Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.2016, Page 10

Víkurfréttir - 07.04.2016, Page 10
10 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR Nemendur Myllubakkaskóla tóku Jó- hönnu Ruth opnum örmum þegar sigurvegari Ísland got talent söng fyrir samnemendur sína á sal skólans í vikunni. Á sunnudag fagnaði Kefl- víkingurinn Jóhanna sigri í keppninni og hafði hún fengið frí í skólanum á mánudeginum til þess að jafna sig á herlegheitunum og ræða aðeins við fjölmiðla. „Ég var bara mjög hress og kát eftir sigurinn. Ég fór heim og hafði það gott með fjölskyldunni. Það var mjög erfitt að sofna eftir keppnina og ég svaf held ég í bara fimm klukku- tíma,“ sagði Jóhanna létt í spjalli við VF. Jóhanna fékk frábærar móttökur þegar hún mætti í skólann eftir sigur- inn. „Það voru allir að knúsa mig, heilsa mér og kyssa mig á kinnina og allir voru forvitnir um keppnina.“ Jóhanna steig á stokk og söng Tinu Turner slagarann „Simply the best,“ sem færði henni sigurinn á sunnudag. Auðvitað var flutningurinn lýtalaus og nemendur og starfsfólk skólans dilluðu sér með og klöppuðu ákaft. Söngkonan Selma Björnsdóttir stakk upp á því að nota lagið hennar Tinu Turner þar sem það þótti henta rödd Jóhönnu vel. Það reyndist kórrétt. Ætlar að nota peningana til þess að mennta sig Hin 14 ára gamla Jóhanna hyggst nota verlaunaféð, sem er tíu milljónir króna, til frekara tónlistarnáms en hún hefur mikla ástríðu fyrir tónlist og gerir ráð fyrir því að leggja hana fyrir sig í framtíðinni. „Ég er að fara að nota peningana í nám. Mig langar til þess að læra á fullt af hljóðfærum og læra meiri söng.“ Þá langar hana að læra á píanó eða gítar. Eigum eftir að sjá mikið meira frá þessari stelpu Hildur María Magnúsdóttir er kenn- ari Jóhönnu og hefur fylgt henni frá því að hún flutti til landsins fyrir fimm árum. „Þetta er einhver undarlegasta tilfinning sem ég hef haft í mag- anum þegar úrslitin voru tilkynnt. Við vorum gríðarlega spennt og stolt. Hjá mér var þetta ekki vafi. Í úrslita- þættinum voru þau reyndar öll rosa- lega góð en í mínum huga var þetta aldrei spurning,“ segir Hildur. Hún segir Jóhönnu frábæran nemanda og að hún hafi aðlagast einkar vel. „Hún small fljótt inn í hópinn. Hún er opin og dugleg manneskja þannig að þetta kom allt fljótt hjá henni.“ Hildur man vel eftir því að hafa heyrt Jóhönnu syngja í frysta sinn. „Það er eitthvað annað að horfa á þessa stelpu syngja. Maður getur ekki ímyndað sér að þessi rödd komi úr þessum kropp, þetta er eiginlega bara fáranlegt. Við eigum eftir að sjá mikið meira frá þessari stelpu, ég er alveg sannfærð um það að hún eigi eftir að blómstra á þessu sviði.“ ●● Jóhanna●Ruth●sigraði●í● Ísland●got●talent STJARNA ER FÆDD AÞ-Þrif is looking for people to hire. Must speak english or icelandic. Preferably between 20–40 years of age. Driving license and clean criminal record is required. Please send application via email at gerda@ath-thrif.is titled “Job”. NEED A JOB? Skeiðarási 12 210 Garðabæ LAUS STÖRF ÖKUM VARLEGA Sérkennari, íslenskukennari og umsjónarkennarar. Heiðarskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi, sérkennara og íslenskukennara á unglingastigi næsta skólaár. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Sóley Halla Þórhallsdóttir, skólastjóri, í síma 420-4500 eða 894-4501 og Haraldur Axel Einarsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 420-4500 eða 698-7862. Umsjónarkennarar. Myllubakkaskóli óskar eftir umsjónar- kennurum næsta skólaár. Hluti af stöðunum eru afleysingar- stöður vegna barneignaleyfa. Umsóknarfrestur er til 25. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Bryndís Guðmundsdóttir, skóla- stjóri í síma 420-1450 eða 897-4252. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið bryndis.b.gudmundsdottir@ myllubakkaskoli.is. Íþróttakennari, íslenskukennari, stærðfræðikennari og umsjónarkennarar. Njarðvíkurskóli óskar eftir umsjónar- kennurum til starfa næsta skólaár á yngra-/miðstigi, einnig íþróttakennara, íslensku- og stærðfræðikennara á unglinga- stigi. Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk. Nánari upplýsingar veitir Ásgerður Þorgeirsdóttir, skóla- stjóri, í síma 4203000/8632426 eða í gegnum tölvupóst: asgerdur.thorgeirsdottir@njardvikurskoli.is. Náttúrufræðikennari, sérkennari og umsjónakennarar. Akurskóli óskar eftir umsjónarkennurum á yngsta- og mið- stigi fyrir næsta skólaár, einnig náttúrufræðikennara á elsta stigi og sérkennara. Umsóknarfrestur er til 21. apríl nk. Skólaliðar. Þá óskar skólinn eftir skólaliðum til að starfa með nemendum í leik og starfi utan og innan kennslustofu. Nánari upplýsingar veita Sigurbjörg Róbertsdóttir, skóla- stjóri í síma 420-4550 eða 849-3822 og Gróa Axelsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 420-4550 eða 824-1069. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið sigurbjorg. robertsdottir@akurskoli.is. Leikskólakennari. Heilsuleikskólinn Heiðarsel óskar eftir leikskólakennara í 100% stöðu sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 22. apríl nk. Frekari upplýsingar veitir Ólöf Guðmundsdóttir leikskóla- stjóri í síma 4203131/8917178 eða olof.gudmundsdottir@ heidarsel.is. Umsóknum í öll ofangreind störf skal skila rafrænt á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is/stornkerfi/laus- storf, þar sem einnig er að finna nánari upplýsingar um störfin og kröfur til umsækjenda. Með vorkomu og hækkandi sól má búast við fleiri börnum að leik á opnum svæðum og við umferðargötur. Ökum varlega og virðum 30 kílómetra há- markshraða í íbúðahverfum. SPILUM SAMAN Laugardaginn 9. apríl drögum við spilin fram í safninu og hvetjum gesti og gangandi til að grípa í spil á leið sinni um safnið. Allir hjartanlega velkomnir. Bókasafn Reykjanesbæjar KRYDD Í TILVERUNA Auður Rafnsdóttir höfundur bókarinnar Kryddjurtarækt fyrir byrjendur kemur í Bókasafn Reykjanesbæjar þriðju- daginn 12. apríl klukkan 19:30. Kynning og ráðgjöf um kryddjurtaræktun.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.