Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 20
20 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR Fimmtíu og þrír nemendur út-skrifuðust á haustönn Fjöl- brautaskóla Suðurnesja en braut- skráning fór fram á sal skólans sl. laugardag. Sylvía Rut Káradóttir var með hæstu meðaleinkunina á stúdentsprófi og því dúx haust- annar. Stúdentar voru flestir brautskráðra eða 42, einn var af starfsbraut, átta úr verknámi og þrír úr starfsnámi. Nokkrir út- skrifuðust af tveimur brautum. Karlar voru 30 og konur voru 23. Alls komu 40 úr Reykjanesbæ, 4 úr Grindavík, 3 úr Garði og einn úr Sandgerði. Þá kom einn nem- andi frá Kópavogi, Kópaskeri, Kjalarnesi, Grenivík og Selfossi. Dagskrá brautskráningar var með hefðbundnu sniði. Kristján Ás- mundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guð- laug Pálsdóttir aðstoðarskólameist- ari flutti yfirlit yfir störf annar- innar. Bjarni Halldór Janusson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Guðni Kjartansson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju fluttu nemendur skólans tónlist við athöfnina en Sólborg, Gunnar og Einar Guðbrandsbörn sungu og faðir þeirra Guðbrandur Einarsson lék undir á píanó. Við athöfnina voru veittar viður- kenningar fyrir góðan námsár- angur. Bjarni Halldór Janusson og María Rose Bustos fengu viður- kenningu fyrir störf í þágu nem- enda. Sandra Ósk Jónsdóttir og Stefán Birgir Jóhannesson fengu viðurkenningar fyrir góðan ár- angur í félagsfræði og Ásgeir Valur Jónsson fyrir bókfærslu. Heiðar Örn Hönnuson fékk gjöf frá danska sendiráðinu fyrir árangur sinn í dönsku. Gunnlaugur Árni Jónsson fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í félagsfræði og heimspeki. Birta Rós Ágústsdóttir fékk viðurkenningu fyrir árangur sinn í fata- og textílhönnun og spænsku og hún fékk einnig verð- laun frá Landsbankanum fyrir góð- an árangur í textílgreinum. Þá fékk Birta Rós 30.000 styrk frá Isavia fyrir bestan árangur í list- og verk- námi en hún útskrifaðist af list- námsbraut. Helena Ósk Árnadóttir fékk verðlaun fyrir góðan árangur í efnafræði, stærðfræði og spænsku og gjöf frá Verkfræðistofu Suður- nesja fyrir árangur sinn í stærð- fræði. Alexandra Sæmundsdóttir fékk viðurkenningu frá skólanum fyrir góðan námsárangur í efna- fræði, stærðfræði og spænsku. Alexandra fékk einnig gjafir frá Íslenska stærðfræðifélaginu og Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði. Sylvía Rut Káradóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í lífeðlisfræði, efnafræði, stærðfræði og spænsku. Hún fékk síðan verðlaun frá Þekk- ingarsetri Suðurnesja fyrir góðan árangur í náttúrufræði og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði. Krist- ján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðal- einkunn við útskrift og hlaut Sylvía Rut Káradóttir styrkinn. Sylvía Rut hlaut einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu ein- kunn á stúdentsprófi. Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktar- sjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaup- félagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélags- stjóra og fyrsta formanni skóla- nefndar Fjölbrautaskóla Suður- nesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita útskriftarnemendum viður- kenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þau Friðrika Ína Hjartardóttir, Guðrún Lára Árna- dóttir, Sigurborg Lúthersdóttir og Halldór Bragi Skúlason fengu öll 20.000 kr. styrk fyrir góða frammi- stöðu í lífsleikni og ræðumennsku. -mannlíf pósturu vf@vf.is Sylvía Rut er dúx haustannar FS Við lok athafnarinnar veitti skólameistari Ásu Valgerði Einarsdóttur kennara gull- merki FS en hún hefur starfað við skólann í 25 ár. Sylvía með Önnu Garðarsdóttur móður sinni og Sigurjóni Sveinssyni fósturföður sínum. Nemendur sem fengu viðurkenningar við útskriftina. Nokkrir nemendur fengu styrki úr styrktarsjóði FS sem var stofnaður af Gunnari Sveinssyni og Kaupfélagi Suðurnesja.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.