Víkurfréttir - 07.04.2016, Side 15
VILTU VINNA MEÐ
OKKUR Í SUMAR?
Við erum að leita að starfsmönnum í eftirfarandi störf:
Verkefnisstjórum í Starfsskóla
Ertu skipulagður og jákvæður einstaklingur,
18 ára eða eldri?
Viltu fá tækifæri til þess að taka þátt í uppbygginu á
skemmtilegum starfsskóla?
Við bjóðum þér góða þjálfun og þú færð reynslu í
stjórnun, skipulagi og samskiptum sem gæti nýst þér vel
í framtíðinni. Ef þér finnst þetta spennandi þá gætum
við verðið að leita að þér til þess að starfa með okkur.
Stjórnandi í Starfsskóla
Ertu skapandi, skipulagður, jákvæður og skemmtilegur
einstaklingur, 20 ára eða eldri?
Viltu fá tækifæri til þess að taka þátt í uppbygginu á
skemmtilegum starfsskóla fyrir unglinga? Við bjóðum
þér góða þjálfun og þú færð reynslu í stjórnun, skipulagi
og samskiptum sem gæti nýst þér vel í framtíð. Ef þér
finnst þetta spennandi þá gætum við verðið að leita að
þér til þess að starfa með okkur.
Umsjón með
sumarnámskeiðum barna
Hefur þú áhuga á og vilt vinna með börnum. Láta hug-
myndaflugið, veður og aðstæður ráða því hvað þið
eruð að gera í sumar? Við leitum að ferskum og áhuga-
sömum einstaklingi til að hafa umsjón með sumarnám-
skeiðum fyrir börn á aldrinum 6 til 12 ára í Sandgerði
í sumar. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
störfum með börnum, geti skipulagt daglegt starf nám-
skeiðanna og stjórnað ungmennum úr starfsskóla sem
verða til aðstoðar á námskeiðunum. Þetta gæti verið
spennandi sjálfstætt starf - sæktu um hjá okkur.
Sumarvinna við slátt og hirðingu
Þetta er fyrir þig sem hefur áhuga á umhverfinu,vélum
og tækjum og ert orðin a.m.k 17 ára. Þú þarft líka að
vera sjálfstæður, skipulagður og vandvirkur.
Starfið snýst um slátt, hirðingu og fleira fyrir sveita-
félagið. Finnst þér þetta spennandi?
Sæktu um hjá okkur.
Verkstjóri Sumarvinnu
Viltu ná þér í góða stjórnunarreynslu sem getur vel
nýst þér í námi og starfi í framtíð?
Við leitum að einstakling, 20 ára eða eldri, sem er
góður í samskiptum, hefur áhuga á umhverfi, er skipu-
lagður, metnaðargjarn, ákveðinn og jákvæður.
Við bjóðum góða þjálfun, jákvætt samstarf og hand-
leiðslu. Þetta gæti verið spennandi reynsla og einstakt
tækifæri, ef þér líst á þetta þá er um að gera að sækja
um hjá okkur.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í lok maí 2016
og þurfa að heimila skoðun sakavottorðs.
Nánari upplýsingar veita Einar Friðrik
Brynjarsson, einar@sandgerdi.is og í síma
420-7509, 899-7505, Rut Sigurðardóttir,
rut@sandgerdi.is og í síma 420 7507, 869-
6169.
Starfsmaður við Sandgerðishöfn
Starfsmaður óskast í fullt starf til sumarafleysinga við
Sandgerðishöfn frá 17. maí til 31. ágúst.
Starfssvið og hæfniskröfur:
Vigtun sjávarafla og skráning í aflakerfi Fiskistofu
Almennt viðhald, umhirða og eftirlit á hafnarsvæðinu
auk annarra tilfallandi verkefna
Góð alhliða tölvukunnátta nauðsynleg
Æskilegt er að viðkomandi hafi löggilt vigtarleyfi
Rík þjónustulund
Starfsmaður gengur vaktir
samkvæmt vaktafyrirkomulagi Sandgerðishafnar.
Nánari upplýsingar veitir Grétar Sigur-
björnsson verkefnastjóri Sandgerðishafnar í
síma 420-7537 eða 899-6306.
Starfsmaður á bókasafn
Bókasafn Sandgerðisbæjar óskar eftir fjölhæfum,
ábyrgum og sveigjanlegum upplýsingafræðingi, bóka-
safnsfræðingi eða öðrum einstaklingi sem hefur áhuga
á að starfa á bókasafni bæjarins í sumar. Starfið hentar
þeim sem eru sjálfstæðir í vinnubrögðum, áhugasamir
um bókmenntir og lestur og málefni líðandi stundu.
Starfsmaður í Þjónustumiðstöð
(áhaldahús)
Starfsmaður óskast í fullt starf til sumarafleysinga í
þjónustumiðstöð Sandgerðisbæjar frá 1. júní - 31. ágúst.
Skilyrði er að viðkomandi sé handlaginn, hafi vinnu-
vélaréttindi og búi yfir víðtækri reynslu af akstri og
meðferð vinnuvéla.
Nánari upplýsingar veitir Einar Friðrik
Brynjarsson í einar@sandgerdi.is og í síma
420-7509, 899-7505
Starfsmaður í Íþróttamiðstöð
Sandgerðis
Starfsmaður óskast í fullt starf í Íþróttamiðstöð Sand-
gerðis frá 1. júlí – 31. október. Í starfinu felst m.a.
klefavarsla í karlaklefum. Umsækjendur þurfa að hafa
lokið námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf
samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og
baðstöðum.
Í starfi sundlaugarvarðar felst;
Öryggisvarsla við sundlaug,
klefavarsla, afgreiðsla, þrif og fl.
Hæfniskröfur:
Góð samskiptahæfni
Reynsla af starfi með börnum og unglingum
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Tölvukunnátta
Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar veitir Jón Hjámarsson,
forstöðumaður í síma 894-6535.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Sandgerðisbæjar,
www.sandgerdi.is og bæjarskrifstofunni, Miðnestorgi 3.
Umsóknarfrestur vegna ofangreindra sumarstarfa er til og með föstudeginum 15. apríl 2016.