Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.2016, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 07.04.2016, Blaðsíða 8
8 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Lífið með Lindu Maríu Nú er vorið handan við hornið, er ekki í lagi að segja það? Öll þessi hret að baki og nú tekur við sumarið og sólin. Er í lagi að segja það? Svo virðist sem að í hvert sinn sem maður leyfir sér að segja þessa setningu þá mætir manni hvít jörð næsta morgun. Þó það sé svo fallegt einhvern veginn þegar snjórinn liggur yfir öllu þá er komið gott af því. Ég finn það á sjálfri mér hversu tilbúin ég er í sumarið. Grillið er farið að fá smá útitíma, svalahurðin fær að vera opin í lengri tíma í senn og maður er farinn að heyra hlátrasköllin í börnunum í hverfinu. Þau minna mig alltaf á tímana þegar ég var lítil, þá lék maður sér í hverfinu frá morgni til kvölds. Þessi tími er dásamlegur, nú fer maður að velta fyrir sér hvar sé best að byrja á að reita arfann, hvort tréin séu nokkuð rytjuleg og kústurinn fer af stað í kringum húsið. Þar sem við búum er himnaríki fyrir þá sem hafa græna fingur. Hér eru tréin há og fögur og laufin virðast óendanleg. Hér er af nægu að taka hafi menn áhuga á því. Ég er mikið að velta þessu fyrir mér þegar ég helli upp á rjúkandi kaffi- bollann, hvar ætli sé sniðugast að byrja. Þar sem við höfum búið síðustu árin hefur ekki verið mikið af trjám, í raun engin þegar ég hugsa út í það. Þegar við byggðum okkur hús fyrir nokkrum árum þá var það eitt af aðalatriðunum mínum þegar kom að útliti húss- ins. Hvar við ættum að vera með tré og hvernig tré við ættum að hafa í kringum húsið. Heildar út- litið skipti ekki minna máli en skipulagning innan húss. Ég hef nefnilega alltaf verið með ímynd í huga mínum um sumarkvöldin þar sem börnin okkar eru að leik með vinum sínum í hverfinu og við hjónin að sinna garðverkum. Jafnvel að virkja þau með okkur í garðvinnuna. Stundirnar með börnunum eru ógleymanlegar og alltaf eitthvað sem hægt er að gera saman. Oft er ekki annað sem þarf til en að hreinlega setjast niður með þeim og spyrja hvað þau langi til að gera. Á þessari tölvuöld er ögrunin alltaf að minnka og úti- tíminn nánast enginn. Vorið er hreint yndislegur tími, nú tekur við nýtt upphaf og bjartir tímar framundan. Við fjölskyldan erum strax farin að huga að sam- verustundum þegar sól hækkar á lofti. Um helgina spiluðum við körfubolta niður á körfubolta- velli í Holtaskóla. Markmið fjöl- skyldunnar fyrir þetta sumarið er að fara meira út saman og skapa minningar. Hér í Reykjanesbæ er allt sem til þarf þegar kemur að samverustundum og hreyfingu. Fótboltavellir og útisvæðin eru til fyrirmyndar og hreinlega kalla á krakkana að koma og leika. Þar til ég get farið að reita arfa þá finnið þið mig fyrir framan ein- hverja körfuna, rifjandi upp gamla takta á þriggja stiga línunni. Ást og friður Linda María Komum út að leika Oddfellowreglan á Suðurnesjum af- henti Heilbrigðisstofnun Suðurnesja nýja líknaraðstöðu sem hún lét útbúa en fjórar stúkur innan hennar stóðu saman að þessari veglegu gjöf. Odd- fellowreglan á Suðurnesjum fagnar 40 ára afmæli á þessu ári en elsta oddfellowstúkan í Keflavík, Njörður, var stofnuð 6. mars 1976. Auk hennar eru gef- endur oddfellow- stúkan Jón forseti og Rebekkustú- kurnar Steinunn og Eldey. Sérstök aðstaða fyrir líknardeild hefur ekki verið starf- rækt áður hjá HSS og er þessi aðstaða því góð viðbót við þá þjónustu sem stofnunin veitir í heimabyggð. Að- staðan var útbúin með það af mark- miði að gera sjúklingum, fjölskyldum þeirra og vinum vistina sem besta á erfiðum tímum. Hún er tæpir 70 fer- metrar, herbergi og setustofan. Aðstaðan er gjöf Oddfellowstúknanna og í henni eru endurinnréttuð setu- stofa, herbergi og bað sem sérstak- lega er ætlað sem líknaraðstaða þar sem legudeild HSS mun bjóða upp á líknarmeðferð. Auk þess gefa stúk- urnar hús- og tækjabúnað sem not- aður er fyrir líknarmeðferðir. Verð- mæti gjafarinnar er um 8 milljónir króna. Fulltrúar stúkn- anna f j ögur ra ásamt mörgum félögum þeirra sem og forráða- m e n n H e i l - brigðisstofnunar Suðurnesja voru viðstaddir form- lega afhendingu gjafar innar s l . þriðjudag. Hall- dór Jónsson, forstjóri HSS, þakkaði fyrir veglega gjöf og sagði hana mikil- væga viðbót við þjónustu HSS en líkn- araðstaða hefur ekki verið til staðar hjá stofnuninni. „Við erum ákaflega þakklát Oddfel- lowum að leggja okkur og samfélag- inu gott lið með þessari veglegu gjöf. Þörfin fyrir þetta er mikil, verkið er vel heppnað og aðstaðan mun nýtast sjúklingum og aðstandendum mjög vel,“ sagði Halldór. Oddfellowar gefa HSS líknaraðstöðu Fulltrúar Oddfellowstúknanna og forráðamenn HSS í nýja líknarherberginu. VF-myndir/pket. Setustofan sem tengist líknarherberginu hefur verið endurnýjuð en hún snýr út að skrúðgarðinum í Keflavík. Herbergið er heimilislegt og búið öllum helstu tækjum og þægindum sem þykja nauðsynleg í svona aðstöðu. 20% afsláttur Hafnargata 29 - s. 421 8585 Vordagar 7. - 11. apríl af öllum skóm á vordögum Haldlögðu am- fetamín og kannabis ■ Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á nokkurt magn amfetamíns og kannabisefna í húsleit sem gerð var í umdæminu nýverið, að feng- inni heimild. Á öðrum stað fundust einnig fíkniefni sem talin eru hafa verið ætluð til sölu og dreifingar. Þá voru tveir einstaklingar til viðbótar staðnir að vörslu á kannabisefnum. Annar þeirra framvísaði efninu en hinn kastaði poka með kannabis- efnum út úr bifreið, sem lögregla stöðvaði við hefðbundið umferðar- eftirlit. Lögreglan á Suðurnesjum stendur nú að áhersluverkefni sem felst í því að uppræta framleiðslu fíkniefna í um- dæminu og stöðva sölu og dreifingu fíkniefna.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.