
mikið af myndum af mér í fjöl-
miðlum enda finnst mér óþægilegt
að vekja þannig athygli, þó að mér
líði alltaf vel að tala við fjölda fólks
í kirkjunni.“ Prestskosningar fóru
fram í vor og var Erla ein í fram-
boði. Hún kveðst hafa verið létt
að ekki hefði komið mótframboð.
„Ég hefði varla haft tíma til þess
enda vorum við að setja upp stóran
söngleik og að ferma fjöldann allan
af börnum á þessum tíma.“
Á kjörskrá voru 4577 og var kjör-
sóknin 21 prósent. Erla segir sér
hafa hlýnað um hjartarætur við hve
margir lögðu leið sína á kjörstað til
að kjósa. „Mér þótti vænt um þetta
og finnst þetta góð kjörsókn miðað
við að ég var ein í framboði og þá
var þetta sértaklega góður stuðn-
ingur inn í starfið. Ég átta mig núna
á velvilja fólks í garð kirkjunnar og
okkar sem þar störfum. Ég finn
fyrir því að fólk lætur sér annt um
okkur sem þjónum í Keflavíkur-
kirkju; Arnór organista, Þórunni
rekstrarstjóra, Önu sem stendur
vaktina við að hafa allt fallegt og
hreint, sem og um okkur prestana
en Eva Björk Valdimarsdóttir var
sett í embætti prests í haust. Hún er
Akureyringur sem finnur að sam-
félagið vill að henni líði vel hér í
bænum okkar.“
Erla mætti með gleði í sunnu-
dagaskólann í Keflavíkurkirkju í
æsku, fermdist þar, gifti sig og lét
skíra börn sín. Hún er því þakklát
fyrir að þjóna þar nú sem sóknar-
prestur. 100 ára afmæli kirkjunnar
var fagnað árinu en hún var byggð
í sjálfboðastarfi, meðal annars af
forfeðrum Erlu. Keflavíkurkirkja
er ein af fyrstu steinsteypu kirkjum
landsins og þótti gríðarlega mikið
mannvirki á sínum tíma enda var
þá gert ráð fyrir að hún gæti rúmað
meirihluta bæjarbúa. Langamma-
og afi Erlu þjónuðu mikið í kirkj-
unni og á skrifstofu sinni í kirkj-
unni situr Erla við skrifborð hans.
Í fjölskyldu Erlu hefur alltaf verið
talað um hana Keflavíkurkirkju.
„Ég upplifi hana sem eina af okkur.
Hún hefur staðið hérna í heila öld
og er fólkið sem myndar hana. Það
hefur alltaf verið þannig að fjöldi
fólks hefur viljað þjóna henni. Fólk
vill hafa þennan helgidóm til staðar
og að hann sé prýði.“
-viðtal pósturu dagnyhulda@vf.is
Erla Guðmundsdóttir sóknarprestur í Keflavíkurkirkju heldur fast í
jólahefðir og er búin að þrífa hátt og lágt og hengja jólaljósin upp fyrir
fyrsta sunnudag í aðventu. Á námsárunum bjó hún í Danmörku með
eiginmanni sínum og elsta barninu og þar sköpuðu þau sínar eigin jóla-
hefðir, eins og að útbúa góðgæti handa smáfuglunum.
REYNIR
AÐ BAKA
EINS OG
MAMMA