Víkurfréttir - 07.04.2016, Síða 1
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• Fimmtudagurinn 7. mars 2016 • 14. tölublað • 37. árgangur
l Jóhanna Ruth söng til sigurs í úrslitum Ísland Got Talent l „Það voru allir að knúsa mig og kissa“
Stjarna er fædd
Allur búnaður fyrir kísilver United
Silicon ásamt byggingarefni til að
ljúka byggingu kísilversins er kom-
inn til Helguvíkur. Því var fagnað
sl. föstudag að 90 dagar eru þar
til framkvæmdum á að ljúka við
byggingu kísilversins sem síðan hef-
ur framleiðslu 15 dögum síðar.
Magnús Garðarsson, framkvæmda-
stjóri United Silicon, sagðist von-
góður á að tímaramminn muni
standast nú þegar allt sem þarf til að
ljúka byggingunni og uppsetningu
verksmiðjunnar væri komið á fram-
kvæmdastað.
Starfsmönnum á framkvæmdasvæði
United Silicon var gerður dagamunur
sl. föstudag en nú vinna 205 starfs-
menn að uppbyggingu kísilversins,
auk tólf starfsmanna á skrifstofu
United Silicon.
Nemendur Myllubakkaskóla tóku Jóhönnu Ruth
opnum örmum þegar sigurvegari Ísland got talent
söng fyrir samnemendur sína á sal skólans í vik-
unni. Á sunnudag fagnaði Keflvíkingurinn Jó-
hanna sigri í keppninni og hafði hún fengið frí í
skólanum á mánudeginum til þess að jafna sig á
herlegheitunum og ræða aðeins við fjölmiðla. „Ég
var bara mjög hress og kát eftir sigurinn. Ég fór
heim og hafði það gott með fjölskyldunni. Það var
mjög erfitt að sofna eftir keppnina og ég svaf held
ég í bara fimm klukkutíma,“ sagði Jóhanna létt
í spjalli við VF. Jóhanna fékk frábærar móttökur
þegar hún mætti í skólann eftir sigurinn. „Það
voru allir að knúsa mig, heilsa mér og kyssa mig
á kinnina og allir voru forvitnir um keppnina.“
Nánar er fjallað um afrek Jóhönnu Ruthar í blað-
inu í dag en einnig er birt viðtal við hana í Sjón-
varpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld.
n Loftrýmisgæsla Atlantshafs-
bandalagsins við Ísland hófst að
nýju sl. mánudag með komu flug-
sveitar bandaríska flughersins.
Flugsveitin kemur frá Air National
Guard í Westfield, Massachusetts.
Alls munu um 150 liðsmenn taka
þátt í verkefninu og til viðbótar
starfsmenn frá stjórnstöð NATO í
Uedem, Þýskalandi (Combined Air
Operations Center). Flugsveitin kom
til landsins síðdegis í gær með fjórar
F-15C orrustuþotur og KC-135 elds-
neytisbirgðaflugvél.
Verkefnið verður framkvæmt með
sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í
samræmi við loftrýmisgæsluáætlun
NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að
verkefninu ljúki fyrir lok apríl. Verk-
efnið er framkvæmt af starfsmönnum
Landhelgisgæslu Íslands á Öryggis-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli, segir í
frétt Landhelgisgæslunnar.
Fjórar F15C og
eldsneytisvél
í loftrýmisgæslu
90 dagar
eftir af fram-
kvæmdum
l Á þriðja hundrað
starfsmenn við byggingu
kísilvers United Silicon
n Um 150 liðsmenn taka þátt í loftrýmis-
gæslu Nató með komu flugsveitar banda-
ríska hersins. Fjórar F-15C orrustuþotur hafa
látið til sín taka yfir Suðurnesjum og víðar að
undanförnu. VF-mynd: Hilmar Bragi
LJ
ÓS
M
YN
D:
EY
ÞÓ
R
SÆ
M
UN
DS
SO
N
Eignir á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu, fyrir 11,5
milljarða hafa nú þegar verið seldar. Það eru um
60 prósent húsnæðis á svæðinu, í fermetrum
talið. Fasteignamat þeirra eigna sem á eftir að
selja er um 7,5 milljarðar. Á fundi bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar á þriðjudag lögðu bæjarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokks fram bókun þess efnis að
gerð verði krafa til ríkisins um að stórum hluta
söluverðmætis eigna á Ásbrú verði varið til upp-
byggingar á nærþjónustu á svæðinu. Fjármála- og
efnahagsráðuneytið hefur óskað eftir afstöðu
Reykjanesbæjar til sölu á eignum á Ásbrúarsvæð-
inu.
Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar, fram-
kvæmdastjóra Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkur-
flugvallar, á nú eftir að selja um 300 einingar af
þeim 900 fjölskylduíbúðum sem eru á Ásbrú og
um 300 af þeim 1100 einstaklingsíbúðar/-herbergja
einingum sem þar eru. „Einnig er nokkuð eftir af
verslunar-, þjónustu- og iðnaðarhúsnæði,“ segir
hann. Allir kaupendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis
á Ásbrú hafa verið leigufélög. Kjartan segir áætlanir
Kadeco um mótun samfélags á Ásbrú gengið eftir
og að miðað við ástand á fasteignamarkaði undan-
genginna ára sé allt á áætlun. Kadeco, Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar, er í eigu ríkisins og segir Kjart-
an Kadeco hafa skilning á afstöðu þeirra sem vilja
að meirihluti fjármagns af sölu eigna á Ásbrú verði
eftir á svæðinu en að á endanum verði það eiganda
fjármunanna, það er ríkisins, að ákveða hvernig
þeim verði varið.
Eftirfarandi er bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks
í Reykjanesbæ sem lögð var fram á fundi bæjar-
stjórnar þriðjudaginn 5. apríl:
Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið
2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna
ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast
framtíðarþróun þess.
Við höfum séð svæðið þróast mikið í kringum Keili,
frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt
og nú er svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu eru
selt. Mikill áhugi er meðal fjárfesta og fyrirtækja í
flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því hús-
næði sem eftir er. Ásbrú er óðum að festa sig í sessi
sem eitt af stærri hverfum Reykjanesbæjar og er
löngu tímabært að við lítum til þess hvernig við sem
sveitarfélag munum þjónusta og þróa þetta hverfi til
framtíðar.
Í bréfi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins er farið
fram á afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eigna á Ás-
brúarsvæðinu. Við Sjálfstæðismenn gerum þá kröfu
til ríkisins að stórum hluta söluverðmætis þessara
eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna
á svæðinu. Reykjanesbær hefur byggt upp grunn-
skóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi
kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármun-
um sem myndast í Þróunarfélaginu verður úthlutað.
Fjármunir af sölu eigna á
Ásbrú verði eftir á svæðinu
l Eignir fyrir 11,5 milljarða þegar seldar l 60% húsnæðis á svæðinu