Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 14
14 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR Ástin kviknaði á táningsaldri í Kaupfélaginu sáluga hjá þeim Róberti og Hafdísi sem í daglegu tali eru kennd við hús- gangaverslunina Bústoð í Reykja- nesbæ sem fangar 40 ára starfsaf- mæli á þessu ári. Þau ólust upp í Kaupfélaginu ef svo mætti segja og ákváðu þau sjálf að reyna sér í verslunarrekstri þegar þau voru rétt tæplega þrítug. „Verslun var það sem við kunnum. Það var verið í að pæla í ýmsu og m.a. byggingarvöruverslun og mat- vöruverslun. „Svo enduðum við í húsgögnunum sem er sennilega happaspor,“ segir Róbert. „Það hafði enginn trú á því að þetta gengi og mörgum leist ekkert á þetta þegar við opnuðum. Okkur var ekki spáð langlífi í þessu,“ bætir Hafdís við. Fyrstu árin voru líka nokkuð strembin. Róbert vann þá allar nætur við að vigta afla í fiskiðjunni, frá klukkan 20:00 til 4 á nóttunni. Hafdís stóð vaktina í búðinni en Róbert mætti þangað um klukkan 11:00 á morgnana. „Við tókum engin laun út úr fyrirtækinu fyrstu árin. Það er grunnurinn að þessu að fyrirtækið skuldaði alltaf lítið og skuldar ekkert í dag. Þannig stóðum við af okkur kreppuna með því að eiga allan lager, húsnæði og allt.“ Þann 14. mars árið 1975 opnar Bústoð. Á sama tíma var verið að ganga inn í EFTA og við það féllu niður tollar af húsgögnum. Þau hjónin fór því að flytja inn erlend húsgögn árið 1976 og voru þau meðal þeirra fyrstu hérlendis sem það gerðu. „Þegar tollarnir fóru af þá varð þarna gullaldartími, gekk rosalega vel. Við seldum á fyrsta mánuðinum það sem við höfðum áætlað að selja yfir árið,“ segir Ró- bert. Verslunin var 250 m2 fyrst um sinn en stækkaði fljótlega um helming og var svo orðin 1000 m2 áður en langt um leið. Búðin var þá á Vatnsnesvegi 14. Það er svo árið 1985 sem starfsemin fluttist á núverandi stað á Tjarnargötu 2 í glæsilegt 1600 m2 húsnæði. Síðan eru liðin 40 ár og reksturinn hefur gengið vel á þeim tíma og er líklega bara ein verslun sem hefur hærri starfsaldur, en það er verslun Georg V. Hannah. „Þetta hefur allt- af gengið mjög vel. Þetta er mjög skemmtilegur bransi en auðvitað hefur verið tröppugangur,stundum í takt við árferðið,“ segir Róbert. Á þessum tíma hafa komið ýmsar tískusveiflur í húsgagnabransanum. Hafdís segir að tískan sé nú komin í hring. Margt sem var á boðstólnum þegar þau voru að hefja rekstur, sé nú komið aftur í tísku hjá unga fólkinu. „Við eigum okkar kúnna frá því að við byrjuðum. Þeir koma alltaf aftur og aftur, allt innbúið er jafnvel frá okkur,“ segir Hafdís. Nú sé svo komið að þriðja kyn- slóð af viðskiptavinum er að sækja til þeirra, sem segir ýmislegt um traustið sem borið er til þeirra. Þau þakka velgengni sinni góðu starfs- fólki og tryggum kúnnum. Alla tíð hefur fólk hvaðanæva að á landinu haldið tryggð við verslunina. Ró- bert segir að skýringuna á því megi fyrst og fremst þakka góðu og sam- keppnishæfu verði og fjölbreyttu úrvali. Netið hefur breytt talsverðu í verslun og segja þau hjónin að margir viðskiptavinir rati til þeirra eftir að hafa fundið gott verð og úr- val hjá þeim á netinu. „Við viljum endilega fá að þakka fyrir að hafa fengið að vera með viðskiptavinum okkar í þessi 40 ár og vonum að þeir séu jafn ánægðir og við. Sér- staklega viljum við þakka okkar frábæra starfsfólki í gegnum tíðina sem hefur reynst okkur vel. Þau hjónin eru sammála um að mikilvægt sé að fylgjast með nýj- ustum straumum og tísku í þessum geira. Á hverju ári fara þau á stórar húsgagnasýningar erlendis þar sem þau hafa myndað mikil og góð sambönd í gegnum tíðina. Jafn- vel eignast kæra vini sem starfa í þessum sama bransa. „Það er líka gott að vera sjálf í afgreiðslunni því þá fær maður beint samband við kúnnann. Maður sér hverju hann er að leita eftir,“ segir Róbert. Eftir efnahagshrun kom upp sú hugmynd hjá þáverandi starfsfólki þeim Reyni og Ásu hvort ekki væri rétt að opna gjafavöru- og ljósa- deild í versluninni og það varð úr og reyndist þetta gott innlegg í verslunina því húsgagnasala hafði dregist mikið saman við hrunið. Þetta var kærkomin viðbót við verslunina og hefur verið vinsæl hjá viðskiptavinum alveg frá upp- hafi. Á þessum 40 árum hafa ýmis að- ilar sýnt fyrirtækinu áhuga. Fólk hefur viljað fá þau í eins konar út- rás á höfuðborgarsvæðið og viljað stækka verslunina frekar. „Við höfum alltaf sagt sjálfum okkur að -viðtal „Þurfum ekki að vera stærst, við þurfum bara að vera ánægð“ -Húsgangaverslunin Bústoð fagnar 40 ára afmæli á þessu ári

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.