Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.2016, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 07.04.2016, Qupperneq 2
2 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Ferðamenn finna bara yfir- gefin kaffihús ■ Ferðamenn koma bara að tómum kofanum þegar þeir ætla á kaffi- hús við Hafnargötuna í Keflavík. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri í Reykjanesbæ, vakti athygli á því á fésbókinni að hann hafi fengið ábendingu frá ferðamönnum, sem óku Hafnargötuna í leit að kaffihúsi, um að við hana væru a.m.k. 6 staðir merktir sem kaffihús eða veitinga- staðir en án starfsemi og ferðafólkið hafi endað í 10-11. „Væri ekki ráð fyrir þá sem eiga þessi húsnæði að taka niður skiltin,“ spyr bæjarstjóri á fésbókinni. Nokkuð fjör- ugar umræður sköpuðust um kaffi- húsamenningu bæjarins og hvernig væri að lifa af í þeim heimi. Margir virðast sakna kaffihúss á horni Hafn- argötu og Tjarnargötu þar sem síðast var staðurinn Stefnumót og áður verslun Hljómvals. Þá hafa komið ábendingar um nokkur kaffihús í bæjarfélaginu, s.s. í ráðhúsi Reykja- nesbæjar, Kaffi Petit, Kaffitár á Fitjum og Park-Inn hótelið. Þá sé hægt að fá kaffi á veitingastaðnum Lemon. DS afsali Garðvangi til Sveitarfélagsins Garðs ■ Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti í síðustu viku samhljóða svohljóðandi bókun sem Bergur Álf- þórsson bæjar- ful ltrúi lagið fram: „Bæjar- stjórn Sveitar- félagsins Voga leggur til að DS afsali eignarhlut sínum í Garðvangi til Sveitarfélagsins Garðs og felur fulltrúa sínum í stjórn DS að leggja fram tillögu þess efnis á næsta stjórnarfundi DS.“ Málefni Garðvangs hafa verið nokkuð til umfjöllunar síðustu misseri. Þar var rekið hjúkrunarheimili á vegum Dvalarheimila aldraðra á Suður- nesjum til fjölda ára. Starfsemin á Garðvangi var svo lögð niður og heimilisfólk flutt á hjúkrunarheimilið að Nesvöllum í Reykjanesbæ. Bæjaryfirvöld í Garði hafa lagt á það áherslu að á Garðvangi verði rekið hjúkrunarheimili. Ljóst er að ráðast þarf í kostnaðarsamar breytingar á húsakosti að Garðvangi svo þar verði aðstaða og aðbúnaður sem stenst kröfur dagsins í dag. Bæjaryfirvöld í Garði hafa einnig áréttað að skv. deili- skipulagi sveitarfélagsins sé gert ráð fyrir opinberri þjónustu á þeim reit þar sem Garðvangur stendur og því ekki inni í myndinni að húsakosti verði breytt í hótel eða gistiheimili. Fulltrúar Sandgerðisbæjar fylgj- ast með framvindu mála er varðar gúmmíkurl á gervigrasvöllum og hafa kannað möguleika á úrbótum. Gervi- grasvöllur með gúmmíkurli var settur upp við íþróttamiðstöðina og grunn- skólann í Sandgerði árið 2009. Á vef Sandgerðisbæjar segir að ýmis vinna hafi farið fram hjá bæjarfélag- inu eftir að erindi frá Heimili og skóla í september 2015, þar sem stjórn landsamtakanna fór fram á það við sveitarfélög að gervigrasvellir þar sem notað er gúmmíkurl úr dekkjum verði endurnýjaðir í ljósi upplýsinga um að slíkt dekkjarkurl innihaldi krabba- meinsvaldandi efni. „Nú liggur fyrir til samþykktar þingsályktunartillaga sem miðar að gúmmíkurli úr dekkjum verði skipt út fyrir hættuminni efni á þeim leik- og íþróttavöllum sem þar er nú að finna. Samband Íslenskra sveitarfélaga hefur bent á að ekki liggur fyrir hvaða gúmmíefni uppfylla skilyrði að vera viðurkennd og telja að það hljóti að vera grundvallarforsenda fyrir því að hægt sé að fá niðurstöðu í málið til framtíðar. Sambandið ráðleggur sveitarfélögum að fylgjast vel með framvindu málsins og mögulega bíða með endanlegar ákvarðanir þar til niðurstaða liggur fyrir. Sandgerðisbær mun halda áfram að vinna að málinu, fylgjast með umræðunni og mögu- leikunum áður en gripið verður til aðgerða,“ segir á vef bæjarins. Beinar áætlunarferðir Gray Line milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar hefjast sunnudaginn 17. apríl næst- komandi. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september. Á leiðinni milli Akureyrar og Kefla- víkurflugvallar verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Eingöngu verður stoppað á viðkomandi stöðum ef farþegi hefur bókað far á vefsíðu Gray Line eða á sölustöðum fyrir- tækisins. Ávallt verður að bóka far fyrirfram. Upphaflega var áformað að hefja aksturinn 3. apríl en því þurfti að fresta vegna óvæntra tafa við innleið- ingu á nýrri bókunarvél á netinu. Lúxusrútur úr flota Gray Line annast ferðirnar. Þær eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetten- ingu og tveir bílstjórar verða ávallt með í för til að tryggja gæði þjónust- unnar. Áætlun Gray Line Airport Express er uppbyggð þannig að flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis kom- ast norður í land fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug. Bíða með endanlegar ákvarð- anir með gúmmíkurlsvelli Styttist í að beinar rútuferðir til Akureyrar frá Keflavíkurflugvelli Langferðabifreiðin sem verður notuð í aksturinn milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar. Bílarnir eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetteningu. Bílvelta eftir árekstur á Reykjanesbraut ■ Páskahátíðin fór vel fram í um- dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum og engin stórvægileg mál komu til hennar kasta yfir hátíðisdagana. Bíl- velta varð á Reykjanesbraut þegar tvær bifreiðar lentu saman. Öku- menn beggja sluppu ómeiddir, en fjarlæga varð bifreiðina sem valt, með dráttarbifreið. Þá voru fimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur, flestir á Reykjanes- braut. Sá sem hraðast ók mældist á 128 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Loks voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum vegna gruns um fíkniefnaakstur.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.