Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 11

Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 11
12 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR Mannvit hefur gert samning við Thor- sil ehf. um byggingu kísilvers Thorsils í Helguvík. Samningurinn er svokall- aður EPCM samningur, þ.e. alhliða samningur um hönnun, innkaup og umsjón framkvæmda. Verðmæti samningsins er um 4,9 milljarðar króna og nær framkvæmd hans yfir þrjú ár. Fyrirvari er í samningnum um endanlega fjármögnun byggingar- framkvæmda Thorsils. Með þessum samningi hefur Mannvit tekið að sér að sjá um verkfræðilegan undirbúning að byggingu kísilvers fyrirtækisins í Helguvík, hafa um- sjón með útboðum og gerð samninga við tækjaframleiðendur og verktaka, ásamt því að hafa yfirumsjón með framkvæmdum á meðan á byggingu kísilversins stendur. „Við hjá Mannviti erum afskaplega ánægð og stolt yfir gerð þessa samn- ings. Þetta er einn umfangsmesti samningur á sviði orkufreks iðnaðar sem íslenskt verkfræðifyrirtæki hefur gert fram til þessa, og við framkvæmd hans mun nýtast sú reynsla og tækni- þekking sem orðið hefur til hér á landi við áratuga þjónustu við fyrirtæki á sviði orkufreks iðnaðar,“ sagði Sigur- hjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits í tilefni af undirritun samningsins. „Eftir ítarlegan undirbúning og grein- ingu hefur Thorsil valið þá leið að byggja kísilver sitt með EPCM fyrir- komulagi. Með því næst fram talsvert hagræði sem Thorsil getur nýtt sér, einkum í ljósi þess að hjá fyrirtækinu, ráðgjöfum þess og tækniteymi er fyrir hendi mikil þekking á kísilmálm- iðnaðinum. Ennfremur býr Mann- vit yfir þekkingu og reynslu af því að stýra sambærilegum framkvæmdum. Thorsil hefur átt gott og farsælt sam- starf við Mannvit við undirbúning verkefnisins og ríkir ánægja hjá fyrir- tækinu með samninginn“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil. Dagforeldrunum Hrönn Ásmunds- dóttur, Margréti Stefánsdóttur og Huldu Guðmundsdóttur var veitt viðurkenning á Degi um málefni fjöl- skyldunnar fyrir 10 ára starfsaldur en dagurinn var haldinn hátíðlegur síðasta laugardag. Þá fékk Landsbank- inn í Reykjanesbæ viðurkenningu sem Fjölskylduvænt fyrirtæki 2016 en hann var tilnefndur af starfsmönnum. Viðurkenningin var að þessu sinni ljósmynd eftir OZZO. Dagur um málefni fjölskyldunnar var haldinn laugardaginn 12. mars í Fjölskyldusetrinu Skólavegi. Erindi um málefni fjölskyldunnar héldu þær Jasmina Crnac og Bryndís Jóna Magnúsdóttir. Þórey Ösp Gunn- arsdóttir kynnti hvað stendur fjöl- skyldum til boða í Bókasafni Reykja- nesbæjar. Dagskránni lauk á skemmti- legum söng frá Barnakór Tónlista- skóla Reykjanesbæjar undir stjórn Bylgju Dísar Gunnarsdóttur. Alls sóttu daginn um 60 manns sem var hinn gleðilegasti í alla staði. Hulda, Hrönn og Margrét fengu viðurkenningu á fjölskyldudegi ●● Landsbankinn●í●Reykjanesbæ●fjölskylduvænt●fyrirtæki●2016 Á myndinni eru f.v. Kristín Helga- dóttir, leikskólafulltrúi Reykjanes- bæjar, Hrönn Ásmundsdóttir og Margrét Stefánsdóttir dagforeldrar. Á myndina vantar Huldu Guðmunds- dóttur. Landsbankinn í Reykjanesbæ fékk viðurkenningu sem Fjölskylduvænt fyrirtæki 2016 en hann var tilnefndur af starfs- mönnum. Viðurkenningin var að þessu sinni ljósmynd eftir OZZO. Mannvit semur við Thorsil ●● Mannvit●tekur●að●sér●að●sjá●um●verkfræðilegan●undirbúning●að●byggingu●kísil- vers●í●Helguvík Á mynd frá vinstri: Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri iðnaðar hjá Mannviti, Sigurhjörtur Sigfússon, forstjóri Mannvits, Hákon Björnsson, fram- kvæmdastjóri Thorsil og Gunnar Jónsson, lögmaður. Orlofshús VSFK Sumar 2016 Eftirtalin orlofshús félagsins verða leigð út í sumar: 2 hús í Svignaskarði (Veiðiley í neðra svæði Norðurá í boði) 3 hús í Húsafelli 2 hús í Ölfusborgum 2 hús í Hraunborgum 1 íbúð í raðhúsi að Núpasíðu 8h, á Akureyri Útleigutímabilið er frá föstudeginum 27. maí 2016 og fram til föstudagsins 26. ágúst 2016. Umsóknir liggja frammi á skrifstofu félagsins og einnig inn á heimasíðu vsfk.is VSFK mun senda virkum félagsmönnum umsókn á rafrænu formi, þar sem hægt er að klára umsóknarferlið inn á mínum síðum VSFK. Umsóknafrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 4.apríl 2016. Úthlutað verður samkvæmt punktaker. Orlofsnefnd VSFK AÐALFUNDUR Björgunarsveitin Þorbjörn, Björgunarbátasjóður Grindavíkur og unglingadeildin Hafbjörg  halda aðalfund sinn þann 30. mars nk.  kl. 18:00   í húsi sveitarinnar að Seljabót 10. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf - Stjórnarkjör - Önnur mál. Stjórnin ATVINNA Starfsmaður í íþróttamiðstöð Grindavíkur Grindavíkurbær auglýsir eftir afleysingu í íþróttamiðstöðinni. Unnið er á vöktum. Óskað er eftir að ráða kvenmann í 62% starf við gæslu, afgreiðslu og þrif, frá 21. mars í að minnsta kosti 6 vikur, möguleiki er að viðkomandi fari í 100% starf vegna sumarafleysinga í framhaldi af þessu. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304. Sjá nánar á www.grindavik.is/atvinna

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.