Víkurfréttir - 17.03.2016, Qupperneq 4
4 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR
Eldey kór eldri borgara verður með
kökubasar í Nettó á morgun, föstu-
daginn 18. mars klukkan 14:00. Til-
efnið er söfnun kórfélaga til að standa
straum af kostnaði við 25 ára af-
mæli kórsins. Í fréttatilkynningu frá
kórnum segir að mikið verði um að
vera hjá þeim á afmælisárinu og að
maí mánuður verði undirlagður af
viðburðum. Þann 5. maí á Uppstign-
ingardag syngur Eldeyjarkórinn við
messu í Keflavíkurkirkju, þann 19.
maí í Víðihlíð og á Hlévangi, 20. maí á
Nesvöllum. Þann 21. maí tekur kórinn
svo þátt í kóramóti á Akranesi, og 26.
maí verða vortónleikar í Keflavíkur-
kirkju.
Fyrirhuguð er afmælisferð kórsins 16
til 21. september til Þýskalands. Af-
mælistónleikar og fleira verða á dag-
skrá með haustinu.
Kórfélagar vonast til að sjá sem flesta á
kökubasarnum og á viðburðum ársins
hjá kórnum.
Hnuplaði fyrir
þúsundir
■ Karlmaður sem staðinn var að
hnupli í verslun í umdæmi lög-
reglunnar á Suðurnesjum játaði
þjófnaðinn þegar lögreglumenn
ræddu við hann. Það sem hafði
freistað hans voru tvær dósir af
Nivea næturkremi, ein dós af dag-
kremi sömu tegundar, eitt box af lið-
verkjatöflum og ein tebolla. Maður-
inn skilaði varningnum, sem var að
verðmæti á níunda þúsund krónur, í
réttar hendur.
Fleygði fíkni-
efnum úr
bifreið
■ Farþegi í bifreið kastaði fíkni-
efnum út úr henni þegar Lögreglan
á Suðurnesjum hafði afskipti af
ökumanni hennar í vikunni. Öku-
maðurinn hafði ekki virt stöðvunar-
skyldu og því gáfu lögreglumenn
honum merki um að stöðva bifreið-
ina. Þá var farþegahurð bifreiðar-
innar opnuð og poka með kanna-
bisefnum kastað út. Ökumaðurinn
reyndist vera undir áhrifum fíkni-
efna við aksturinn að því er sýna-
tökur á lögreglustöð staðfestu. Báðir
mennirnir voru því handteknir.
Kökubasar kórs eldri borgara á föstudag
Icelandair Cargo ehf. óskar eftir að ráða þjónustulipran og
ábyrgðarfullan starfsmann í sumarafleysingar á skrifstofu
félagsins á Keflavíkurflugvelli.
Um er að ræða fjölbreytt skrifstofustarf við tollskjalagerð,
skjalavinnslu og almenn skrifstofustörf þar sem reynir á sjálf-
stæð og öguð vinnubrögð auk skipulagsfærni og nákvæmni
í starfi.
Starfssvið:
• Tollskjalagerð
• Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
• Skjalavinnsla
• Upplýsingagjöf
• Símsvörun
• Önnur skrifstofustörf
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Námskeið í tollskjalagerð eða hafa
unnið við tollskjalagerð er æskilegt
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Góð almenn tölvukunnátta m.a.
á Microsoft Office forrit og Navision
• Jákvæðni og rík þjónustulund
• Góð samskiptahæfni
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Hæfni til þess að vinna sjálfstætt sem og undir álagi
Unnið er virka daga frá 8-16 frá 15. maí til 30. ágúst.
Fólk með þekkingu og/eða reynslu úr flugheiminum
er sérstaklega hvatt til að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2016
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir óskast sendar til Soffíu Axelsdóttur, deildar-
stjóra Miðlunar hjá Icelandair Cargo ehf. á Keflavíkur-
flugvelli, á netfangið soffia@icelandaircargo.is.
Lágmarksaldur umsækjanda er 20 ár
ATVINNA
STÖRF HJÁ ICELANDAIR CARGO
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Eiríkur Eyfjörð Þórarinsson,
til heimilis að Framnesvegi 15, Keflavík,
lést þann 27. febrúar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur.
Þjónusta
Tek að mér klippa og snyrta smá-
hunda. Löng reynsla. Er í Innri Njarð-
vík. Kristín s. 897 9002
Til sölu
2 stk Michelin heilsárs dekk 185/65 14
tommu, óslitin.
Upplýsingar í síma 899 8041
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
LOFTNET
NETSJÓNVARP
UPPSETTNING
OG VIÐGERÐIR
Loftnet-Lofnetskerfi-
Ljósnet-Ljósleiðarateng-
ingar-Tölvulagnir-
Símalagnir-Bústaðir-
Húsbílar
Loftnetstækni.is
Sími 894-2460
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
SMÁAUGLÝSINGAR
Það er annað hvort í ökkla eða eyra við
Reykjanesvita. Þar hefur ferðamönn-
um fjölgað mikið en þjónustu, eins og
salernisaðstöðu hefur vantað. Nú lítur
út fyrir að tveir þjónustuskálar fyrir
ferðamenn rísi þar á næstu misserum.
Reykjanes Geopark auglýsti í febrúar
síðastliðnum eftir áhugasömum að-
ilum til að hefja uppbyggingu þjón-
ustumiðstöðvar við Reykjanesvita og
bárust fjórar umsóknir. Ekki hefur
verið tilkynnt hvaða tillaga verði valin.
Hugmyndin er að reisa allt að 400 fm
byggingu á lóð á milli Reykjanesvita
og Valahnúks, sem hýsa mun upp-
lýsingamiðstöð, veitingasölu, salerni
og fleira.
Í rúmlega eitt ár hafa eigendur ann-
arrar lóðar við Reykjanesvita undir-
búið byggingu 140 fm þjónustumið-
stöðvar við Reykjanesvita. Fyrirtækið
á bak við þau áform heitir Vitavörður-
inn ehf. og er í eigu þriggja dætra
Sigurjóns Ólafssonar sem var vita-
vörður á Reykjanesi frá 1947 til 1976.
Íbúðarhúsið við vitann er í eigu þeirra
og er ætlunin að byggja þjónustumið-
stöð við hlið þess, í framtíðinni hótel
þar á bak við og að hafa ráðstefnu-
hús í gamla vitavarðarhúsinu. Gréta
Súsanna Fjeldsted er í forsvari fyrir-
tækisins og segir hún það hafa komið
sér á óvart þegar hún sá að Reykjanes
Geopark væri að auglýsa eftir áhuga-
sömum aðilum til að byggja á næstu
lóð. „Í ferlinu hafði ég verið í reglulegu
sambandi við ýmsa embættismenn
hjá Reykjanesbæ og það kom aldrei
upp í umræðunni að önnur þjónustu- bygging væri að rísa þarna. Byggingin
á vegum Reykjanes Geopark á að rísa
við túnfótinn á lóðinni minni. Ég
fékk leyfi frá Minjastofnun í febrúar í
fyrra til að byggja og byggingaleyfi frá
Reykjanesbæ 6. janúar síðastliðinn. Ég
er komin með sterka fjárfesta og bygg-
ingastjóra og er því tilbúin að hefja
framkvæmdir,“ segir hún.
Að sögn Róberts Ragnarssonar, for-
manns stjórnar Reykjanes Geopark,
var þeim kunnugt um að eigendur
íbúðarhúss við Reykjanesvita hafi
í nokkur ár haft áhuga á að byggja
upp þjónustu og hafi fengið bygg-
ingarleyfi fyrir byggingu húss innan
lóðarinnar. „Reykjanesbær og Reykja-
nes UNESCO Geopark hafa auglýst
lausa lóð á svæðinu og hafa fjórir
aðilar lýst yfir áhuga á uppbyggingu
þjónustumiðstöðvar, veitingahúss og
gistingar. Upplýsingaöflun stendur
yfir og verður málið rætt á næsta
fundi stjórnar. Það er hvorki hlutverk
sveitarfélaga né geoparka að takmarka
samkeppni. Markaðsaðstæður og fjár-
mögnun ráða því hvort annað eða
bæði verkefnin verða að veruleika,“
segir hann.
Gréta telur of mikið að byggja tvær
þjónustubyggingar við Reykjanesvita.
„Þá væri einfaldlega verið að eyði-
leggja svæðið sem er það fallegasta á
Suðurnesjum. Ég óttast að það fólk
sem þessu ræður skilji ekki hversu
fallegur staðurinn er. Ég er tilbúin til
samstarfs um þjónustu við Reykjanes-
vita og vona innilega að af því verði.“
Eysteinn Eyjólfsson, formaður Um-
hverfis- og skipulagsráðs Reykjanes-
bæjar, fagnar auknum áhuga á upp-
byggingu á svæðinu. Þar sé mikil
umferð, mikill ágangur og þjónustu
skorti. „Svæðið við Valahnúk á
Reykjanesi er dýrmæt perla sem við
Suðurnesjamenn höfum ekki sinnt
sem skyldi. Breyting hefur þó orðið
á því á síðustu árum eins sést meðal
annars í nýju og skynsömu deiliskipu-
lagi sem tekur gildi á vordögum.“
Tvær þjónustubyggingar við
Reykjanesvita á teikniborðinu
●● Landeigandi●segir●tvær●byggingar●við●náttúruperlu●of●mikið● Formaður●stjórnar●Reykjanes●Geopark●segir●
markaðsaðstæður●og●fjármögnun●ráða●því●hvort●annað●eða●bæði●verkefnin●verði●að●veruleika