Víkurfréttir - 07.04.2016, Síða 4
4 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Rekstur Isavia gekk vel á árinu 2015
eins og undanfarin ár. Heildartekjur
Isavia samstæðunnar á árinu námu 26
milljörðum króna sem er aukning um
4 milljarða eða 18% frá árinu 2014.
Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði
nam um fjórum milljörðum króna og
jókst um 671 milljón milli ára en aðal-
fundur félagsins var í sl. viku.
Heildarafkoma ársins 2015 var jákvæð
um 3,1 milljarð króna sem er um 876
milljónum króna betri afkoma en árið
2014. Þennan mun má að hluta rekja
til gengisáhrifa af erlendum langtíma-
lánum en stærri hluta má rekja beint
til bættrar afkomu af rekstri samstæð-
unnar. Þessi góða afkoma félagsins
skiptir miklu máli til þess að hægt sé
að halda áfram þeirri uppbyggingu
sem stendur yfir á Keflavíkurflugvelli
og notendur flugvallarins kalla eftir.
Heildareignir samstæðunnar námu
45,2 milljörðum króna í árslok 2015
og þar af eru 37,2 milljarðar króna
tilkomnir vegna fastafjármuna. Alls
námu fjárfestingar í varanlegum
rekstrarfjármunum og óefnislegum
eignum 7,6 milljörðum króna og þar
af eru 6,5 milljarðar króna tilkomnir
vegna fjárfestinga á Keflavíkurflug-
velli. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
var 44,6% í lok árs 2015 samanborið
við 41,8% árið á undan og heldur því
áfram að hækka. Við stofnun félagsins
árið 2010 var eiginfjárhlutfallið 24,6%.
Staða handbærs fjár í lok árs 2015 var
um 5,0 milljarðar króna. Rekstur sam-
stæðunnar skilaði áfram sterku sjóð-
streymi, en handbært fé frá rekstri
árið 2015 nam 6,3 milljörðum króna
sem er aukning upp á um 1,7 milljarð
króna frá sama tímabili í fyrra. Þá
jókst meðalfjöldi starfa hjá samstæð-
unni um 11% og var 1.017 störf árið
2015 samanborið við 914 störf árið
2014. Þar af var meðalfjöldi starfa hjá
móðurfélaginu 807 (12,0% aukning),
hjá Fríhöfninni 161 (5,6% aukning) og
hjá Tern 49 (14,0% aukning).
Frá stofnun Isavia hefur afkomu fé-
lagsins verið ráðstafað til uppbygg-
ingar sem skilað hefur heilbrigðum
rekstri og góðri arðsemi. Félagið mun
ekki greiða arð vegna ársins 2015
fremur en undanfarin ár enda mikið
uppbyggingarstarf framundan hjá fé-
laginu, sérstaklega á Keflavíkurflug-
velli. Ákvörðun um að endurfjárfesta
afkomu ársins í uppbyggingu og verð-
mætasköpun innan félagsins er einkar
vel til þess fallin að styðja enn frekar
við vöxt ferðaþjónustunnar.
Hátt í milljarður til ríkisins í
formi beinna skatttekna
Árið 2016 greiðir samstæða Isavia
um 481 milljón króna í tekjuskatt. Þá
skilaði Fríhöfnin um 452 milljónum
króna í áfengis- og tóbaksgjald til
ríkissjóðs og hefur því skilað alls um
1,8 milljarði króna frá árinu 2011, til
ríkissjóðs í formi fyrrnefndra gjalda.
Framlag Isavia til ríkisins í formi
greiddra og innheimtra skatta nam
5,2 milljörðum króna á síðasta ári, og
hækkaði úr 4,4 milljörðum króna frá
árinu 2014.
Mikið uppbyggingarskeið
á Keflavíkurflugvelli
Ljóst er að Isavia gegnir þýðingar-
miklu hlutverki í uppbyggingu
ferðaþjónustunnar á Íslandi. Félag-
ið stendur í miklum og kostnaðar-
sömum framkvæmdum sem munu
halda áfram á komandi árum til þess
að mæta auknum fjölda erlendra
ferðamanna. Mörg tækifæri eru fram-
undan og þeim fylgja stórar ákvarð-
anir. Ríkisvaldið, sem fer með eignar-
hald á Isavia og er stór þjónustukaup-
andi, stendur því frammi fyrir stórum
ákvörðunum, ekki eingöngu hvað
varðar framtíðaruppbyggingu Kefla-
víkurflugvallar heldur einnig hvað
varðar þjónustustig í flugsamgöngum
innanlands til framtíðar.
Framsækin dótturfélög
Dótturfélög Isavia eru Fríhöfnin og
hugbúnaðarfyrirtækið Tern Systems.
Fríhöfnin hefur hlotið margar viður-
kenningar og meðal annars verið valin
besta fríhöfn í Evrópu. 161 manns
starfa hjá félaginu.
Tern Systems hefur í yfir 25 ár hannað
og framleitt hugbúnað til flugum-
ferðarstjórnar og þjálfunar flugum-
ferðarstjóra og er með kerfi uppsett
og í notkun hér á landi og víða í Evr-
ópu, Asíu og Afríku. Hjá fyrirtækinu
starfa 49 manns auk þess sem mikið af
þekkingu og reynslu er sótt til móður-
félagsins eftir þörfum og verkefnum.
Stjórn félagsins
Fjármálaráðherra fer með eignarhald
félagsins fyrir hönd ríkissjóðs. Í stjórn
voru kosin Theódóra Þorsteinsdóttir,
Ingimundur Sigurpálsson, Matthías
Páll Imsland, Sigrún Traustadóttir og
Ragnar Óskarsson.
Í varastjórn voru kosin Friðbjörg
Matthíasdóttir, Jens Garðar Helgason,
Jón Norðfjörð, Sigurbjörn Trausti Vil-
hjálmsson og Tryggvi Haraldsson.
Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur
hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar
og Budapest í Ungverjalandi. Buda-
pest er annar áfangastaður Wizz Air
frá Íslandi en félagið flýgur einnig til
Gdansk í Póllandi. Í maí á þessu ári
bætir félagið þriðja áfangastaðnum
við, Varsjá í Póllandi. Flogið verður
tvisvar í viku til Budapest, á miðviku-
dögum og sunnudögum, allt árið um
kring.
Wizz Air er sem áður segir ungverskt
flugfélag og stærsta lággjaldaflugvé-
lagið í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið
hóf flug á milli Gdansk og Keflavíkur-
flugvallar í júní í fyrra, fyrst tvisvar í
viku en fjölgaði ferðum fljótlega upp
í þrjár. Nú bætist annar áfangastaður-
inn við og sá þriðji, Varsjá, í maí. Það
er því ljóst að félagið bindur miklar
vonir við Ísland sem áfangastað.
Þrjú vilja vera
skólastjórar
Heiðarskóla
■ Þrír einstaklingar sóttu um stöðu
skólastjóra Heiðarskóla í Reykja-
nesbæ sem auglýst var á dögunum.
Nöfn umsækjenda eru:
Gerður Ólína Steinþórsdóttir, Har-
aldur Axel Einarsson og Hólmfríður
Árnadóttir.
Capacent sér um ráðningarferlið fyrir
Reykjanesbæ ásamt fræðslustjóra og
mannauðsstjóra Reykjanesbæjar.
Tekjur ISAVIA jukust um 4 milljarða í fyrra
●● Yfir●eitt●þúsund●
manns●starfa●hjá●félag-
inu,●lang●flestir●á●Kefla-
víkurflugvelli
Þegar Isavia var stofnað árið 2010
var eiginfjárhlutfallið 24,6% og fjár-
hagslegur styrkleiki hins nýstofnaða
félags því ekki sérstaklega mikill. Í
lok árs 2015 stóð eiginfjárhlutfallið
hins vegar í 44,6% sem er eftirtektar-
verður árangur í ljósi þess að upp-
bygging eiginfjárhlutfallsins hefur
að öllu leiti átt sér stað úr rekstri. Á
sama tímabili hefur félagið fjárfest
fyrir tæplega 17 milljarða króna og
staða langtímalána er svipuð og hún
var í lok stofnársins.
Þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar,
sem kynnt var síðastliðið haust,
gerði ráð fyrir að farþegafjöldi árið
2019 yrði rúmlega 6,5 milljónir en
nýjustu spár benda til þess að þeim
farþegafjölda verði náð núna í ár. Ef
við tökum árið 2025 sem dæmi þá
gerir uppfærð farþegaspá ráð fyrir
því að farþegafjöldinn verði sá sami
og þróunaráætlunin gerði ráð fyrir
að yrði árið 2037. Þessar miklu for-
sendubreytingar á skömmum tíma
búa til verulegar áskoranir til að
leitast við að Keflavíkurflugvöllur
verði í stakk búinn til að taka á móti
öllum þessum fjölda ferðamanna.
Það er verkefni sem við erum þegar
byrjuð að vinna af krafti en það er
þó mikilvægt að vinna þá vinnu af
yfirvegun og í takt við raunaukningu
ferðamanna.
Fjárfest fyrir 17 milljarða
ATVINNA
Geo Hotel Grindavík leitar af framtíðarstarfsmanni í starf
næturvarðar. Unnið er í 7 nætur, frá 20:00 til 08:00, og svo er frí í
7 nætur á milli.
Einnig getum við bætt við okkur fleira sumarstarfsfólki í flestar
stöður og einhverjar stöður gætu mögulega verið til framtíðar.
Við leitum af fólki sem langar að bætast í okkar frábæra hóp og
hefur rétta hugarfarið til að veita gestum okkar einstaka upplifun
og þjónustu.
Hæfniskröfur í allar stöður: - Næturvörður þarf að vera 23 ára
eða eldri, en í önnur störf er 17 ára aldurstakmark.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Bílpróf (og geta/áhugi til að keyra 8 manna, beinskiptan bíl)
- Einstök þjónustulund og samskiptahæfileikar
- Hæfni til að vinna undir álagi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvu– og tungumálakunnátta (a.m.k. íslenska og enska)
- Stundvísi, glaðværð, kurteisi og snyrtimennska
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsókn á loa@geohotel.is
Geo Hotel Grindavík | Víkurbraut 58 | 240 Grindavík | S: 421 4000 | www.geohotel.is
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.
Rekstur Isavia gekk vel á árinu 2015 eins og undanfarin ár.
Wizz Air flýgur til Keflavíkur
Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur hafið flug á milli Keflavíkurflugvallar og
Budapest í Ungverjalandi. Með kannabis, lyf
og stera í bílnum
■ Lögreglan á Suðurnesjum hand-
tók í síðustu viku ökumann vegna
gruns um að hann æki undir áhrifum
fíkniefna. Megn kannabislykt barst
úr bifreiðinni þegar lögreglumenn
ræddu við manninn og viðurkenndi
hann neyslu kannabisefna. Hann
heimilaði leit í bifreið sinni og þar
fundust meint kannabisefni, meintir
sterar og lyf sem maðurinn gat ekki
gert grein fyrir. Við leit á heimili
hans, að fenginni heimild, fundust
einnig meintir sterar.