Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 13
14 fimmtudagur 17. mars 2016VÍKURFRÉTTIR
Ég get ekki orða bundist lengur yfir
þeirri ákvörðun núverandi bæjar-
stjórnar Grindavíkur, sem á eftir
tvö ár af sínu kjörtímabili, að setja
Kvikuna á sölu og sér enga ástæðu til
þess að kynna það fyrir bæjarbúum.
Mikið var lagt í hönnun og byggingu
hússins á sínum tíma og mikill metn-
aður lagður í sjálfa sýninguna sem
heillar alla sem koma og heimsækja
okkur. Sögu fortíðar er kastað á glæ og
framtíðinni raunar líka með þessari
ákvörðun af því að ef húsið verður selt
þá verður ekki aftur snúið.
Það er morgunljóst að rekstur á húsi
sem er með menningartengda þjón-
ustu kemur sennilega aldrei til með
að bera sig, ekki frekar en sundlaug og
ýmislegt annað sem bæjarfélög reka.
Mér finnst skylda sveitarfélagsins að
varðveita söguna og vera stolt af henni
og hvernig lífið hér í Grindavík var,
bæði fyrir komandi kynslóðir okkar
að geta kynnt sér og líka fyrir gesti
sem sækja okkur heim.
Margir íbúafundir hafa verið haldnir
hér á síðari árum til þess að kynna
hin ýmsu skipulög. Þar hafa tli dæmis
verið samþykktar tillögur sem af því
að Kvikan verði ímiðdepli miðbæjar-
og hafnarkjarnans sem minningar-
hús og samkomustaður og fyrir hinar
ýmsu uppákomur, svo sem Sjóarann
Síkáta og fleira. Hvað er með þær
ákvarðanir núna, er ekkert hægt að
taka mark á þeim ákvörðunum sem
búið er að taka? Hvað ætlum vi ðað
bjóða ferðafólki að sjá í Grindavík
varðandi sögu og uppbyggingu bæjar-
ins? Íþróttahúsið og kaffihús?
Ég skora á bæjarstjórn Grindavíkur
að halda kynningu fyrir bæjarbúa og
athuga hvaða hug þeir bera til Kvik-
unnar og sýningarinnar áður en það
verður um seinan.
Guðbjörg Eyjólfsdóttir
Kvikan - menningarhús Grindvíkinga?
Þann 19. mars næstkomandi eru 10
ár frá því að N listinn tók til starfa í
Sveitarfélaginu Garði. N listinn bauð
fram þverpólitískan lista í sveitar-
stjórnarkosningunum 27. maí 2006 og
hlaut meirihluta atkvæða kosninga-
bærra manna í kosningunum.
Oddný G. Harðardóttir alþingismaður
varð þar með fyrst kvenna til að gegna
bæjarstjóraembætti fyrir Garðbúa og
gengdi hún því farsællega í þrjú ár.
Kveikjan að stofnun N listans var sú
að um tuttugu þverpólitískar konur úr
öllum stéttum samfélagsins hittust til
þess að ræða hvernig bæta mætti sam-
félagið og auka lýðræðislega aðkomu
bæjarbúa. Á þessum tímamótum settu
aðstandendur I listans sig í samband
við forystumenn N listans um sam-
starf og úr varð nýtt framboð N list-
inn. H listanum var einnig boðið að
vera með en í ljós kom að þeir ætluðu
ekki að taka þátt í kosningunum. Ein-
staklingar af H listanum höfðu þó að-
komu að N listanum.
N listinn er þverpólitískt afl allra
flokka sem og óháðra kjósenda og
hefur átt gott samstarf við íbúa sveitar-
félagsins allt frá stofnun hans og hafa
konur verið áberandi á N listunum.
Fyrstu bæjarfulltrúar N listans voru
Oddný G. Harðardóttir, Laufey Er-
lendsdóttir, Brynja Kristjánsdóttir og
Arnar Sigurjónsson. Særún Ástþórs-
dóttir tók sæti
Arnars 2008. Í bæjarstjórn voru þá
fimm konur og tveir karlar. Bæjar-
stjórinn, forseti bæjarstjórnar og for-
maður bæjarráðs voru konur auk þess
voru konur formenn í öllum nefndum
bæjarins nema einni. Þannig sveif
andi landnámsmannsins Steinunnar
gömlu yfir vötnum á 100 ára afmæli
Garðs í júní 2008.
Bæjarfulltrúar N listans í dag eru
Jónína Holm og Pálmi Steinar Guð-
mundsson.
10 ár frá stofnun N listans í Garði
Núna í mars eru 25 ár liðin frá stofnun
Félags eldri borgara á Suðurnesjum.
Á þessum árum hefur félagið náð
að dafna vel og heldur upp öflugu og
fjölbreyttu starfi. Félagar eru rúm-
lega 2200. Í tilefni þessara tímamóta
verður haldið upp á afmælið laugar-
daginn 19. mars á Nesvöllum. Opið
hús verður frá klukkan 15:00 til 18:00.
Allir eru velkomnir.
Félag eldri borgara á Suðurnesjum í aldarfjórðung
UMFERÐAR-
ÖRYGGISÁÆTLUN
Auglýst er eftir ábendingum frá íbúum Sandgerðisbæjar í
tengslum við gerð Umferðaröryggisáætlunar Sandgerðisbæjar.
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að senda ábendingar á
netfangið sandgerdi@sandgerdi.is eða skila þeim í afgreiðslu bæjarskrifstofu
Sandgerðis í Vörðunni, Miðnestorgi 3, fyrir 24. mars 2016.
Auglýsingasíminn er 421 0001