Víkurfréttir - 22.12.2015, Blaðsíða 14
14 þriðjudagur 22. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR
Ástin kviknaði á táningsaldri í Kaupfélaginu sáluga hjá
þeim Róberti og Hafdísi sem í
daglegu tali eru kennd við hús-
gangaverslunina Bústoð í Reykja-
nesbæ sem fangar 40 ára starfsaf-
mæli á þessu ári. Þau ólust upp í
Kaupfélaginu ef svo mætti segja
og ákváðu þau sjálf að reyna sér
í verslunarrekstri þegar þau voru
rétt tæplega þrítug. „Verslun var
það sem við kunnum. Það var
verið í að pæla í ýmsu og m.a.
byggingarvöruverslun og mat-
vöruverslun. „Svo enduðum við
í húsgögnunum sem er sennilega
happaspor,“ segir Róbert. „Það
hafði enginn trú á því að þetta
gengi og mörgum leist ekkert á
þetta þegar við opnuðum. Okkur
var ekki spáð langlífi í þessu,“
bætir Hafdís við.
Fyrstu árin voru líka nokkuð
strembin. Róbert vann þá allar
nætur við að vigta afla í fiskiðjunni,
frá klukkan 20:00 til 4 á nóttunni.
Hafdís stóð vaktina í búðinni en
Róbert mætti þangað um klukkan
11:00 á morgnana. „Við tókum
engin laun út úr fyrirtækinu fyrstu
árin. Það er grunnurinn að þessu
að fyrirtækið skuldaði alltaf lítið
og skuldar ekkert í dag. Þannig
stóðum við af okkur kreppuna með
því að eiga allan lager, húsnæði og
allt.“
Þann 14. mars árið 1975 opnar
Bústoð. Á sama tíma var verið að
ganga inn í EFTA og við það féllu
niður tollar af húsgögnum. Þau
hjónin fór því að flytja inn erlend
húsgögn árið 1976 og voru þau
meðal þeirra fyrstu hérlendis sem
það gerðu. „Þegar tollarnir fóru af
þá varð þarna gullaldartími, gekk
rosalega vel. Við seldum á fyrsta
mánuðinum það sem við höfðum
áætlað að selja yfir árið,“ segir Ró-
bert. Verslunin var 250 m2 fyrst
um sinn en stækkaði fljótlega um
helming og var svo orðin 1000 m2
áður en langt um leið. Búðin var
þá á Vatnsnesvegi 14. Það er svo
árið 1985 sem starfsemin fluttist
á núverandi stað á Tjarnargötu 2 í
glæsilegt 1600 m2 húsnæði.
Síðan eru liðin 40 ár og reksturinn
hefur gengið vel á þeim tíma og er
líklega bara ein verslun sem hefur
hærri starfsaldur, en það er verslun
Georg V. Hannah. „Þetta hefur allt-
af gengið mjög vel. Þetta er mjög
skemmtilegur bransi en auðvitað
hefur verið tröppugangur,stundum
í takt við árferðið,“ segir Róbert.
Á þessum tíma hafa komið ýmsar
tískusveiflur í húsgagnabransanum.
Hafdís segir að tískan sé nú komin í
hring. Margt sem var á boðstólnum
þegar þau voru að hefja rekstur,
sé nú komið aftur í tísku hjá unga
fólkinu. „Við eigum okkar kúnna
frá því að við byrjuðum. Þeir koma
alltaf aftur og aftur, allt innbúið
er jafnvel frá okkur,“ segir Hafdís.
Nú sé svo komið að þriðja kyn-
slóð af viðskiptavinum er að sækja
til þeirra, sem segir ýmislegt um
traustið sem borið er til þeirra. Þau
þakka velgengni sinni góðu starfs-
fólki og tryggum kúnnum. Alla tíð
hefur fólk hvaðanæva að á landinu
haldið tryggð við verslunina. Ró-
bert segir að skýringuna á því megi
fyrst og fremst þakka góðu og sam-
keppnishæfu verði og fjölbreyttu
úrvali. Netið hefur breytt talsverðu
í verslun og segja þau hjónin að
margir viðskiptavinir rati til þeirra
eftir að hafa fundið gott verð og úr-
val hjá þeim á netinu. „Við viljum
endilega fá að þakka fyrir að hafa
fengið að vera með viðskiptavinum
okkar í þessi 40 ár og vonum að
þeir séu jafn ánægðir og við. Sér-
staklega viljum við þakka okkar
frábæra starfsfólki í gegnum tíðina
sem hefur reynst okkur vel.
Þau hjónin eru sammála um að
mikilvægt sé að fylgjast með nýj-
ustum straumum og tísku í þessum
geira. Á hverju ári fara þau á stórar
húsgagnasýningar erlendis þar sem
þau hafa myndað mikil og góð
sambönd í gegnum tíðina. Jafn-
vel eignast kæra vini sem starfa í
þessum sama bransa. „Það er líka
gott að vera sjálf í afgreiðslunni því
þá fær maður beint samband við
kúnnann. Maður sér hverju hann
er að leita eftir,“ segir Róbert.
Eftir efnahagshrun kom upp sú
hugmynd hjá þáverandi starfsfólki
þeim Reyni og Ásu hvort ekki væri
rétt að opna gjafavöru- og ljósa-
deild í versluninni og það varð úr
og reyndist þetta gott innlegg í
verslunina því húsgagnasala hafði
dregist mikið saman við hrunið.
Þetta var kærkomin viðbót við
verslunina og hefur verið vinsæl
hjá viðskiptavinum alveg frá upp-
hafi.
Á þessum 40 árum hafa ýmis að-
ilar sýnt fyrirtækinu áhuga. Fólk
hefur viljað fá þau í eins konar út-
rás á höfuðborgarsvæðið og viljað
stækka verslunina frekar. „Við
höfum alltaf sagt sjálfum okkur að
-viðtal
„Þurfum ekki að vera stærst, við
þurfum bara að vera ánægð“
-Húsgangaverslunin Bústoð fagnar 40 ára afmæli á þessu ári