Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 17.03.2016, Blaðsíða 16
17fimmtudagur 17. mars 2016 VÍKURFRÉTTIR Fimmtudagskvöldið komu saman nemendur í 7. – 10. bekk ásamt foreldrum og öðrum gestum á sal skólans. Allir nemendur í þessum árgöngum voru með fjölbreytt og skemmtileg atriði s.s. leikrit, söng og dans. Þá sýndi leiklistavalið brot úr söngleiknum Bugsy Malone sem verður frum- sýndur eftir páska og nemendur í Zumba-vali í skólanum sýndu einnig dans. Eftir að atriðum lauk var ball fyrir nemendur undir stjórn plötu- snúðsins Heiðars Austmann. Föstudaginn 11. mars komu svo nemendur í 1. – 6. bekk saman ásamt foreldrum í íþróttahúsinu. Í ár var ákveðið að hafa eina árshátíð fyrir þennan aldurshóp en þær hafa hingað til verið þrjár. Starfsmenn skólans fengu aðstöðu í íþróttahús- inu og þar var sett upp svið, kastarar og salurinn skreyttur fallega. Atriðin voru fjölbreytt og má áætla að um 700 gestir hafi verið í salnum að horfa á og njóta. Eftir atriði á sviði héldu nemendur og gestir inn í skólann þar sem boðið var upp á hlaðborð með kökum og brauðréttum. Meðfylgjandi myndir voru teknar á árshátíðinni. Glæsileg ÁRSHÁTÍÐ Akurskóla ●● Árshátíð●Akurskóla●2016●fór●fram●í●tveimur●hlutum●10.●og●11.●mars. Sölusýning þann 19. mars og 20. mars kl. 14.00 – 16.00 þar sem íbúðir 301 og 302 verða sýndar fullbúnar (auðvelt að finna húsið því þar stendur eini byggingarkraninn í hverfinu). Nánari upplýsingar má nálgast hjá Eignasala.is að Hafnargötu 90a, 2h. S: 420-6070 eða eignasala@eignasala.is og hjá Jóni P. hjá Allt Fasteignum, Bæjarhrauni 12 í Hafnarfirði, í síma 772-1757 eða jonni@alltfasteignir.is Dalvegi 10-14  /  595 0570  /  Parki.is Nýjar fullbúnar 3ja – 4ra herbergja íbúðir með öllum gólfefnum sem afhendast í maí 2016. Einstaklega vandaðar íbúðir með sérinngangi og fyrsta lyftuhúsið í þessum hluta Reykjanesbæjar (Innri Njarðvík). Sérsmíðaðar innréttingar og innihurðir frá Parka, vandaðar flísar frá Álfaborg og AEG heimilistæki frá Ormsson. Húsið stendur við sömu götu og næsti grunnskóli hverfisins mun rísa og í næstu götu er einnig skipulagður nýr leikskóli. Frábært útsýni til lands og sjávar. Verð frá 24.9 m.kr. og allt að 98% fjármögnun og útborgun frá 498 þús. Húsanes kynnir nýjar og glæsilegar íbúðir að Bjarkardal 2 í Reykjanesbæ: Þökkum frábærar viðtökur Nokkrar íbúðir seldar strax fyrstu vikuna!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.