Víkurfréttir - 07.04.2016, Qupperneq 18
18 fimmtudagur 7. apríl 2016VÍKURFRÉTTIR
Norðurkot var byggt árið 1903 og
hefur mikið menningarsögulegt gildi
í Sveitarfélaginu Vogum en um er að
ræða elsta uppistandandi skólahús
þess. Skóli hafði verið rekinn í Suður-
koti á Vatnsleysuströnd frá 1872 en
þar sem dreifbýlt var á ströndinni voru
starfrækt nokkurs konar skólaútibú til
að auðvelda börnum skólagönguna.
Eitt þessara útibúa var Norðurkots-
skóli.
Húsið var orðið illa farið og að hruni
komið þegar það var gefið til Minja-
og sögufélags Vatnsleysustrandar. Sá
félagsskapur var stofnaður árið 2005
með það að markmiði að stuðla að
varðveislu minja í sveitarfélaginu
Vogum. Mannvirkja sem hafa varð-
veislugildi jafnt sem annarra minja.
Engin formleg félagasamtök höfðu
fyrir stofnun félagsins verið starfandi í
sveitarfélaginu og haft tilgreind mark-
mið að leiðarljósi en varðveislan hafði
verið í höndum einstaklinga í Vogum.
Norðurkot var flutt af grunni sínum
og á nýjan stað við Kálfatjarnarkirkju
þar sem er framtíðar safnasvæði
Sveitarfélagsins Voga. Þar hefur verið
unnið að endurbyggingu Norðurkots
í sem upprunalegastri mynd. Lokið
hefur verið við endurbætur utanhúss
en endurbætur á innviðum hússins
standa yfir.
●● Minja-●og●sögufélag●Vatnsleysustrandar●gerir●upp●elsta●uppistandandi●skóla-
hús●sveitarfélagsins
Minjar og saga varðveitt
komandi kynslóðum til ánægju og lærdóms
Svona var ástandið á Norðurkoti þegar minjafélagið tók við
húsinu fyrir áratug síðan.
Norðurkot eins og útlit þess er í dag.
Helga Ragnarsdóttir,
gjaldkeri minjafélagsins.
*gildir til 15. apríl
Skreytum hús GAURAGRÁR og DÖMUGRÁR eru fermingarlitirnir í ár og eru á sértilboði.
Þeir eru einstaklega fallegir mjúkir grátónalitir úr litakorti Skreytum hús og sérblandaðir hjá Slippfélaginu.
Tilvaldir á veggina hjá fermingarbarninu, stofuna, svefnherbergið eða önnur rými.
Komdu og fáðu fríar litaprufur af fermingarlitunum.
FERMINGARLITIRNIR 201640% AFSLÁTTUR
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, S: 588 8000 • Dalshrauni 11, Hafnarrði, S: 588 8000 • Gleráreyrum 2, Akureyri, S: 461 2760 • slippfelagid.is
Skreytum hús
DÖMUGRÁR
Skreytum hús
GAURAGRÁR
Þórður Ingimarsson, Margrét Skarphéðinsdóttir,
Jónatan Ingimarsson, Erla Vigdís Óskarsdóttir,
Guðmundur Jens Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elínrós Jónsdóttir
Njarðarvöllum 2, Njarðvík,
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samhug og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu á Nesvöllum fyrir
einstaklega góða umönnun og umhyggju.
Ágústa Halla Jónasdóttir,
Hjálmtýr Ingason, Þuríður G. Aradóttir,
Sigurður E. Ingason, Bjarnheiður Þ. Þórðardóttir,
Ásdís Ingadóttir, Sveinbjörn Halldórsson,
Þórarinn I. Ingason, Jóhanna Ó. Jónasdóttir,
Sigríður Ingadóttir, Ólafur J. Ormsson,
Ragnar Ingason, Jessica S. Suber,
Jónas Ingason, Hjördís Ó. Hjartardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingi Eggertsson,
lést föstudaginn 18. mars 2016.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu Nesvöllum fyrir
einstaklega góða umönnun og umhyggju.
Okkar ástkæra,
Guðrún Emilsdóttir (Rúna),
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 4. apríl. Jarðaförin verður auglýst síðar.
Fjölskylda hinnar látnu.